Jarðskjálftahrinan „óvenjuleg“ og óslitin

Jarð­fræð­ingur segir í við­tali við Morg­un­blaðið, að fólk á áhrifa­svæði jarð­skjálfta á Norð­ur­landi eigi að taka brota­hætta muni úr hillum.

Jarð­skjálfta­hrinur hafa verið mjög tíðar í nágrenni Gríms­eyjar und­an­farin miss­eri. Jarð­skjálfta­hrina um 10-12 km norð­austan við Grímsey hefur staðið nær óslitið frá 14. febr­úar og um hádegi þann 16. febr­úar höfðu hátt á annað þús­und skjálftar mælst á svæð­inu.

Á vef Veð­ur­stofu Íslands kemur fram að sumir skjálft­ana hafi fund­ist vel í Grímsey, og í gær fundu íbúar á Akureyri einnig fyrir skjálfa. „Rúmlega 10 skjálftar yfir þrír að stærð hafa mælst og þann 15. febr­úar kl. 19:37 mæld­ist skjálfti af stærð 4.1. Sumir þess­ara skjálfta hafa fund­ist í Grímsey. Þetta er mesta skjálfta­hrina á þessu svæði síðan í apríl 2013 þegar kröftug hrina varð í kjöl­far skjálfta af stærð­inni 5.5 á svip­uðum slóðum,“ segir á vef Veð­ur­stof­unnar.

Tekið er fram að minni orku­út­lausn sé í þess­ari hrinu, heldur en á árum áður, en hún hafi þó verið nær óslitin. „Mun minni orku­út­lausn mælist í þess­ari hrinu en hún hefur verið óslitn­ari en þó hviðu­kennd. Sam­felldar GPS mæl­ingar í Grímsey sýna enga mæl­an­lega aflögun tengda þess­ari hrinu sem bendir til að skjálfta­virknin sé frekar tengd fleka­skil­unum og jarð­hita­virkn­inni á þessum slóðum. Benda verður á að á þessu svæði og raunar öllu Tjör­nes­brota­belt­inu geta orðið mun stærri skjálftar og því verður alltaf að hafa í huga að í kjöl­farið á hrinum sem þessum geta orðið tals­vert stærri skjálftar. Upp­lýs­ingar um varnir og við­búnað við stærri jarð­skjálftum má finna á síðu Almanna­varna. Örlítið hefur dregið úr hrin­unni enn þó getur hún tekið sig upp aftur og ómögu­legt er að segja fyrir um hvenær henni lýkur,“ segir á vef Veð­ur­stof­unnar.

Í við­tali við Morg­un­blaðið í dag, segir Ármann Hösk­ulds­son, jar­fræð­ingur, að þetta sé óvenju­leg hrina, og greini­legt sé að tölu­verð spennu­losun sé á svæð­inu. Hann hvetur Hús­vík­inga og fólk á áhrifa­svæði jarð­skjálft­ana til að taka brot­hætta hluti niður úr hillum og búast við jarð­hrær­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár