Facebook hugar að nýrri ímynd og skiptir um nafn

Facebook ætlar að skipta um nafn í næstu viku í takt við áherslu­breyt­ingar fyr­ir­tæk­is­ins í átt að svoköll­uðu „meta­verse“, hug­taki sem Mark Zuckerberg, for­stjóri Facebook, hefur kallað næstu kyn­slóð inter­nets­ins.

Áherslubreytingar eru fram undan hjá Mark Zuckerberg og Facebook, sem vill ekki lengur vera fyrst og fremst þekkt sem samféllagsmiðill.
Áherslu­breyt­ingar eru fram undan hjá Mark Zuckerberg og Facebook, sem vill ekki lengur vera fyrst og fremst þekkt sem sam­féllags­mið­ill. Mynd: EPA

Mark Zuckerberg, for­stjóri Facebook, hyggst til­kynna nafna­breyt­ingu sam­fé­lags­mið­ils­ins á árlegri ráð­stefnu Facebook, Connect, sem fer fram á fimmtu­dag­inn í næstu viku, 28. októ­ber. Nýja nafnið gæti þó verið afhjúpað fyrr sam­kvæmt heim­ildum tækni­mið­ils­ins The Verge. Sam­fé­lags­mið­ill­inn Facebook eins og við þekkjum hann mun lík­lega ekki breyt­ast mikið. Nafn fyr­ir­tæk­is­ins, Facebook, er það sem breyt­ist en sam­fé­lags­mið­ill­inn Facebook fer undir hatt fyr­ir­tæk­is­ins líkt og Instagram, Whatsapp og Oculus, smá­forrit og sam­fé­lags­miðlar sem eru í eigu Facebook.

Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að Facebook er í krísu. Gagna­leki, bil­anir og ítrek­aðar vitna­leiðslur Zuckerberg og ann­arra starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins fyrir þing­nefnd öld­unga­deild­ar­þings Banda­ríkj­anna hafa veikt stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Nú er staðan sú að Facebook vill ekki lengur vera þekkt fyrst og fremst sem sam­fé­lags­mið­ill og af þeirri nei­kvæðu athygli sem mið­ill­inn hefur fengið heldur vill fyr­ir­tækið ein­blína á fram­tíð­ina. Samkvæmt Zuckerberg felst fram­tíðin í meta­verse.

Metaverse: Sambland af raunveruleika og sýndarveruleika þar sem allt er mögulegt

[links]En hvað er þetta meta­verse sem for­stjór­inn er svona spenntur fyrir? Við því er í raun ekki eitt ein­falt svar. Í við­tali í júlí sagði Zuckerberg að á næstu árum muni almenn­ingur hætta að líta á Facebook sem sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tæki og þess í stað líta á Facebook sem meta­verse-fyr­ir­tæki.

Hugtakið Meta­verse á rætur sínar að rekja í vís­inda­skáld­sög­una Snow Crash eftir Neal Steph­en­sen sem kom út árið 1992. Meta­verse vísar í sam­spil raun­veru­leika og sýnd­ar­veru­leika. Facebook sér meta­verse fyrir sér sem ver­öld á net­inu þar sem not­endum er nán­ast ekk­ert óvið­kom­andi. Í meta­verse er hægt að sinna vinnu, leikjum og sam­skiptum í sýnd­ar­veru­leika. Meta­verse „verður það sem skiptir máli, og ég held að þetta verði stór hluti af þróun inter­nets­ins eftir að það varð aðgengi­legt í símum,“ sagði Zuckerberg í sam­tali við The Verge í sumar.

Þróunin er hafin. Í dag starfa um 10 þús­und starfs­menn Facebook að upp­bygg­ingu sem snýr að meta­verse, meðal ann­ars við þróun og hönnun á sýnd­ar­veru­leika­gler­augum sem verða ómissandi hluti af meta­verse og Zuckerberg er því sann­færður um að gler­augun verði jafn ómissandi og snjall­símar áður en langt um líður. Ein helsta áskorun Facebook verður án efa að sann­færa not­endur um ágæti meta­verse, hug­taks sem hefur í raun ekki fengið merk­ingu meðal almenn­ings enn sem komið er.

Fakebook eða Horizon?

Zuckerberg hefur lítið viljað gefa upp um nafna­breyt­ing­una en ýmsar get­gátur eru komnar á kreik, ekki síst á Twitter, helsta sam­keppn­is­að­ila Facebook, þar sem „Fakebook“ eða „Faceplant“ virð­ast falla best í kramið.

Nöfn sem þykja lík­legri að verði fyrir val­inu eru nöfn á borð við Virtuel, Connect og Horizon. Það síð­ast­nefnda er heiti sem Facebook hefur unnið með í tengslum við sýnd­ar­veru­leika síð­ustu miss­eri. Biðin eftir nýja nafn­inu ætti ekki að vera löng ef rétt reyn­ist að Zuckerberg ætli að til­kynna nafnið í síð­asta lagi á ráð­stefn­unni Connect, árlegri ráð­stefnu Facebook, næst­kom­andi fimmtu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár