Stýrivextir lækka aftur

Seðla­bank­inn hefur lækkað stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig. Pen­inga­stefnu­nefnd segir að enn sé þó verð­bólgu­þrýst­ingur.

Nefndin
Nefndin Þetta er fólkið sem ákvað að lækka vext­ina í morgun. Í pen­inga­stefnu­nefnd eru Ásgeir Jónsson, for­maður, Þórarinn G. Pét­urs­son, stað­geng­ill for­manns, Tómas Brynj­ólfs­son, Herdís Stein­gríms­dóttir og Ásgerður Ósk Pét­urs­dóttir.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands til­kynnti í morgun lækkun vaxta bank­ans um 0,25 pró­sentur. Stýri­vextir eru því 7,75 pró­sent eftir lækk­un­ina. Fram kemur í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefnd­ar­innar að allir nefnd­ar­menn hafi stutt vaxta­lækk­un­ina. 

„Verð­bólga var 4,2% í febr­úar og hefur ekki verið minni í fjögur ár. Hjöðnun verð­bólgu er á breiðum grunni og und­ir­liggj­andi verð­bólga hefur því einnig minnkað. Útlit er fyrir að áfram dragi úr verð­bólgu á næstu mán­uðum,“ segir í til­kynn­ingu pen­inga­stefnu­nefnd­ar­innar. 

„Við bæt­ist mikil óvissa í alþjóð­legum efna­hags­málum“

Nefndin segir að þrátt fyrir batn­andi stöðu sé verð­bólgu­þrýst­ingur enn til staðar. Það kalli á áfram­hald­andi þétt taum­hald pen­inga­stefn­unnar og var­kárni við ákvarð­anir um næstu skref. „Við bæt­ist mikil óvissa í alþjóð­legum efna­hags­málum.“

Verð­bólgu­þrýst­ingur eru þeir þættir sem geta valdið áfram­hald­andi hækkun verð­lags. Það eru til dæmis launa­hækk­anir, aukin eft­ir­spurn eftir vörum og þjón­ustu eða utan­að­kom­andi þættir eins og hækk­andi olíu­verð. 

…

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • P
    Piotr skrifaði
    Expensive money causes inflation by itself. Maybe someone should tell this committee about it.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár