Handahreyfingar og höfuðhnykkir

Það er mis­jafnt milli þjóða hvernig fólk notar lík­amann til að tjá sig. Lík­ams­tján­ingin getur sagt mikið af því sem sjaldan er komið í orð, hvort sem það er vilj­andi eða ekki. Borgþór Arn­gríms­son kynnti sér danska rann­sókn á lík­ams­beit­ingu við tján­ingu.

Stundum er haft á orði að margt sé líkt með Íslend­ingum og Finnum. Fremur þumb­ara­legir og þög­ulir við fyrstu kynni, muldri eitt­hvað lítt skilj­an­legt þegar þeir eru ávarp­aðir og engu lík­ara en að neðri kjálk­inn sé fros­inn fastur. Að þessu leyti séu þjóð­irnar tvær ólíkar frænd­þjóð­unum, Dönum, Norð­mönnum og Svíum, að ekki sé minnst á þær þjóðir sem sunnar búa í álf­unni. Þetta er þó hug­lægt mat enda hafa ekki verið gerðar margar sam­an­burð­ar­rann­sóknir á þessu sviði. Fas og fram­koma þjóða heims eru nú orðin við­fangs- og rann­sókn­ar­efni sér­fræð­inga.

Fyrir mörgum árum var pistla­höf­undur á sam­kundu þar sem tveir menn fluttu ræður um til­gang lífs­ins. Annar þeirra stóð nán­ast graf­kyrr í pont­unni meðan hann flutti mál sitt, hélt fast um ræðupúltið og leit annað veifið yfir áheyr­enda­hóp­inn. Hinn ræðu­mað­ur­inn hélt sig sjaldn­ast við pont­una, gekk fram og aftur á sviði sam­komu­húss­ins meðan hann tal­aði og not­aði hendur og búk til að leggja áherslu á mál sitt. Þegar leið á ræð­una gekk hann svo niður af svið­inu og gekk með­fram áheyr­enda­sæt­unum og áður en ræð­unni var lokið hafði hann farið nokkra hringi í salnum og end­aði svo á svið­inu. Þetta var Þór­bergur Þórð­ar­son rit­höf­undur. Ekki man pistla­höf­undur, sem var korn­ungur, margt af því sem sagt var en þeim mun betur eftir lát­bragði og áherslu­hreyf­ingum rit­höf­und­ar­ins frá Hala í Suð­ur­sveit. Man líka að full­orðna fólkið tal­aði um að Þór­bergur væri „bara eins og leik­ari“.

Mikilvægi tjáningarinnar

Í dag þykir það sjálf­sagður hluti almennrar skóla­göngu að nem­endur fái þjálfun í að tjá sig fyrir framan aðra, nokkuð sem mjög fáir skólar, að minnsta kosti á Íslandi, lögðu rækt við fyrir til­tölu­lega fáum árum. Að tala ekki til­breyt­ing­ar­laust í belg og biðu er mik­il­vægt og sömu­leiðis að nota lík­ams­tján­ingu til að leggja áherslu á orð sín og halda athygli við­staddra.

Fasráðstefnan

Í lið­inni viku var haldin í Kaup­manna­höfn tveggja daga ráð­stefna um lík­ams­tján­ingu og fas. Þátt­tak­endur frá fjöl­mörgum Evr­ópu­löndum sóttu ráð­stefn­una sem Hafn­ar­há­skóli skipu­lagði. Við skól­ann starfa fjórir mál­vís­inda­sér­fræð­ingar sem rann­saka lík­ams­tján­ingu. Að sögn þeirra eru rann­sóknir af þessu tagi nýjar af nál­inni, ekki séu nema tveir til þrír ára­tugir síðan þær hófust þótt Grikkir og Róm­verjar til forna hafi verið mjög með­vit­aðir um gildi handa­hreyf­inga og lík­ams­tján­ingar.

Ráð­stefn­unni í Kaup­manna­höfn var ekki ætlað að kom­ast að ein­hverri til­tek­inni nið­ur­stöðu, til­gang­ur­inn var að „bera saman bækur“.

Ólíkar venjur

Eins og áður sagði vinna fjórir sér­fræð­ingar við Hafn­ar­há­skóla að rann­sóknum og skrán­ingu á því sem þeir kalla tján­ing­ar­mynstur þjóða. Þótt rann­sóknir þeirra séu, að eigin sögn, ein­ungis komnar skammt á veg er þar margt for­vitni­legt. Danir og Svíar hreyfa höf­uðið einu sinni á sek­úndu þegar þeir tala en Finn­arnir aðra hverja sek­úndu. Danir og Finnar kinka kolli (hök­una niður), stundum margoft, þegar þeir hlusta og eru sam­mála en Svíarnir láta duga að nikka einu sinni (hök­una upp) til að sam­sinna þeim sem talar. Íbúar Skand­in­avíu nota færri og minni lík­ams­hreyf­ingar en til dæmis Ítalir. Dönsku sér­fræð­ing­arnir segja að ítalska tungu­málið geri bein­línis ráð fyrir handa- og höf­uð­hreyf­ingum. Danirnir hafa fylgst með sölu­mönnum á götu­mark­aði í Napólí og hlið­stæðum mark­aði í Danmörku og segja þar ólíku saman að jafna. Ítal­irnir séu til­þrifa­miklir við sölu­mennsk­una, það sama verði ekki sagt um Danina, það gildi jafnt um lík­ams­tján­ingu og radd­beit­ingu.

Líkami og rödd eru verkfæri kennarans og stjórnmálamannsins

Sér­fræð­ing­arnir við Hafn­ar­há­skóla telja sig geta sýnt fram á að nem­endur nái bæði betri og skjót­ari árangri við nám í erlendum tungu­málum ef kenn­ar­inn notar lát­bragð, handa­hreyf­ingar ásamt blæ­brigða­ríkri radd­beit­ingu. Reyndar gildi þetta um flestar náms­greinar. Sömu sögu sé að segja um stjórn­mála­menn, þar skipti ofan­greind atriði mjög miklu máli. Sumir stjórn­mála­menn koma sér upp ákveðnum hreyf­ingum og töktum til að leggja áherslu á mál sitt. Dæmi um þetta er Barack Obama. Hann notar krepptan hnefa, þar sem þum­al­fing­ur­inn hvílir á efri lið vísi­fing­urs, til að leggja áherslu á mál sitt, notar hann sem eins­konar tón­sprota, til áherslu­auka og sem bendiprik. Dönsku sér­fræð­ing­arnir lýsa Banda­ríkja­for­seta sem hinum full­komna ræðu­manni þar sem rödd, lát­bragð og lík­ami vinni saman. Þeir segja það líka skipta mjög miklu máli fyrir þá sem hafi mikil sam­skipti við íbúa ann­arra ríkja að þekkja siði og venjur, sem oft geti verið ólíkar þeirra eigin. Þar er nefnt sem dæmi hvernig Taí­lend­ingar heilsa og kveðja með því að leggja saman lóf­ana þannig að fingur vísi upp og hneigi höf­uðið um leið. Því nær sem fing­ur­brodd­arnir eru hök­unni því meiri virð­ing er gest­inum sýnd.

Sumt alþjóðlegt, annað ekki

Flestir vita hvað það merkir þegar hnefa er lyft og þum­al­fingur vísar upp og eins þegar þum­al­l­inn vísar niður. Þessi tákn segja dönsku sér­fræð­ing­arnir upp­haf­lega komin frá Banda­ríkj­unum en séu nán­ast orðin alþjóð­leg. Mörg fleiri handa­tákn má segja að séu alþjóð­leg. Bros, undrun og ang­ist­ar­svipur sömu­leiðis.

Danirnir nefna líka dæmi um ýmis­legt sem er öðru­vísi en við eigum að venj­ast. Þegar íbúar Laos benda nota þeir ekki hend­urnar heldur setja stút á var­irnar sem þeir beina svo í átt­ina. Og þegar Búlgarar hrista höf­uðið þýðir það já en kinki þeir kolli merkir það nei. Til er gömul saga af hjónum sem fóru til Búlgaríu og skyldu ekk­ert í því fyrsta dag­inn að þjónn á veit­inga­stað, og ekki tal­aði annað en sitt móð­ur­mál, hristi höf­uðið þegar þau bentu á eitt­hvað á mat­seðl­inum. Þegar þau höfðu bent á hvern rétt­inn á fætur öðrum setti þjónn­inn upp (alþjóð­legan) undr­un­ar­svip en átt­aði sig svo og gat komið hjón­unum í skiln­ing um að allt á seðl­inum væri í boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár