Innflytjendum heldur áfram að fjölga - Eru tæplega 30 þúsund

Hinn 1. jan­úar 2015 voru 29.192 inn­flytj­endur á Íslandi eða 8,9 pró­sent mann­fjöld­ans, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Hagstofa Íslands birti í dag. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 8,4 pró­sent lands­manna, eða 27.445 tals­ins.

Heldur fjölgun inn­flytj­enda því áfram, en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8,0 pró­sent mann­fjöld­ans uppí 8,9 pró­sent.

Annarri kyn­slóð inn­flytj­enda fjölg­aði einnig á milli ára, voru 3.534 í fyrra en 3.846 nú. „Sam­an­lagt er fyrsta og önnur kyn­slóð inn­flytj­enda tíu pró­sent af mann­fjöld­anum og hefur það hlut­fall aldrei verið hærra. Ein­stak­lingum með erlendan bak­grunn, öðrum en inn­flytj­endum, fjölg­aði einnig lít­il­lega milli ára, voru 6,5 pró­sent mann­fjöld­ans í fyrra en 6,6 pró­sent nú,“ segir í umfjöllun Hagstofu Íslands.

Inn­flytj­andi er ein­stak­lingur sem er fæddur erlendis og á for­eldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar hans og báðar ömmur. Önnur kyn­slóð inn­flytj­enda eru ein­stak­lingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga for­eldra sem báðir eru inn­flytj­endur. Fólk er talið hafa erlendan bak­grunn ef annað for­eldrið er erlent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár