Facebook breytir nafninu í Meta

Tækni­fyr­ir­tækið Facebook hefur fengið nýtt nafn. Sam­fé­lags­mið­il­inn sem fyr­ir­tækið hefur verið kennt við hingað til mun þó áfram heita sama nafni og hann hefur alltaf heitið.

Mark Zuckerberg kynnti nýja nafnið í dag.
Mark Zuckerberg kynnti nýja nafnið í dag. Mynd: Skjáskot

Facebook, eitt verð­mætasta fyr­ir­tæki í heimi, hefur breytt nafni sínu í Meta. Mark Zuckerberg, for­stjóri og stofn­andi Facebook, til­kynnti þetta í dag á við­burði á vegum fyr­ir­tæk­is­ins.

Zuckerberg sagði að Facebook-nafnið fang­aði ekki lengur allt sem fyr­ir­tækið gerir og heildin væri of tengd við eina vöru, þ.e. Facebook sam­fé­lags­mið­il­inn. Hann von­ast til þess að með tíð og tíma verði litið á Meta sem svo­kallað „meta­verse“ fyr­ir­tæki.

Hagn­aður Face­book á þriðja árs­fjórð­ungi nam níu millj­örðum doll­ara, eða sem nemur rúmum 1.166 millj­örðum króna. Þá hefur not­endum sam­fé­lags­mið­ils­ins fjölgað um sex pró­sent síð­ustu tólf mán­uði og eru nú 2,9 millj­arð­ar. Hagn­að­ur­inn á sama tíma í fyrra var 7,8 millj­arðar doll­ar­ar, eða sem nemur rúmum 1.010 millj­örðum króna.

Samspil raunveruleika og sýndarveruleika

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að til stæði að til­kynna nafna­breyt­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á árlegri ráð­stefnu Facebook, Connect, sem fór fram í dag, 28. októ­ber. Sam­fé­lags­mið­ill­inn Facebook eins og við þekkjum hann mun þó ekki breyt­ast mik­ið. Nafn fyr­ir­tæk­is­ins, Facebook, er það sem breyt­ist en sam­fé­lags­mið­ill­inn Facebook fer undir hatt fyr­ir­tæk­is­ins líkt og Instagram, Whatsapp og Oculus, smá­for­rit og sam­fé­lags­miðlar sem eru í eigu Facebook.

[adspot]Í þeirri umfjöllun var líka reynt að útskýra hvar þetta svo­kall­aða „meta­verse“ er, en í við­tali í júlí sagði Zuckerberg að á næstu árum muni almenn­ingur hætta að líta á Facebook sem sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tæki og þess í stað líta á Facebook sem meta­verse-­fyr­ir­tæki.

Hug­takið Meta­verse á rætur sínar að rekja í vís­inda­skáld­sög­una Snow Crash eftir Neal Steph­en­sen sem kom út árið 1992. Meta­verse vísar í sam­spil raun­veru­leika og sýnd­ar­veru­leika. Facebook sér meta­verse fyrir sér sem ver­öld á net­inu þar sem not­endum er nán­ast ekk­ert óvið­kom­andi. Í meta­verse er hægt að sinna vinnu, leikjum og sam­skiptum í sýnd­ar­veru­leika. „Meta­verse“ „verður það sem skiptir máli, og ég held að þetta verði stór hluti af þróun inter­nets­ins eftir að það varð aðgengi­legt í sím­um,“ sagði Zuckerberg í sam­tali við The Verge í sum­ar.

[links]Þró­unin er haf­in. Í dag starfa um 10 þús­und starfs­menn Facebook að upp­bygg­ingu sem snýr að „meta­verse“, meðal ann­ars við þróun og hönnun á sýnd­ar­veru­leika­gler­augum sem verða ómissandi hluti af „meta­verse“.

Zuckerberg er því sann­færður um að gler­augun verði jafn ómissandi og snjall­símar áður en langt um líð­ur.

Ein helsta áskorun Facebook verður án efa að sann­færa not­endur um ágæti „meta­verse“, hug­taks sem hefur í raun ekki fengið merk­ingu meðal almenn­ings enn sem komið er.

Það gæti þó breyst nú, þegar þetta risa­stóra fyr­ir­tæki, Facebook, hefur breytt nafn­inu sínu í Meta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár