Túristagiftingar

Á und­an­förnum árum hafa tug­þús­undir fólks lagt leið sína til Dan­merkur til að láta pússa sig saman. Ekki er það þó alltaf ástin sem ræður för, ástæð­urnar eru iðu­lega aðrar.

Nýjar reglur varð­andi gift­ingar erlendra rík­is­borg­ara á danskri grund tóku gildi 1. jan­úar í fyrra (2018). Reglunum er ætlað að koma í veg fyrir að rík­is­borgar landa utan ESB geti „bak­dyra­megin“ fengið land­vist­ar­leyfi í löndum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Árið 2016 (nýj­ustu tölur sem til eru) voru hjóna­vígslur í Danmörku sam­tals um það bil 44 þús­und. Af þessum fjölda voru um það bil 13 þús­und vígslur þar sem gefið var saman par búsett utan Dan­merkur, en annar ein­stak­ling­ur­inn rík­is­borg­ari eins af ríkjum ESB. Reglur ESB eru þannig að gift­ist rík­is­borg­ari ESB lands ein­stak­lingi sem er rík­is­borg­ari í landi utan ESB fær sá síð­ar­nefndi sjálf­krafa dval­ar­leyfi í öllum ríkjum sam­bands­ins.

Ekki hægt að láta pússa sig saman „bara sisvona“

Fyrir gift­ing­unum þarf að fá leyfi, frá opin­berum aðilum. Samkvæmt reglum ESB ber hverju aðild­ar­ríkj­anna að fylgja til­teknum reglum varð­andi ofan­nefndar gift­ingar. Í stuttu máli sagt ganga þær reglur út á að fólk sé að ganga í hjóna­band af fúsum og frjálsum vilja, ekki sé um sýnd­ar­hjóna­band að ræða, hjónin séu ekki þegar gift öðrum, hvort við­kom­andi hafi aldur til að ganga í hjóna­band o.s.frv. Til þess að ganga úr skugga um hvort allt sé með felldu varð­andi fyr­ir­hug­aðan ráða­hag hafa ESB löndin mis­mun­andi fyr­ir­komu­lag, þótt regl­urnar séu alls staðar þær sömu. Sum lönd hafa eina stofnun sem nær til alls lands­ins, þangað fara allar umsóknir og þegar parið hefur fengið „leyfið“ getur það látið pússa sig saman hvar sem er í land­inu.

Danska leiðin

Í Danmörku hefur fyr­ir­komu­lagið verið með öðrum hætti. Þar hefur hvert sveit­ar­fé­lag afgreitt umsókn­irnar. Parið velur sér hvar það vill láta vígsl­una fara fram og sækir svo um á við­kom­andi stað. Á sínum tíma voru rökin fyrir þessu þau að þetta væri ein­fald­ara og gengi hraðar fyrir sig. Ekki þyrfti sér­staka mið­stýrða stofnun til að halda utan um þessa afgreiðslu. Um þetta voru flokkar á danska þing­inu, Fol­ket­inget, sam­mála og sveit­ar­fé­lög­unum þótti þetta líka ákjós­an­legt fyr­ir­komu­lag.

Af hverju að giftast í Danmörku?

Eins og fyrr var nefnt létu um það bil 13 þús­und pör, þar sem annar aðil­inn var ESB borg­ari en hinn ekki, gifta sig í Danmörku árið 2016. Kannski velta ein­hverjir fyrir sér hvernig á því standi að þessi fjöldi velji að leggja leið sína til Dan­merkur til að ganga í það heilaga. Hlutfall þess­ara gift­inga er nefni­lega miklu hærra, hlut­falls­lega, en í öðrum aðild­ar­ríkjum ESB. Þessari spurn­ingu hafa danskir stjórn­mála­menn líka velt fyrir sér og telja sig vita svarið. Það hefur semsé reynst miklu auð­veld­ara að verða sér úti um „leyfið“ í Danmörku en ann­ars staðar. Og stjórn­mála­menn­irnir telja sig líka vita skýr­ing­una: fyrir sveit­ar­fé­lögin þýði brúð­kaupin tekjur og þegar pen­ingar eru ann­ars vegar sé til­hneig­ingin sú að ,,túlka regl­urnar frjáls­lega“ eins og danskur ráð­herra komst að orði í blaða­við­tali.

Umtalsverðar tekjur

Tekjur vegna erlendra rík­is­borg­ara sem láta gefa sig saman í Danmörku eru umtals­verðar. „Leyf­is­gjaldið“ rann til við­kom­andi sveit­ar­fé­lags sem jafn­framt sá um að inn­heimta. Gjaldið var fram til 1. jan­úar 2018 kr. 870.- danskar (15.900.- íslenskar) en nú borgar hvert par kr. 1.600.- (29.000.- íslenskar) og þær tekjur renna til rík­is­ins. En þetta eru fjarri því einu tekj­urnar sem brúð­kaup­unum fylgja. Erlendu brúð­hjónin láta nán­ast alltaf gifta sig í kirkju (nema í Kaup­manna­höfn, þar er Ráðhúsið vin­sæl­ast) og það þarf að borga prest­inum. Svo er það söng­ur­inn, hann kostar líka sitt. Lang oft­ast fylgja ham­ingju­sama par­inu ætt­ingjar og vinir og þá þarf að slá upp veislu og svo bæt­ist gist­ingin við. Í sumum til­vikum er fólk komið langt að og vill gera meira úr ferð­inni og dvelur nokkra daga í Danmörku. Ekki er vitað um tölu þeirra sem komið hafa til Dan­merkur á und­an­förnum árum vegna þess­ara brúð­kaupa en ljóst að fjöld­inn er umtals­verður.

Nokkrir staðir vinsælli en aðrir

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem frétta­skýrendur DR, danska útvarps­ins hafa aflað sér eru nokkrir staðir sem skera sig úr (hvað brúð­kaups­vin­sældir varðar). Fyrir utan Kaup­manna­höfn eru það Tønder og Sønd­er­borg á Suður-Jótlandi og eyj­arnar Ærø og Lang­eland, sunnan við Fjón. Fyrir þessa staði, kannski að Sønd­er­borg und­an­skil­inni, hafa tekj­urnar af túrista­brúð­hjón­unum, eins og Danir kalla það, skipt miklu máli. Sú stað­reynd hefur kannski orðið til þess að skil­yrðin um „leyf­is­bréfin“ hafa verið túlkuð frjáls­lega.

Nýju reglurnar

Eins og áður var nefnt tóku nýjar reglur varð­andi „túrista­brúð­kaupin“ gildi 1. jan­úar 2018. Aðal­breyt­ingin, fyrir utan hærra verð fyrir „leyf­is­bréfið“ er að frá því í byrjun þessa árs er það ekki lengur hvert sveit­ar­fé­lag sem ákveður hvort til­von­andi brúð­hjón upp­fylli skil­yrðin. Nú fara allar slíkar umsóknir um sér­staka skrif­stofu í Óðins­véum á Fjóni. Með því vill rík­is­stjórnin tryggja að allir sitji við sama borð þegar að gift­ing­ar­leyf­unum kemur. Þótt þetta nýja fyr­ir­komu­lag hafi aðeins verið í gildi í tæpa tvo mán­uði hefur umsóknum um „leyf­is­bréf“ þegar fækkað til muna, sam­an­borið við fyrri ár. Sveita­stjórn­ar­menn segja ástæð­una seina­gang á leyf­is­veit­inga­kontórnum í Óðins­véum. Nú þurfi fólk að senda erindi þangað og bíða eftir svari. Það taki langan tíma og þetta verði til þess að margir hætti ein­fald­lega við allt saman.

Ráðherrann hefur aðrar skýringar

Sveit­ar­stjórn­ar­menn hafa farið fram á það við Mai Mercado félags­mála­ráð­herra, að leyf­is­veit­ing­arnar verði aftur fluttar til sveit­ar­fé­lag­anna. Ráð­herr­ann hefur sagt að það komi ekki til greina og segir að ástæðan fyrir því að færri sæki um „leyf­is­bréf“ sé ekki skrif­stofan í Óðins­véum. Ástæðan sé að mikið hafi verið um svokölluð sýnd­ar­brúð­kaup, það er að segja brúð­kaup sem eru ein­göngu til þess ætluð að auð­velda ein­stak­lingum frá löndum utan ESB að fá land­vist­ar­leyfi í ESB lönd­unum. „Við viljum ekki að fólk geti með þessum hætti komið bak­dyra­megin inn í lönd Evr­ópu­sam­bands­ins.“

Í grein­ar­gerð sem danska lög­reglan vann fyrir félags­mála­ráð­herr­ann kemur fram að margt bendi til að hluti umræddra gift­inga sem fram hafa farið í Danmörku sé skipu­lagður af glæpa­sam­tökum. Bein­línis í þeim til­gangi að konur frá utan­að­kom­andi ríkjum kom­ist til ESB landa og verði svo seldar í vændi. Danmörk eigi ekki að stuðla að slíku segir í grein­ar­gerð lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár