Byltingin sem mun eyða milljónum starfa

Verð­mið­inn á Amazon hefur hækkað um 15 millj­arða Banda­ríkja­dala á tveimur dögum eftir að fyr­ir­tækið kynnti bylt­ing­ar­kenndar nýj­ungar í smá­sölu­geir­anum. Miklar breyt­ingar eru framundan vegna inn­leið­ingar gervi­greindar í atvinnu­lífið í heim­inum.

Jeff Bezos, stofn­andi og for­stjóri Amazon, hagn­að­ist um tvo millj­arða Banda­ríkja­dala, um 220 millj­arða króna, á tveimur dögum vegna hækk­unar á hluta­bréfum fyr­ir­tæk­is­ins í kjöl­far þess að Amazon kynnti nýja tækni fyrir versl­anir fyr­ir­tæk­is­ins sem opna munu fyrir almenn­ing í byrjun næsta árs. Ein búð hefur þegar verið opnuð fyrir valda starfs­menn Amazon inn á höf­uð­stöðv­ar­svæði fyr­ir­tæk­is­ins í Seattle.

Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins hækk­aði um 5,3 pró­sent í gær og 2,97 á mánu­dag. Við lokun markað í gær var fyr­ir­tækið metið á 372 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 41 þús­und millj­örðum króna. Ástæðan er fyrst og fremst rakin til þess að fyr­ir­tækið hefur nú end­an­lega þróað hug­búnað sem gerir neyt­endum mögu­legt að labba inn í búð, ná í vör­urnar sem það vill og fara svo út án þess að fara í bið­röð eða stöðva við afgreiðslu­kassa. Þjón­ustan nefn­ist Amazon go og þurfa not­endur hennar ein­ungis að vera með Amazon go app í sím­anum til þess að geta nýtt hana. Háþróuð gervi­greind tölvu­heims­ins sér um afgang­inn.

Gríðarlegur vöxtur

Amazon hefur unnið að tækni­þró­un­inni í fjögur ár en mesta vaxt­ar­skeið í sögu fyr­ir­tæk­is­ins er nú framundan. Til marks um hversu vöxt­ur­inn verður mik­ill, þá hyggst Amazon ráða 35 þús­und nýja starfs­menn á Seattle-svæð­inu einu, fyrir árs­lok 2020, en starfs­menn Amazon á svæð­inu eru nú 34 þús­und. Þá greindi Wall Street Journa frá því í gær að Amazon sé þegar búið að und­ir­búa opnun tvö þús­und nýrra versl­ana sem styðj­ast við Amazon go hug­bún­að­inn í Banda­ríkj­unum, og síðan enn fleiri versl­anir víða um heim. Fyri­tækið ætlar sér að herða á sam­keppni sinni við smá­söluris­ann WalMart sem hefur mesta mark­aðs­hlut­deild allra smá­sölu­fyr­ir­tækja í heim­inum. Amazon er hins vegar leið­andi í net­verslun og þar hefur fyr­ir­tækið náð að þróa starf­semi sína inn á ýmsar brautir. Ferskvöru­sala fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið stór­efld og er fyr­ir­tækið nú með stór­tækar hug­myndir um að þróa enn frekar heild­sölu fyrir ferskvöru.

Bezos er við stýrið

Bezos sjálfur á 17 pró­sent eign­ar­hlut í Amazon en á þessu ári hefur hann í tvígang selt eina milljón hluta og fengið í hreinan hagnað út úr því 1.428 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur tæp­lega 170 millj­örðum íslenskra króna. Lang­sam­lega stærstur hluti eigna hans er bund­inn við hlut­inn í Amazon, en hann á einnig útgáfu­fé­lag Washington Post, geim­ferð­ar­fyr­ir­tækið Blue Origin og eign­ar­hluti í fjöl­mörgum nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum á Seattle-svæð­inu sér­stak­lega.

Bezos var fimmti rík­asti ein­stak­lingur heims á lista Forbes á þessu ári með eignir upp á 45,2 millj­arða Banda­ríkja­dala. Eign­ar­virðið hefur hins vegar hækkað mikið síðan og eru þær nú metnar á tæp­lega 70 millj­arða Banda­ríkja­dala. Það gerir hann að næst rík­asta manni heims á eftir Bill Gates, stofn­anda Microsoft, en báðir eru þeir búsettir á Seattle-svæð­inu og hafa byggt þar upp fjár­fest­ing­ar­verk­efni sín.

Störfin hverfa

Þó tækni­bylt­ing­unni sem snýr að verslun, sem Amazon hefur nú kynnt, hafi verið vel tekið af fjár­festum á mark­aði í Banda­ríkj­unum þá gæti hún verið upp­hafi af sárs­auka­fullu ferli fyrir starfs­fólk versl­ana víða um heim. Í Banda­ríkj­unum einum eru um 3,5 millj­ónir starfa við afgreiðslu í versl­unum. Alveg eins og gerð­ist þegar strik­a­merkin komu fram, þá gæti tæknin leitt til mik­illar hag­ræð­ingar í starfs­manna­haldi fyrir fyr­ir­tæki í smá­sölu. Í full­komnum heimi gæti það einnig leitt til lægra verð­lags, en vandi er þó um slíkt að spá. Þessi nýi hug­bún­aður Amazon, sem byggir á gervi­greind­ar­tækni, markar tíma­mót.

Sjálfur hefur Bezos talað um að gervi­greind muni marka djúp spor í þróun sam­fé­laga heims­ins á næsta ára­tug, og lét hann þau orð falla 1. júní síð­ast­lið­inn að vís­inda­skáld­skap­ur­inn myndi lifna við í raun­veru­leik­anum á næstu miss­erum. Hann sagði næstu skrefin sem framundan væru - þar á meðal áherslu á tölvu­tækni sem manns­röddin stýrir og sjálf­stýr­andi búnað í far­ar­tækjum - myndu breyta öllu og að þau væru „risa­vaxin” (gigantic). „Það er erfitt að nota of stór orð um það hversu mikil áhrif gervi­greind mun hafa líf okkar á næstu 20 árum. Þetta er stórt,“ sagði hann á ráð­stefnu í Kali­forníu 1. júní. Óhætt er að segja að fyrstu stóru spilin sem Amazon hefur sýnt á, þegar kemur að breyttum versl­un­ar­háttum, séu athygl­is­verð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár