Bond, James Bond

Margir kann­ast við eina fræg­ustu per­sónu hvíta tjalds­ins, James Bond njó­sn­ara hennar hátignar. Sem ætíð sleppur lif­andi, þótt stundum standi tæpt. Færri vita að til var breskur njósn­ari með sama nafni, sá starf­aði fyrir Breta í Póllandi.

James Albert Bond er hér til vinstri ásamt Daniel Craig sem hefur farið með hlutverk njósnarans James Bond síðustu ár.
James Albert Bond er hér til vinstri ásamt Daniel Craig sem hefur farið með hlut­verk njósn­ar­ans James Bond síð­ustu ár. Mynd: Samsett/EPA

Setn­ingin „Bond, James Bond“ er vafa­lítið ein þekktasta setn­ing kvik­mynda­sög­unnar. Heyrðist fyrst árið 1962 í kvik­mynd­inni Dr. No, fyrstu kvik­mynd­inni sem gerð var eftir bók Ian Fleming (1908 -1964) um njó­sn­ara hennar hátignar. Sá sem fyrstur sagði þessi frægu orð á hvíta tjald­inu var Sean Connery.

Sögu­per­sónan James Bond birt­ist fyrst árið 1953 í bók­inni Casino Royale. Höf­und­ur­inn Ian Fleming sagði að hann hefði ákveðið að þessi maður skyldi heita ein­hverju mjög venju­legu nafni. Ian Fleming, sem var áhuga­maður um fugla, átti bók um villta fugla í Vestur-Indíum. Höfundur þeirra bókar var fugla­fræð­ingur að nafni James Bond (1900- 1989). Sögu­per­sónan James Bond átti að vera sér­lega óáhuga­verður maður sem hefði engin áhuga­mál og líf hans ein­kennd­ist af atvikum og atburðum sem hann lenti í.

Ian Fleming sagði síðar eig­in­konu fugla­fræð­ings­ins að njósn­ar­inn líkt­ist honum í engu, burt­séð frá nafn­inu. Persónan var, að sögn Ian Fleming, hálf­gerður hræri­grautur vinnu­fé­laga hans hjá Leyni­þjón­ustu breska flot­ans, þar sem rit­höf­und­ur­inn vann um ára­bil. Sumt varð­andi per­sónu njósn­ar­ans líkt­ist rit­höf­und­inum sjálfum, sem hafði dálæti á eggja­hræru, áhuga á fjár­hættu­spili, tak­mörk­uðum golf­hæfi­leikum og fleiru.

Ellefu James Bond bækur og tvö smásagnasöfn

Á ára­bil­inu 1953 – 1966 komu út ell­efu James Bond bækur og tvö smá­sagna­söfn með sögum um njósn­ar­ann 007, eins og hann hét á papp­írum Leyni­þjón­ustu hennar hátignar, MI6. Tvær þess­ara bóka komu út eftir að Ian Fleming lést. Bókin sem bar heitið Dr. No, sú fyrsta sem var kvik­mynduð, kom út 1958.

Hér verður ekki fjallað nánar um Ian Fleming og rit­störf hans. Rétt er þó að nefna að á lista dag­blaðs­ins The Times er hann númer 14 á lista yfir helstu rit­höf­unda Breta frá lokum síð­ari heims­styrj­aldar.

James Albert Bond

Fyrir nokkrum dögum birti pólska for­tíð­ar­stofn­unin (IPN) nýja til­kynn­ingu á vef­síðu sinni. Það gerir þessi stofnun reglu­lega en að þessu sinni vöktu upp­lýs­ing­arnar meiri athygli en oft áður. Þar var greint frá því að á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar hefði breskur njósn­ari starfað hjá ræð­is­skrif­stofu breska hers­ins í Varsjá. Ekki væri það kannski sér­lega frétt­næmt nema vegna nafns­ins á þessum umrædda spæj­ara. Hann hét sem sé James Bond, fullu nafni James Albert Bond.

James þessi Bond kom til starfa hjá ræð­is­skrif­stof­unni í Varsjá 18. febr­úar árið 1964, tveimur árum eftir að kvik­myndin Dr. No var frum­sýnd. Starfs­heiti hans á ræð­is­skrif­stof­unni var skjala­vörður. Í upp­lýs­ingum IPN um „skjala­vörð­inn“ kemur fram að hann hafði, meðal ann­ars vegna nafns­ins, vakið athygli pól­skra yfir­valda sem fylgd­ust grannt með honum. James Bond ferð­að­ist tals­vert um Pólland, meðal ann­ars til borg­anna Bialystock og Olsztyn. Marcena Kruk, yfir­maður IPN sagði í við­tali að upp­lýs­ingar um James Bond væru tak­mark­aðar, „við vitum að hann ferð­að­ist tals­vert um landið og hafði auga fyrir konum. Í gögnum okkar um hann er ekk­ert minnst á Martini kok­teil, en hins­vegar kemur þar fram að hann hafi kunnað að meta pólskan bjór.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum IPN var James Bond í Póllandi um tveggja ára skeið, 1964 og 1965. Þá hvarf hann af hinu pólska sjón­ar­sviði.

Und­an­farna daga hefur tals­vert verið fjallað um James Albert Bond í breskum og pólskum fjöl­miðlum. Pólskir fjöl­miðla­menn veltu því fyrir sér hvort nafnið James Bond hefði verið til­bún­ingur, mað­ur­inn hefði heitið eitt­hvað allt annað. Net­mið­ill­inn National.ae birti fyrir viku (20.9) grein um James Albert Bond. Þar kemur fram að hann hafi fæðst í Bideford á Devon Suður-Englandi árið 1928 og lát­ist árið 2005. Árið 1954 gift­ist James Albert Bond Janette Tacchi. Þau eign­uð­ust einn son. Í við­tali við The Tel­egraph sagði Janette Tacchi að hún hafi aldrei almenni­lega vitað við hvað bóndi sinn starf­aði en það hefði verið eitt­hvað ,,leyni­legt“. Hann hefði nær allan sinn starfs­aldur unnið fyrir breska her­inn.

James Bond á hvíta tjaldinu

Eins og fyrr var nefnt birt­ist sögu­per­sónan James Bond fyrst á hvíta tjald­inu árið 1962 í kvik­mynd­inni Dr. No. Skemmst er frá því að segja að myndin naut mik­illa vin­sælda og nú hafa verið gerðar á þriðja tug kvik­mynda, um njó­sn­ara hennar hátignar, James Bond. Sjö leik­arar hafa brugðið sér í hlut­verk njósn­ar­ans snjalla sem oft kemst í hann krapp­ann en kemur ætíð stand­andi niður. Margir James Bond aðdá­endur segja túlk­endur njósn­ar­ans sex tals­ins, telja David Niven (Casino Royale frá árinu 1967) ekki með.

Bond mynd­irnar, eins og þær eru kall­aðar, hafa reynst sann­kölluð pen­ingamask­ína og hverrar nýrrar myndar ætíð beðið með spenn­ingi. Sú nýjasta, No Time to Die, verður frum­sýnd síðar í haust. Hún átti að koma í kvik­mynda­húsin í apríl á þessu ári, en þótt njósn­ari hennar hátignar sigrist á flestu varð hann að beygja sig fyrir plág­unni miklu, kór­ónu­veirunni.

Sean Connery

Eins og fyrr var nefnt hafa sjö leik­arar túlkað James Bond 007. Í hugum margra er Sean Connery, sá sem fyrstur lék njósn­ar­ann, hinn eini sanni Bond. Í könn­unum, sem eru margar gegnum tíð­ina, er nafn Sean Connery ætíð það sem flestir nefna sem ,,hinn ekta Bond“. Ian Fleming hafði í við­tali sagt að í útliti væri per­sónan James Bond í sínum huga eins­konar blanda af sér og banda­ríska leik­ar­anum og tón­list­ar­mann­inum Hoagy Carmichael.

Þegar til stóð að gera kvik­mynd eftir sög­unni um Dr. No var Sean Connery ekki aug­ljós val­kostur í tit­il­hlut­verkið. Fram­leið­end­urnir, þeir Harry Saltzman og Albert R. Broccoli, leit­uðu fyrst til Cary Grant. Hann vildi ein­ungis gera samn­ing um þessa einu mynd, en fram­leið­end­urnir ætl­uðu sér strax í upp­hafi að gera fleiri myndir byggðar á bókum Ian Fleming um James Bond. Nokkrir fleiri leik­arar komu til greina en á end­anum varð hinn lítt þekkti Skoti, Sean Connery fyrir val­inu.

Fram­leið­end­urnir höfðu Ian Fleming með í ráðum varð­andi leik­ara­valið. Honum leist í byrjun ekki nema miðl­ungi vel á þennan hávaxna og fremur stirð­busa­lega Skota, eins og hann komst að orði. Þegar ást­kona Ian Fleming, sem hafði að hans áliti smekk fyrir karl­mönnum, sagði að „þessi Connery“ væri eins og snið­inn í hlut­verkið mælti hann með Sean Connery. Og eins og stundum er sagt „the rest is history“.

Sjálfur hefur Sean Connery sagt að Terence Young, leik­stjóri Dr. No, hafi eig­in­lega skapað per­són­una James Bond. Kennt sér rétta göngu­lagið, handa­hreyf­ingar, jafn­vel hvernig hann ætti að halda á hníf og gaffli. Sean Connery lék í fyrstu fimm Bond mynd­unum og síðar í tveimur til við­bótar. Þótt Bond mynd­irnar hafi gert Sean Connery að stór­stjörnu á himni kvik­mynd­anna féll honum aldrei við njósn­ar­ann. „Ég hata þennan Bond, myndi helst vilja kála honum“ sagði Sean Connery ein­hverju sinni við góð­vin sinn Michael Caine.

Ferill Sean Connery, sem varð níræður 25. ágúst síð­ast­lið­inn, verður ekki rak­inn frekar hér, kvik­mynd­irnar sem hann lék í eru um 80 tals­ins, auk fjöl­margra sjón­varps­mynda­flokka. Hann lýsti því yfir árið 2006 að hann væri hættur að leika og þegar hann var spurður hvers vegna sagð­ist hann vera búinn að upp­götva dásemdir eft­ir­launa­ár­anna. Og þegar spurt var hverjir væru helstu kostir hans sem leik­ara svar­aði hann „ómögu­legur í söng­leikjum, not­hæfur í sumu öðru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár