Flýti- og umferðargjöldum sparkað fram yfir sumarfrí

Ekkert frum­varp um flýti- og umferð­ar­gjöld á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun koma frá for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir þing­lok í vor. Fleiri frum­vörp sem snerta breytta gjald­töku af umferð hafa verið felld af þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar.

Samgöngumál
Sam­göngu­mál Fjögur frum­vörp sem snerta sam­göngu­mál frá ráð­herr­unum tveimur hafa verið felld út af þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. Verk­efna­stofa sem fjallar m.a. um gjöld af umferð hefur nýlega verið sett á lagg­irnar til að útfæra til­lögur í sam­ráði við ráðu­neytin tvö. Mynd: Davíð Þór

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra mun ekki leggja fram frum­varp sem myndi veita rík­inu heim­ild til þess að leggja á svokölluð flýti- og umferð­ar­gjöld á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á þingi fyrir þing­lok, né heldur frum­varp um breytta gjald­töku vegna notk­unar bif­reiða, sem boðað hafði verið. 

Þetta er meðal þess sem sjá má í skjali sem birt hefur verið á vef Stjórn­ar­ráðs­ins og inni­heldur nýj­ustu breyt­ing­arnar sem gerðar hafa verið á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar, en fjallað var um upp­færða þing­mála­skrá stjórn­ar­innar á rík­is­stjórn­ar­fundi fyrr í vik­unni.

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra mun heldur ekki leggja fram frum­varp um heim­ild til að stofna opin­bert hluta­fé­lag um upp­bygg­ingu og rekstur sam­göngu­inn­viða og ekki heldur frum­varp til laga um almenn­ings­sam­göngur, en bæði frum­vörpin höfðu áður verið boðuð á þessum þing­vetri, sem senn líður undir lok.

Verkefnastofa að störfum

Ráðu­neyti þeirra Bjarna og Sigurðar Inga settu snemma á þessu ári á fót verk­efna­stofu sem hefur það hlut­verk að móta til­lögur um nýtt fyr­ir­komu­lag tekna af vega­sam­göngum til fram­tíðar, meðal ann­ars um flýti- og umferð­ar­gjöldin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þau gjöld eru lyk­il­þáttur í fjár­mögnun þeirra miklu fram­kvæmda sem til stendur að ráð­ast í sam­kvæmt sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins frá 2019. 

Opinbera hluta­fé­lagið Betri sam­göngur, sem stofnað var til að halda utan um fjár­mögnun verk­efna sam­göngusátt­mál­ans, hefur lagt fram hug­myndir að umferð­ar­gjöldum til fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins og sveit­ar­fé­laga höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Fjallað var um þær til­lögur sem Betri sam­göngur komu fram með í Kjarn­anum fyrir rúmu ári síðan.

Frumvarp um þessi nýju gjöld hefur svo verið á leið­inni og var lýst í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar með þeim orðum að stefnt yrði að gild­is­töku laga sem heim­il­uðu gjald­töku 1. jan­úar 2024. Það gæti enn gerst, en ljóst er að frum­varpið mun ekki líta dags­ins ljós fyrir sum­arið. 

Árni Mathiesen vill sjá umferðargjöldin sem fyrst

Betri sam­göngur hafa verið áfram um að stjórn­völd leggi þessi gjöld á og ítrek­aði Árni Mathiesen, stjórn­ar­form­maður félags­ins og fyrr­ver­andi ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, það í nýlegri stjórn­ar­skýrslu opin­bera hluta­fé­lags­ins.

Stjórn­ar­for­maðurÁrni Mathiesen er stjórn­ar­for­maður Betri sam­gangna, opin­bers hluta­fé­lags í eigu rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þar skrif­aði Árni að í mörgum löndum í kringum okkur, m.a. Svíþjóð, Noregi og Bret­landi, hefðu flýti- og umferð­ar­gjöld verið sett á til að fjár­magna fjöl­breyttar sam­göngu­fram­kvæmdir, bæta umhverfi og draga úr umferð­artöfum. 

„Yfir­leitt eru þau útfærð þannig að mið­svæði í borgum er skil­greint og sjálf­virkur bún­aður skráir þau öku­tæki sem aka inn eða út af svæð­inu. Eigendum þeirra er svo send rukkun fyrir það. Mik­il­vægt er að útfærsla sé með þeim hætti að gjöldin legg­ist ekki um of á tekju­lága eða íbúa í til­teknum hlutum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins frekar en öðrum. Það er Alþingis að ákveða hvort farið verður í gjald­tök­una, og hvernig hún verður útfærð, eða hvort að þessi þáttur sátt­mál­ans verður fjár­magn­aður af fjár­lögum. Mér finnst hins vegar sann­gjarnt að þeir sem nota umferð­ar­mann­virki, og valda umferð­artöfum, greiði fyrir það frekar en hinn almenni skatt­greið­andi,“ skrif­aði Árni og hvatti ríkið til að leggja þessi gjöld á „sem fyrst“. 

Það sagð­ist Árni telja sann­gjarnt og tók dæmi: „Af hverju ætti Árni Sig­fús­son, íbúi í Reykja­nesbæ, að greiða hærri skatta en ella vegna umferð­ar­mann­virkja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem Árni Mathiesen, íbúi í Hafn­ar­firði, er að nota og umferð­ar­tafa sem hann veldur.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GKB
    Guðmundur Karl Björnsson skrifaði
    Mögnuð mynd af þeim félögum. Við fyrstu sýn virðist hægra eyra Sigurðar vera of hátt sett og aftarlega á höfðinu, en svo er engu líkara en að hann c að notast við eyra annars manns sem á leið framhjá. Báðir bregðast þeir eins við einhverju sem þeir sjá og heyra útundan sér... e.t.v. einhverju varðandi innheimtu veggjalda. Samræmd samsærisbros á báðum fésum.
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Öll frestun gefur stjórninni möguleika að halda hryggluhlóðunum, áður en !?!?!?
    Vonandi sem fyrst þögn og kosningar!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár