Vandræðagangur og veikleikar Facebook

Facebook er í vand­ræðum. Þrír miðlar sam­fé­lags­miðl­aris­ans lágu niðri um tíma á mánu­dag. Bilunin kom á versta tíma, aðeins nokkrum dögum eftir gagna­leka þar sem fram kemur að Facebook hafi afvega­leitt almenn­ing í gróða­skyni.

Frances Haugen, fyrrverandi vörustjóri hjá Facebook.
Frances Haugen, fyrr­ver­andi vöru­stjóri hjá Facebook. Mynd: Skjáskot/60 minutes

Síðasta vika var lík­lega með þeim þyngri hjá Mark Zuckerberg, for­stjóra og stofn­anda Facebook, og öðrum stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins eftir að Facebook-skjölin svoköll­uðu vörp­uðu ljósi á erf­ið­leika sam­fé­lags­miðla­veld­is­ins innan frá. En þá var ekki allt upp talið. Á mánu­dag stig­mögn­uð­ust vand­ræðin þegar þrír miðlar fyr­ir­tæk­is­ins, Facebook, Instagram og Whatsapp, lágu niðri í um sex klukku­stundir.

Á meðan sumir not­endur tóku Facebook-frí­inu fagn­andi færðu aðrir sig yfir á miðla á borð við Twitter, meðal ann­ars tækni­stjóri Facebook, þar sem hann baðst afsök­unar á þeim óþæg­indum sem bil­unin olli. Mark Zuckerberg, for­stjóri Facebook, fór hins vegar þá leið að setja inn stutta afsök­un­ar­beiðni á Facebook þegar miðl­arnir voru aftur komnir í loftið.

Ástæða bil­un­ar­innar, að sögn Facebook, eru breyt­ingar sem gerðar voru á still­ingu net­beina sem ollu því að þjón­usta miðl­anna þriggja lá niðri. Einungis var hægt að leysa vand­ann hand­virkt og því þurftu tækni­menn á vegum Facebook að gera sér ferð í gagna­ver Facebook í Santa Clara í Kali­forníu til að kom­ast að rót vand­ans. Síðasta bilun af þessu tagi varð hjá Facebook fyrir um tveimur árum. Þá lá mið­ill­inn lengur niðri, í um 14 klukku­stundir, en hafði áhrif á lít­inn hluta not­enda í stað um þrjá og hálfan millj­arð not­enda líkt og raunin var á mánu­dag. Bilunin hafði einnig áhrif á hluta­bréf Facebook sem lækk­uðu um allt að 4,9% á hluta­bréfa­mörk­uðum í Banda­ríkj­unum á meðan miðl­arnir lágu niðri.

Gróði umfram öryggi notenda

Bilunin varð í miðjum óveð­urs­stormi sem Facebook er statt í þessa dag­ana eftir að Wall Street Journal birt­ingu Facebook-skjal­anna. Umfjöll­unin er byggð á gögnum sem Frances Haugen, fyrr­ver­andi vöru­stjóri hjá Facebook, veitti miðl­inum og skil­aði níu frétta­skýr­ingum. Haugen steig fram sem upp­ljóstr­ari í við­tali í frétta­skýr­inga­þætt­inum 60 mín­útum á sunnu­dag. Þar full­yrðir hún að Facebook leggi meiri áherslu á gróða frekar en öryggi not­enda sinna og hafi hylmt yfir sönn­un­ar­gögn um dreif­ingu fals­frétta og áróð­urs í gróða­skyni. Í skjöl­unum má einnig finna upp­lýs­ingar um hvernig Facebook flokkar not­endur sína í „elítu“ og hefð­bundna, skað­leg áhrif Instagram á ungar stúlkur hvað varðar lík­ams­í­mynd, sem og umdeildar til­raunir Facebook til að ná til ung­menna, svo dæmi séu tekin.

Haugen líkir stöð­unni hjá Facebook við fyrri sam­fé­lags­mál þar sem hið opin­bera hefur gripið í taumana. „Þegar við átt­uðum okkur á því að tóbaks­fyr­ir­tækin voru að fela skað­ann sem þau ollu greip ríkið til aðgerða. Þegar við átt­uðum okkur á því að bílar eru örugg­ari með sæt­is­beltum greip ríkið inn í. Og í dag er rík­is­stjórnin að beita sér gegn fyr­ir­tækjum sem földu sönn­un­ar­gögn um ópíóða. Ég grát­bið ykkur um að gera það sama í þessu til­viki,“ sagði Haugen. Að hennar mati munu leið­togar Facebook ekki grípa til aðgerða þar sem „gíf­ur­legur gróði sé mik­il­væg­ari en fólkið.“

Tilgangurinn ekki að koma höggi á Facebook

Til­gangur Haugen, að eigin sögn, er ekki að koma höggi á Facebook heldur vill hún breyta fyr­ir­tæk­inu til hins betra. Hún starf­aði hjá Facebook um tveggja ára skeið en sagði starfi sínu lausu í maí. Haugen er með mikla reynslu úr Kís­ildalnum en hún starf­aði lengst af hjá Google við ýmis verk­efni á árunum 2006 til 2014. Þá hefur hún einnig unnið hjá Pinter­est og Yelp.

[adspot]Haugen hóf störf hjá Facebook í þeim til­gangi að hafa eft­ir­lit með og koma í veg fyrir afskipti af kosn­ingum í gegnum miðla Facebook. Hún hóf störf hjá sam­fé­lags­miðl­aris­anum með miklar vænt­ingar þar sem hún sá fyrir sér að vinna í ýmsum veik­leikum fyr­ir­tæk­is­ins. Ekki leið á löngu þar til hún varð efins um að teymi hennar myndi ná til­ætl­uðum árangri og fannst henni sífellt skýrar koma í ljós hvar áherslur Facebook liggja, það er að útvíkka fyr­ir­tækið og auka notkun á öllum sviðum, í stað þess að rann­saka veik­leika fyr­ir­tæk­is­ins og reyna að betrumbæta þá.

Haugen fann sig knúna til að láta fólk utan fyr­ir­tæk­is­ins, þar á meðal lög­gjafa of eft­ir­lits­að­ila, vita um ann­marka Facebook og þau áhrif sem geta fylgt í kjöl­farið. Áður en hún sagði skilið við Facebook í vor afrit­aði hún rann­sóknir sem fyr­ir­tækið vann sjálft á eigin efni með til­liti til upp­lýs­inga­óreiðu og hat­urs­orð­ræðu. Þessar rann­sóknir eru uppi­staðan í Facebook-skjöl­unum sem nú hafa verið birt.

„Ef fólk hatar Facebook meira vegna þess sem ég hef gert, þá hef ég brugð­ist,“ sagði Haugen meðal ann­ars í við­tal­inu í 60 mín­útum. „Ég trúi á sann­leik­ann og afleið­ingar — við verðum að við­ur­kenna raun­veru­leik­ann. Fyrsta skrefið í því ferli er að leggja fram gögn.“

Of snemmt að spá fyrir um endalokin

Atburða­rás síð­ustu daga er síður en svo fyrsti skandall­inn sem skekur Facebook. Það liggur ljóst fyrir að vand­inn sem fyr­ir­tækið stendur frammi fyrir er gríð­ar­legur, en er vand­inn ef til vill dýpri en nokkurn hefði grunað?

Blaða­maður New York Times sem kafar ofan í þá stöðu sem blasir við Facebook þessa dag­ana segir að líta megi á vanda Facebook sem tví­þættan. Annars vegar felst hann í of mörgum not­endum og hins vegar í vand­anum sem fylgir því að hafa of fáa not­endur sem fyr­ir­tækið vill í raun ná til. Unga fólkið. Fólkið sem setur tón­inn og er mót­tæki­legt fyrir hinum ýmsu aug­lýs­ingum.

Þrátt fyrir vand­ræða­gang innan veggja Facebook upp á síðkastið er hins vegar ótíma­bært að spá fyrir um enda­lok sam­fé­lags­miðl­aris­ans. Hluta­bréf lækk­uðu vissu­lega um tíma vegna bil­un­ar­innar en und­an­farið ár hafa hluta­bréfin hækkað um 30%, aug­lýs­inga­tekjur eru enn að aukast og notkun á ein­staka miðlum á vegum Facebook hefur auk­ist í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Þá má ekki gleyma því að Facebook er enn að ná auk­inni útbreiðslu utan Banda­ríkj­anna og gæti haldið velli þar þó hnignun verða á banda­rískum mark­aði.

Frekari áhrif og við­brögð við Facebook-skjöl­unum eiga þó eftir að koma í ljós. Haugen bar vitni fyrir þing­nefnd öld­unga­deild­ar­þings Banda­ríkj­anna í gær. Í opn­unará­varpi sínu sagði hún ákvarð­anir teknar af stjórn­endum Facebook hafa slæm áhrif á börn, almanna­ör­yggi og lýð­ræði. „Svo lengi sem Facebook starfar í skugg­anum með því að fela eigin rann­sóknir fyrir almenn­ingi er það óábyrgt. Einungis þegar hvat­arnir breyt­ast mun Facebook breyt­ast,“ sagði Haugen við skýrslu­tök­una í gær, sem stóð yfir í um þrjár og hálfa klukku­stund.

Zuckerberg birti nýja færslu á Facebook í nótt þar sem hann hafnar öllum ásök­unum Haugen. Hann segir Facebook ekki ala á sundr­ungu, skaði ekki börn og hafnar því að það þurfi að koma böndum á sam­fé­lags­mið­il­inn. Ekkert sé til í því að Facebook setji hagnað ofar öryggi not­enda sinna.

Hávær krafa um hertari lagaumgjörð

Richard Blu­ment­hal, öld­unga­deild­ar­þing­maður demókrata, for­maður nefnd­ar­innar sem fór fyrir skýrslu­tök­unni, óskaði eftir við­veru Zuckerberg á fundi nefnd­ar­innar í gær. Að mati þing­manns­ins er Facebook „sið­ferð­is­lega gjald­þrota“. Zuckerberg varð ekki við beiðn­inni en fyr­ir­tækið bendir á í yfir­lýs­ingu að for­stjór­inn hefur komið fyrir nefndir öld­unga­deild­ar­þings­ins sjö sinnum á síð­ustu fjórum árum og að stjórn­endur Facebook hafi borið vitni 30 sinnum. Fyr­ir­tækið seg­ist hafa gripið til ýmis konar aðgerða, sem hefur haft áhrif á arð­semi þess, í þeim til­gangi að vernda öryggi og frið­helgi not­enda Facebook.

Krafan um hert­ari lagaum­gjörð í tækni­geir­anum er hávær eftir gagna­lek­ann og var sömu­leiðis skýr krafa Haugen við skýrslu­tök­una í gær. Haugen er auk þess hvergi nærri hætt og er hún til­búin í frek­ari sam­ræður við lög­gjafa um fram­tíð laga­setn­ingar á tækni­fyr­ir­tæki á borð við Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár