Hvaða flokkar vilja breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu, hverjir verja það og hverjum er alveg sama?

Kannanir sýna skýrt að mik­ill meiri­hluti almenn­ings vill breyta fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu. Sá vilji end­ur­spegl­ast ekki jafn skýrt í afstöðu stjórn­mála­flokka þótt flestir þeirra hafi á stefnu­skrá sinni að breyta kerf­inu umtals­vert eða umbylta því.

Í síð­ustu viku var birt nið­ur­staða könn­unar sem Gallup gerði fyrir þrýsti­hóp­inn Þjóð­ar­eign. Í henni var fólk spurt hvort það styddi að mark­aðs­gjald væri greitt fyrir afnot af fiski­miðum þjóð­ar­innar. Nið­ur­staðan var sú að 77 pró­sent aðspurðra var fylgj­andi því og ein­ungis 7,1 pró­sent var and­vígt slíkri kerf­is­breyt­ingu. Afger­andi meiri­hluti kjós­enda allra flokka var fylgj­andi breyt­ing­unni þótt stuðn­ing­ur­inn væri minni hjá kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks en þeim sem ætla að kjósa aðra flokka.

Í annarri könnun, sem MMR gerði fyrir Öldu – félags um sjálf­bærni og lýð­ræði, og var birt í ágúst, 66 pró­sent lands­manna, tveir af hverjum þremur, vera óánægðir með núver­andi útfærslu á kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi. Þar af sögð­ust 38 pró­sent vera mjög óánægð með hana. Tæpur fimmt­ungur, 19 pró­sent aðspurðra, sagð­ist ekki hafa sterka skoðun á útfærsl­unni en ein­ungis 14 pró­sent voru ánægð með hana. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins reynd­ust þeir einu sem eru ánægð­ari með útfærslu kvóta­kerf­is­ins en óánægð­ari. Alls sögð­ust 42 pró­sent þeirra vera ánægðir með hana en 25 pró­sent eru óánægð.

Í núver­andi kerfi er var afla­hlut­deildum úthlutað án end­ur­gjalds snemma á níunda ára­tugnum á grund­velli veiði­reynslu. Síðar var útgerðum leyft að selja afla­heim­ild­irnar og frá árinu 1997 hafa þær getað veð­sett þær í bönkum fyrir lánum. Fyrir þessi afnot af nátt­úru­auð­lindum í eigu þjóðar greiða þær útgerðir sem halda á kvóta veiði­gjald. Það var alls 4,9 millj­arðar króna á síð­asta ári. Frá hruni til loka árs 2019 nam sam­an­lagður hagn­aður útgerða lands­ins 439 millj­örðum króna, þegar búið var að draga veiði­gjöld og aðrar álögur frá. Á sama tíma­bili greiddu útgerð­irnar um 70 millj­arða króna alls í veiði­gjöld.

Nú hafa allir þeir tíu stjórn­mála­flokkar sem bjóða fram til þings 25. sept­em­ber næst­kom­andi birt stefnu­skrár sínar í aðdrag­anda kosn­inga. Kjarninn bar saman áherslur þeirra í sjáv­ar­út­vegs­málum og afstöðu til kerf­is­breyt­inga á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu.

Þau sem vilja engar breytingar

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er allra flokka skýrastur um að verja eigi sjáv­ar­út­veg frá frek­ari gjald­heimtu og kerf­is­breyt­ingum.

Í stjórn­mála­á­lyktun flokks­ins, sem sam­þykkt var um síð­ustu helgi, segir að íslenskur sjáv­ar­út­vegur sé burða­rás í atvinnu­lífi um land allt og leið­andi í heim­inum hvað varðar sjálf­bærni, þróun og arð­semi. Atvinnu­greinin sé í dag­legri sam­keppni við erlendan rík­is­styrktan sjáv­ar­út­veg og því sé nauð­syn­legt „að gjald­heimta í sjáv­ar­út­vegi dragi ekki úr sam­keppn­is­hæfni á alþjóða­mark­aði og fjár­fest­ingu í grein­inni.“

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mæld­ist 24 pró­sent í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.

Sjálfstæðisflokkur Bjarna Benediktssonar vill verja núverandi kerfi á meðan að Framsóknarflokkur Sigurðar Inga Jóhannssonar minnist ekki á sjávarútveg í kosningastefnu sinni.
Sjálf­stæð­is­flokkur Bjarna Bene­dikts­sonar vill verja núver­andi kerfi á meðan að Fram­sókn­ar­flokkur Sigurðar Inga Jóhanns­sonar minn­ist ekki á sjáv­ar­út­veg í kosn­inga­stefnu sinni.

Þau sem vilja breytingar

Vinstri grænekki um stórar kerf­is­breyt­ingar í stefnu­yf­ir­lýs­ingu sinni en segja að þau sem nýti auð­lindir í þjóð­ar­eign, hvort sem það sé land, orka, sjáv­ar­auð­lindin eða annað, þurfi „að greiða sann­gjarnt gjald af þeirri nýt­ingu. Alþingi á að tryggja auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá ásamt skýru ákvæði um umhverfis- og nátt­úru­vernd.“

Ekki er til­greint hvernig eigi að ákveða „sann­gjarnt gjald“.

Í stjórn­mála­á­lyktun lands­fundar flokks­ins, sem fór fram um helg­ina, segir til við­bótar að halda þyrfti áfram að auka byggða­tengdar afla­heim­ildir, efla strand­veiðar, vinna gegn sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi og stuðla að fjöl­breytni í útgerð. „Meta þarf áhrif nýs fyr­ir­komu­lags afkomu­tengdra veiði­gjalda á lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki ann­ars vegar og stærri fyr­ir­tæki hins vegar.“

Í stefnu flokks­ins sem var sam­þykkt í maí er hins vegar fjallað meira um hvernig hann vill breyta stöðu mála. Þar segir að flokk­ur­inn vilji að fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið verði end­ur­skoðað með áherslu á að styrkja varnir gegn óhóf­legri sam­þjöppun með því að kvóta­þök séu for­taks­laust virt, girð­ingar haldi sér milli kerfaog að fram­tíð­ar­grund­völlur veiði­rétt­inda verði tíma­bund­inn og afmörkuð nýt­ing­ar­leyfi bundin til­teknum skil­yrðum. Á meðal þess sem felst í þessu er að aðilar sem telj­ast tengdir í skiln­ingi kvóta­þakanna ef eitt fyr­ir­tæki eða eig­endur þess eiga meira en fjórð­ung í öðru. Girða beri fyrir að stór­fyr­ir­tæki í afla­marks­kerf­inu geti keypt upp smærri fyr­ir­tæki og veiði­heim­ildir í krókafla­marks­kerf­inu og aukið þannig enn á sam­þjöppun veiði­heim­ilda.

Þá vilja Vinstri græn að verð­lagn­ing­ar­kerfi fisk­veiða, ekki síst í upp­sjáv­ar­veiðum, verði tekið til end­ur­skoð­unar til að tryggja rétt­látan hlut sjó­manna, hafn­ar­gjöld, útsvars­tekjur sveit­ar­fé­laga og skatt­tekjur rík­is­ins.

Fylgi Vinstri grænna mæld­ist með 12,2 pró­sent í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.

Þau sem setja ekki fram skýra stefnu

Mið­flokk­ur­inn hefur ekki sett fram neina stefnu í aðdrag­anda kosn­inga um breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu. Þá er ekk­ert minnst á sjáv­ar­út­vegm fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi eða gjald­töku vegna nýt­ingu auð­lind­ar­innar í stjórn­mála­á­lyktun flokks­ins sem sam­þykkt var á Lands­þingi hans um miðjan síð­asta mánuð.

En Mið­flokk­ur­inn hefur hins vegar þá yfir­lýstu stefnu að vilja greiða út auð­linda­gjald til allra full­orð­inna Íslend­inga 1. des­em­ber á hverju ári. Stjórn­völd eiga að fjár­magna þá greiðslu með auð­linda­gjöldum og stuðla að „hag­kvæmri auð­linda­nýt­ingu“. Fyrsta árið á greiðslan að vera 100 þús­und krónur á mann og með því við­miði er litið til þátta á borð við veiði­gjöld, hagnað Lands­virkj­unar og sölu los­un­ar­heim­ilda.

Í kosn­inga­stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar er ekki minnst á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið, veiði­gjöld eða ann­ars konar gjald­töku vegna nýt­ingu fisk­veiði­auð­lind­ar­innar. Í síð­ustu sam­þykktu ályktun Flokks­þings Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem er frá mars 2018, segir að sjáv­ar­út­vegur og land­bún­aður séu grunnatvinnu­vegir lands­ins og traustar stoðir í byggðum þess. „Grein­arnar þurfa ávallt að búa við sann­gjörn starfs­skil­yrði. Tryggja þarf sam­keppn­is­hæfni þeirra og leggja áherslu á að styðja við sjálf­bærni, nýsköpun og vöru­þróun.“

Sam­an­lagt fylgi Mið­flokks og Fram­sókn­ar­flokks mæld­ist 17,4 pró­sent í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.

Þau sem vilja kerfisbreytingu

Sam­fylk­ingin boðar í kosn­inga­stefnu sinni sókn gegn sér­hags­munum, hærri veiði­gjöld og end­ur­skoðun á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu með það að mark­miði að hámarka arð þjóð­ar­innar að sjáv­ar­auð­lind­inni. Í stefnu flokks­ins er þó ekki til­greint sér­stak­lega hvernig eigi að end­ur­skoða kerfið en sagt að Sam­fylk­ingin vilji álag á veiði­gjald sem leggst á tutt­ugu stærstu útgerðir lands­ins. Það á að auka tekjur um nokkra millj­arða króna.

Píratar líta á sjáv­ar­auð­lind­ina sem „sam­eig­in­lega og ævar­andi eign íslensku þjóð­ar­innar“. Því á eng­inn að geta fengið fisk­veiði­heim­ildir, eða rétt­indi tengd þeim, til eignar eða var­an­legra afnota og aldrei má selja þær eða veð­setja.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og félagar hennar í Viðreisn setja breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu ofarlega á blað í sinni kosningabaráttu.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og félagar hennar í Viðreisn setja breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu ofar­lega á blað í sinni kosn­inga­bar­áttu.

Píratar vilja að afla­heim­ildir séu boðnar upp til leigu á opnum mark­aði og tryggja að leigu­gjaldið renni að fullu til íslensku þjóð­ar­innar. „Píratar ætla að gera hand­færa­veiðar frjálsar og fyrsta skrefið verður að tryggja 48 veiði­daga á hvern hand­færa­bát. Við ætlum að láta allan afla fara upp­haf­lega í gegnum inn­lendan fisk­markað til að fá eðli­legt mark­aðs­verð á öllu sjáv­ar­fangi. Þannig er komið í veg fyrir að útgerðum með eigin vinnslu sé gert kleift að selja sjálfum sér sjáv­ar­fang með afslætti. Verð­lags­stofa skipta­verðs verður þar með óþörf og lögð niður og tvö­föld verð­lagn­ing leggst af, sjó­mönnum og lands­mönnum til heilla. Við ætlum að gera það refsi­vert að láta sjó­menn taka þátt í kaupum eða leigu útgerð­ar­fyr­ir­tækja á afla­heim­ildum.“

Viðreisn vill sann­gjarnar leik­reglur í sjáv­ar­út­vegi með því að hluti kvót­ans verði boð­inn upp á mark­aði á hverju ári. Í stefnu­skrá flokks­ins segir að í „fyll­ingu tím­ans verði þannig allar veiði­heim­ildir bundnar slíkum samn­ingum og útgerðin greiðir fyrir afnot af fiski­mið­unum í sam­ræmi við mark­aðs­verð­mæti afla­heim­ilda.“ Þegar stjórn­mála­á­lyktun flokks­ins er skoðuð kemur fram að útfærsla þess­ara áherslna eigi að vera þannig að „í stað veiði­leyfagjalds verði ákveð­inn hluti kvót­ans settur á markað á hverju ári og seld sem nýt­ing­ar­samn­ingar til ákveð­ins tíma. Með samn­ingum til 20-30 ára sé póli­tískri óvissu eytt og eign­ar­hald þjóð­ar­innar á auð­lind­inni stað­fest.“

Flokkur fólks­ins til­tekur í lista yfir for­gangs­mál sín að hann vilji að útgerðir greiði það sem hann kallar fullt verð fyrir aðgang að sjáv­ar­auð­lind­inni, vilja nýja nýt­inga­stefnu fiski­miða „þar sem auð­lindir okkar eru sam­eign þjóð­ar­innar en ekki einka­eign fárra útval­inna sægreifa“. Flokk­ur­inn vill stór­efla strand­veiðar og gera hand­færa­veiðar frjálsar og styður lög­fest­ingu ákvæðis um þjóð­ar­eign á auð­lindum í stjórn­ar­skrá.

Sam­an­lagt fylgi Sam­fylk­ingar, Pírata, Við­reisnar og Flokks fólks­ins mæld­ist 37,7 pró­sent í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.

Þeir sem vilja umbyltingu

Sós­í­alista­flokkur Íslands gengur flokka lengst í afstöðu til fis­veiði­stjórn­un­ar­mála. í tólfta til­boði hans til kjós­enda fyrir kom­andi kosn­ingar leggur flokk­ur­inn til að kvóta­kerfið verði lagt niður og að byggð verði „rétt­lát­ari umgjörð utan um fisk­veiðar og vinnslu.“ Flokk­ur­inn boðar að stærstu útgerð­ar­fé­lögum lands­ins verði skipt upp bæði þversum og langsum ef hann kom­ist til valda. Einnig segir flokk­ur­inn að veiði­gjöld, sem inn­heimt verði við löndun, geti skilað hinu opin­bera 35 millj­örðum króna.

Sós­í­alistar segj­ast einnig ætla að gera kröfu um að allur afli fari á markað og að veiði­gjöld verði inn­heimt við löndun, „á jafn ein­faldan máta og virð­is­auka­skattur“. Þá vill flokk­ur­inn að sett verði upp „fiski­þing í hverjum lands­hluta þar sem sjó­menn, fisk­verka­fólk og almenn­ingur allur sest niður og mótar fisk­veiði­stefn­una til lengri tíma.“ Til að „losna við yfir­gang útgerða og ann­arra hags­muna­að­ila“ færi best á því að nota slembival til að velja full­trúa á þingin, að stærstu eða öllu leyti.

Fylgi Sós­í­alista­flokks Íslands mæld­ist 8,1 pró­sent í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.


Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn vill að hand­færa­veiðar í strand­veiði­kerfi verði frjálsar fyrir báta tíu metra að lengd og styttri, leyfa á sölu á fiski beint frá báti og að mak­ríl­veiðar verði frjálsar innan tíu sjó­mílna fyrir smá­báta að 15 metrum.

Flokk­ur­inn vill enn fremur að stór­út­gerð­ar­fyr­ir­tæki og tengd fyr­ir­tæki geti ekki átt í öðrum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum og rofið kvóta­þakið á þann hátt, en þakið er 20 pró­sent á ein­stakar fisk­teg­undir og tólf pró­sent á heild­ar­afla. Þá vill hann að útgerðir greiði 20 pró­sent tekju­skatt af þeim hlunn­indum sem útgerð­inni er afhent árlega og að virð­is­auka­skattur verði settur á leigu­verð kvóta.

Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn er ekki með mæl­an­legt fylgi sam­kvæmt kosn­inga­spá Kjarnans.

Frétta­skýr­ingin var upp­færð kl. 10:50 með við­bót­ar­upp­lýs­ingum um stefnu Vinstri grænna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár