Yfir þúsund milljarða króna hagnaður í skugga uppljóstrana og fækkunar yngri notenda

Hagnaður Facebook var meiri en búist var við á þriðja árs­fjórð­ungi. Á sama tíma fækkar not­endum í yngsta ald­urs­hópnum og Facebook hyggst „end­ur­heimta týndu kyn­slóð­ina“.

Hagnaður Facebook á þriðja ársfjórðungi var 9 milljarðar dollarar, eða sem nemur rúmum 1.166 milljörðum króna.
Hagnaður Facebook á þriðja árs­fjórð­ungi var 9 millj­arðar doll­arar, eða sem nemur rúmum 1.166 millj­örðum króna. Mynd: EPA

Hagnaður Facebook á þriðja árs­fjórð­ungi nam níu millj­örðum doll­ara, eða sem nemur rúmum 1.166 millj­örðum króna. Þá hefur not­endum sam­fé­lags­mið­ils­ins fjölgað um sex pró­sent síð­ustu tólf mán­uði og eru nú 2,9 millj­arðar. Hagn­að­ur­inn á sama tíma í fyrra var 7,8 millj­arðar doll­arar, eða sem nemur rúmum 1.010 millj­örðum króna, og kemur þó nokkuð á óvart að hagn­að­ur­inn í ár sé hærri þar sem sam­fé­lags­miðl­aris­inn hefur mætt ýmsum hindr­unum upp á síðkastið. Upphæðin kemur einnig á óvart í ljósi bún­aðs í nýrri upp­færslu Apple stýri­kerfis sem gerir það erf­ið­ara að verkum að beina sér­stökum aug­lýs­ingum að til­teknum hópi not­ena.

Frances Haugen, fyrr­ver­andi starfs­maður Facebook, steig fram sem upp­ljóstr­ari í byrjun mán­að­ar­ins. Gögn sem hún lét af hendi til Wall Street Journal, og kölluð hafa verið Facebook-skjölin, gefa til kynna að Face­book leggi meiri áherslu á gróða frekar en öryggi not­enda sinna og hafi hylmt yfir sönn­un­ar­gögn um dreif­ingu fals­frétta og áróð­urs í gróða­skyni. Mark Zuckerberg, for­stjóri Facebook, tjáði fjár­festum á mánu­dag, þegar árs­hluta­upp­gjörið var kynnt, að umfjall­anir um fyr­ir­tækið í kjöl­far upp­ljóstrana Haugen hafi fyrst og fremst dregið fram falska mynd af fyr­ir­tæk­inu.

[adspot] Auk gagna­lek­ans hafa bil­anir og ítrek­aðar vitna­leiðslur Zucker­berg og ann­arra starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins fyrir þing­nefnd öld­unga­deild­ar­þings Banda­ríkj­anna veikt stöðu Facebook. Þá hafa fjöl­miðlar vest­an­hafs ítrekað gagn­rýnt Facebook fyrir að leyfa hat­urs­orð­ræðu að við­gang­ast á miðl­inum.

[links]Nú er staðan sú að Face­book vill ekki lengur vera þekkt fyrst og fremst sem sam­fé­lags­mið­ill og af þeirri nei­kvæðu athygli sem mið­ill­inn hefur fengið heldur vill fyr­ir­tækið ein­blína á fram­tíð­ina og hyggst til­kynna um nafn­breyt­ingu á fyr­ir­tæk­inu á árlegri ráð­stefnu Facebook, sem ber yfir­skrift­ina Collect, á fimmtu­dag.

Yngstu notendunum gæti fækkað um tæpan helming innan tveggja ára

Þrátt fyrir að not­endum Facebook hafi fjölgað heilt á litið hefur tán­ingum og not­endum á þrí­t­gusaldri fækkað til muna. Þetta er þróun sem Facebook hyggst sporna gegn.

Notendum í yngsta ald­urs­hópnum, 13-19 ára, hefur fækkað um 13 pró­sent frá 2019 og gera spár ráð fyrir að þeim fækki um allt að 45 pró­sent á næstu tveimur árum. Upp­lýs­ing­arnar koma frá rann­sak­endum Facebook og voru settar fram í minn­is­blaði fyrr á þessu ári. Þar kemur einnig fram að því yngri sem not­and­inn er, því ólík­legri er hann til að nota Facebook að stað­aldri.

Í Facebook-skjöl­unum má finna eitt og annað sem snýr að áhrifum mið­ils­ins á ungt fólk, meðal ann­ars skað­leg áhrif Instagram á ungar stúlkur hvað varðar lík­ams­í­mynd og umdeildar til­raunir Face­book til að ná til ung­menna. Ljóst er að Facebook á verð­ugt verk­efni fyrir höndum, ætli mið­ill­inn sér að „end­ur­heimta týndu kyn­slóð­ina“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár