Mismunandi skilningur lagður í hugtakið menntun án aðgreiningar

Mik­il­vægt er að allir í skóla­sam­fé­lag­inu sjái í menntun án aðgrein­ingar leið til að gefa öllum nem­endum kost á gæða­menntun. Þetta segir í skýrslu á vegum Evr­ópu­mið­stöðvar um nám án aðgrein­ingar og sér­þarfir.

Almennt þarf að skýra betur hug­takið menntun án aðgrein­ingar, sem og hvernig standa ber að fram­kvæmd þess. Þetta kemur fram í skýrslu sem tekin var saman fyrir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið á vegum Evr­ópu­mið­stöðvar um nám án aðgrein­ingar og sér­þarfir. Hún birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs Íslands í íslenskri þýð­ingu þann 31. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Í nið­ur­stöðum skýrsl­unnar segir að mis­mun­andi skiln­ingur sé lagður í hug­takið menntun án aðgrein­ingar meðal þeirra sem sinna mennta­málum, bæði innan hvers skóla­stigs og milli skóla­stiga. Skýrslu­höf­undar segja enn fremur að mik­il­vægt sé að allir í skóla­sam­fé­lag­inu sjái í menntun án aðgrein­ingar leið til að gefa öllum nem­endum kost á gæða­menntun.

Ein af meg­in­til­lögum í skýrsl­unni er að efna til víð­tækrar umræðu meðal þeirra sem koma að mennta­málum um hvernig best verði staðið að menntun án aðgrein­ingar. Þetta kemur fram í frétt mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins um skýrsl­una. Þar segir jafn­framt að útgáfa íslensku þýð­ing­ar­innar sé liður í því og verði henni dreift í alla leik-, grunn- og fram­halds­skóla á land­inu.

Fá ófullnægjandi stuðning

Í skýrsl­unni kemur einnig fram að margt starfs­fólk skóla seg­ist fá ófull­nægj­andi stuðn­ing til að ígrunda og fram­kvæma dag­leg störf sín með menntun án aðgrein­ingar að leið­ar­ljósi. Á öllum stigum mennta­kerf­is­ins megi finna dæmi um umbætur að því er varðar skipu­lag, náms­efni, náms­mat, kennslu­hætti, náms­að­stoð, tæki­færi til fag­legrar starfs­þró­unar allra þeirra sem vinna að mennta­málum og til árang­urs­ríkra sam­skipta starfs­fólks.

Slík vinnu­brögð hafi þó hvorki náð mik­illi útbreiðslu né orðið föst venja í skóla­starf­inu. Tryggja þurfi að þörfin á við­eig­andi og árang­urs­ríkum stuðn­ingi við skóla­starf, bæði almennt og í ein­stökum ald­urs­hópum, sé öllum ljós. Öllum í skóla­sam­fé­lag­inu, á öllum stigum kerf­is­ins, eigi að vera gert kleift að ígrunda og fram­kvæma dag­leg störf sín með menntun án aðgrein­ingar að leið­ar­ljósi.

Þörf á skýrari leiðsögn

Núver­andi lög­gjöf og stefnu­mótun felur í sér stuðn­ing við mark­mið og áherslur mennta­kerfis án aðgrein­ingar. Samstaða er um þessi mark­mið og áherslur meðal flestra þeirra sem sinna mennta­málum og á öllum stigum kerf­is­ins, sam­kvæmt skýrsl­unni. Á hinn bóg­inn er þörf á skýr­ari leið­sögn um hvernig standa ber að því að fella þessi stefnumið inn í áætl­anir sveit­ar­fé­laga og skóla og hrinda þeim í fram­kvæmd.

Jafn­framt segja skýrslu­höf­undar að þeir sem vinna að mennta­málum þurfi jafn­framt á leið­sögn að halda um hvernig haga skuli eft­ir­liti með þeirri fram­kvæmd og mati á árangri hennar, í sam­ræmi við lands­lög og mark­aða stefnu stjórn­valda. Löggjöf og stefnu­mótun á sviði mennt­unar án aðgrein­ingar verði að hafa það mark­mið að tryggja öllum nem­endum jöfn tæki­færi.

Fleiri og sveigjanlegri kostir þurfa að bjóðast

Þótt starfs­fólk á öllum stigum mennta­kerf­is­ins vinni af heil­indum að fram­gangi stefn­unnar hefur það ekki notið nægi­legs stuðn­ings til þess, segir í skýrsl­unni. Form­legur stuðn­ingur er að nokkru fyrir hendi en starfs­fólk skóla lítur svo á að fleiri og sveigj­an­legri kostir á slíkum stuðn­ingi þurfi að bjóð­ast. Það er almenn skoðun að þessu við­miði verði varla náð til fulls nema vel sé unnið að öðrum við­miðum sem íslenski starfs­hóp­ur­inn mót­aði og snúa einkum að skil­virkni stuðn­ings­kerfa, til­högun fjár­veit­inga, stjórn­un­ar­háttum og gæða­stjórn­un­ar­að­ferðum.

Enn fremur benda skýrslu­höf­undar á að meiri­hluti við­mæl­enda í öllum hópum skóla­sam­fé­lags­ins telji núver­andi reglur um fjár­veit­ingar og ráð­stöfun fjár­muna hvorki taka mið af sjón­ar­miðum um jöfnuð né hug­myndum um skil­virkni. Margir séu þeirrar skoð­unar að núver­andi fjár­veit­inga­venjur auð­veldi starfs­fólki ekki að vinna að menntun án aðgrein­ingar, heldur tálmi fram­förum á því sviði. Margir sem starfa að mennta­málum á vett­vangi ríkis og sveit­ar­fé­laga telji að breyt­ingar á núgild­andi reglum um fjár­fram­lög, sem taka mið af grein­ingu á sér­þörfum í námi eða fötlun, gætu verið mik­il­væg lyfti­stöng fyrir menntun án aðgrein­ingar á Íslandi. Þess vegna eigi ráð­stöfun fjár­muna að taka mið af sjón­ar­miðum um jöfnuð, skil­virkni og hag­kvæmni.

Núverandi stjórnunarhættir tryggja ekki nægan stuðning í starfi

Þeir sem sinna mennta­málum á vett­vangi ríkis, sveit­ar­fé­laga og skóla telja á það skorta að stjórn­un­ar­hættir og gæða­stjórn­un­ar­að­ferðir á sviði mennta­mála séu við­hlít­andi, sam­kvæmt skýrsl­unni. Hvort sem horft er til ráðu­neyta eða sveit­ar­fé­laga þykir starfs­fólki sem núver­andi stjórn­un­ar­hættir tryggi því ekki nægan stuðn­ing í starfi. Starfs­fólki skóla þykir núver­andi til­högun gæða­stjórn­unar ekki alltaf skila sér með þeim hætti í skóla­starf­inu að í henni sé fólgin hvatn­ing til frek­ari þró­unar þess og umbóta. Verði stjórn­un­ar­hættir og gæða­stjórn­un­ar­að­ferðir því að tryggja að stefnu­mótun og fram­kvæmd á sviði mennt­unar án aðgrein­ingar nái fram að ganga á sam­hæfðan og árang­urs­ríkan hátt.

Jafn­framt segir að margt starfs­fólk skóla hafi efa­semdir um að grunn­menntun þess og tæki­færi til fag­legrar starfs­þró­unar nýt­ist sem skyldi til und­ir­bún­ings fyrir skóla­starf án aðgrein­ingar. Að áliti margra þeirra sem sinna mennta­málum á vett­vangi ríkis og sveit­ar­fé­laga felli hvorki grunn­menntun né fag­leg starfs­þróun nægi­lega vel að mark­aðri stefnu ríkis og sveit­ar­fé­laga, og starfs­fólk skóla njóti því ekki nægi­legs stuðn­ings til að inn­leiða menntun án aðgrein­ingar sem stefnu sem bygg­ist á rétti hvers og eins. Unnið sé að fag­legri starfs­þróun á árang­urs­ríkan hátt á öllum stigum kerf­is­ins.

Evrópumiðstöðin sjálfstæð stofnun 30 Evrópuríkja

Nið­ur­stöð­urnar voru unnar árið 2016 af hálfu starfs­fólks og ráð­gjafa Evr­ópu­mið­stöðv­ar­innar. Hún er sjálf­stæð stofnun 30 Evr­ópu­ríkja sem hafa með sér sam­starf um mál­efni er lúta að menntun án aðgrein­ingar og sér­þörfum í námi. Til­gangur hennar er að vinna að umbótum á stefnu og fram­kvæmd mennta­mála í þágu nem­enda með fötlun og sér­þarfir í námi.

Í des­em­ber­mán­uði 2016 voru aðild­ar­lönd mið­stöðv­ar­innar þessi: Aust­ur­ríki, Belgía, Króatía, Kýpur, Tékkland, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakk­land, Þýska­land, Grikk­land, Ung­verja­land, Ísland, Írland, Ítalía, Lettland, Litháen, Lúx­em­borg, Malta, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss og Bretland. Ísland hefur átt fulla aðild að mið­stöð­inni allt frá stofnun hennar árið 1996.

Segir í skýrsl­unni að úttekt á fram­kvæmd stefnu um menntun án aðgrein­ingar beri að skoða í sam­hengi við þá þró­un­ar­vinnu sem nú á sér stað á Íslandi og verk­ferl­ana sem stuðst er við í þeirri vinnu og sé þá einkum vísað til þeirrar innri úttektar sem áður hefur farið fram á fram­kvæmd stefnu um menntun án aðgrein­ingar.

Úttektin hafi fyrst og fremst snú­ist um að kanna fram­kvæmd íslenskrar mennta­stefnu og var hún í því skyni látin taka til leik-, grunn- og fram­halds­skóla­stigs, stofn­ana sem ann­ast umsýslu fjár­veit­inga til mennt­unar án aðgrein­ingar, allra hópa skóla­sam­fé­lags­ins, þar á meðal nem­enda og aðstand­enda þeirra.

Þrjár tegundir gagnasafna

Gagna­söfnun fór fram á tíma­bil­inu frá mars til ágúst 2016. Um var að ræða þrjár teg­undir gagna­söfn­unar sem styðja hver aðra. Í fyrsta lagi söfnun upp­lýs­inga um grund­vallar- eða lyk­il­at­riði sem fjallað er um í stefnu­mark­andi skjölum, skýrslum, greinum og á vef­síðum, á ensku eða íslensku.

Í öðru lagi vett­vangs­at­hug­anir vegna úttekt­ar­innar sem fóru fram í apríl 2016. Undir þær féllu 27 rýni­hópar með 222 þátt­tak­endum, 11 heim­sóknir í skóla og níu við­töl við hátt­setta stjórn­endur sem taka ákvarð­anir á sveit­ar­stjórn­ar­stigi eða á lands­vísu.

Í þriðja lagi net­könnun sem skil­aði 934 svörum í fjórum mis­mun­andi könn­unum en hver könnun um sig var til­tæk bæði á ensku og íslensku. Greining úttekt­ar­hóps­ins á gögn­unum leiddi í ljós að huga þyrfti sér­stak­lega að nokkrum til­teknum mál­efnum sem liggja til grund­vallar meg­in­þáttum stefnu­mót­unar og fram­kvæmdar, og bent var á styrk­leika sem talið var að nýta mætti í umbóta­ferli.

Hægt er að nálg­ast skýrsl­una og lesa nánar um nið­ur­stöð­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár