Grunaður um að hafa svikið út yfir hálfan milljarð úr United Silicon

Fyrr­ver­andi for­stjóri og stofn­andi United Silicon er grun­aður um að hafa falsað reikn­inga og náð þannig yfir hálfum millj­arði króna út úr fyr­ir­tæk­inu. Leit stendur yfir af eignum sem von­ast er til að hægt verði að frysta.

Sú upp­hæð sem Magnús Garð­ars­son, fyrr­ver­andi for­stjóri og stofn­andi United Silicon, er grun­aður um að hafa svikið út úr fyr­ir­tæk­inu er yfir hálfur millj­arður króna. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans bár­ust United Silicon reikn­ingar sem sagðir voru vera frá fyr­ir­tæk­inu Tenova, sem fram­leiddi ljós­boga­ofn verk­smiðj­unnar. Þeir reikn­ingar voru greiddir en við end­ur­skipu­lagn­ingu United Silicon, sem nú stendur yfir, hafi komið í ljós að þeir væru alls ekki frá Tenova. Þess í stað hafi fjár­mun­irnir sem greiddir voru ratað inn á reikn­ing ann­ars félags. Stjórn United Silicon telur að Magnús Garð­ars­son hafi haft umsjón með því félagi.

[links]Stjórn United Silicon til­kynnti um það fyrr í dag það hún hefði í sam­ráði við lög­mann sinn og aðstoð­ar­mann í greiðslu­stöðvun sent kæru til Emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara um mögu­lega refsi­verða hátt­semi Magnúsar. Í til­kynn­ingu segir að kæran byggi á „ grun um stór­felld auðg­un­ar­brot og skjala­fals allt frá árinu 2014 og er lögð fram í sam­ráði við aðra hags­muna­að­ila. Upp­lýs­ing­arnar sem nú koma fram eru afrakstur af vinnu við end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins sem leidd hefur verið af nýrri stjórn sem tók við í febr­ú­ar. Hinn grun­aði hefur enga aðkomu haft að rekstri eða stjórnun félags­ins síðan í mars. Stjórn félags­ins mun vinna með yfir­völdum að rann­sókn máls­ins svo að upp­lýsa megi það sem fyrst.“

Átt hefur verið við marga samninga

Heim­ildir Kjarnans herma að eign­ar­leit standi nú yfir bæði hér­lendis og í Danmörku. Finnist eignir mun verða farið fram á fryst­ingu þeirra. Lög­reglu­yf­ir­völd hafa umsjón með þeirri eign­ar­leit. Líkt og áður sagði er grunur um að Magnús hafi komið undan um hálfum millj­arði króna og að fjöl­margir samn­ingar sem gerðir hafa verið vegna United Silicon séu fals­aðir.

[adspot]Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans tók Arion banki, sá aðili sem á mest fjár­hags­lega undir í United Silicon, yfir hluta­bréf Magnúsar í félag­inu á föstu­dag. Hann er nú, ásamt íslenskum líf­eyr­is­sjóðum sem fjár­festu í verk­efn­inu, stærsti eig­andi United Silicon.

Í greiðslustöðvun og skuldar milljarða

United Silicon rekur kís­­­il­­­málm­­­verk­smiðju í Helg­u­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­­­stöðvun 14. ágúst síð­­­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­­­leikar í rekstri kís­­­il­­­málm­­­verk­smiðj­unni sem hóf fram­­­leiðslu í nóv­­­em­ber 2016, og rekja má til síend­­­ur­­­tek­inna bil­ana í bún­­­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Nýfall­inn gerð­­­ar­­­dómur í deilu félags­­­ins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félags­­­ins. Sam­­­kvæmt honum þarf United Silicon að greiða ÍAV um einn millj­­­arð króna. Greiðslu­­stöðvun fyr­ir­tæk­is­ins var fram­­lengd í vik­unni og gildir nú fram í des­em­ber.

Á meðal hlut­hafa og lán­veit­enda þess eru Arion banki og íslenskir líf­eyr­is­­­sjóð­­­ir. Alls nam fjár­­­fest­ing líf­eyr­is­­sjóða í verk­efn­inu um 2,2 millj­­örðum króna. Þar af fjár­­­festu þrír líf­eyr­is­­sjóðir sem eru í stýr­ingu hjá Arion banka í verk­efn­inu fyrir .1375 millj­­ónir króna. Frjálsi líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn lagði til langstærstan hluta þeirrar upp­­hæð­­ar, eða 1.178 millj­­ónir króna. Hinir tveir sjóð­irnir eru Eft­ir­­launa­­sjóður félags íslenskra atvinn­u­flug­­manna (EFÍA) og Líf­eyr­is­­sjóð starfs­­manna Bún­­að­­ar­­banka Íslands (LSBÍ). Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­un­­ar­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­stöðvum hans í Borg­­ar­­túni.

Alls skuldar United Silicon Arion banka um átta millj­arða króna. Auk þess færði bank­inn niður virði 16,3 pró­senta hluta­fjár­eign sinnar í fyr­ir­tæk­inu í hálfs­árs­upp­gjöri sínu í síð­asta mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár