Vilja jólamarkaðina burt úr miðborginni

Meiri­hluti Borg­ar­ráðs Kaup­manna­hafnar vill banna jóla­mark­að­ina sem árlega eru haldnir í og við mið­borg­ina. Segir þá, í núver­andi mynd, ekk­ert erindi eiga þar og þeir væru betur komnir í íbúða­hverfum fjær mið­borg­inni.

Hér ber að líta Hans Cristian Andersen-jólamarkaðinn á Axeltorv í Kaupmannahöfn.
Hér ber að líta Hans Cristian Andersen-jóla­mark­að­inn á Axeltorv í Kaup­manna­höfn.

Þær tug­þús­undir ferða- og heima­manna sem rölta upp og niður Strikið og önnur svæði í mið­borg Kaup­manna­hafnar í des­em­ber­mán­uði kann­ast vel við jóla­mark­að­ina svo­nefndu sem þar eru árlega haldnir. Þekkt­astur þess­ara mark­aða er lík­lega sá sem hald­inn er í Tívoli en skemmti­garð­ur­inn dregur til sín mik­inn fjölda fólks um jóla­leytið. Pistla­skrif­ari kom við í Tívolí fyrir nokkrum dögum og þar var múgur og marg­menni, þrátt fyrir kulda og dumb­ung. Fjöl­sótt­asti mark­að­ur­inn, að Tívolí frá­töldu, er við Höjbro Plads neðan við Ama­ger­torv á Strikinu, rétt fyrir neðan vöru­húsið Illum.

Þessi mark­aður var í fyrsta skipti hald­inn árið 2011 og líkt og margir aðrir í Danmörku er hann að þýskri fyr­ir­mynd. Þar er boðið upp á þýskar pylsur, gluhwein (glögg) og fleira mat­ar­kyns. Auk þess ýmis­konar jóla­skraut, flest að þýskum hætti eins og nafn mark­að­ar­ins ber með sér: Þýski jóla­mark­að­ur­inn. Á Kóngsins Nýja­torgi er einnig fjöl­sóttur mark­aður, að stórum hluta með sama yfir­bragði og áður­nefndur mark­aður á Höjbro Plads. Fleiri jóla­mark­aði á mið­borg­ar­svæð­inu mætti nefna, flestir þeirra smærri í sniðum en þeir sem áður voru nefndir.

Ferðafólk flykkist á markaðina

Um jóla­leytið er margt ferða­fólk í Kaup­manna­höfn. Það flykk­ist á mark­að­ina og þegar eitt dag­blað­anna bað nokkra erlenda ferða­menn að nefna eitt­hvað skemmti­legt úr heim­sókn­inni voru jóla­mark­að­irnir meðal þess sem allir nefndu. Á rölti sínu um einn þess­ara mark­aða fyrir nokkrum dögum heyrði pistla­skrif­ari, auk dönsk­unnar, að minnsta kosti sjö tungu­mál, þar á meðal íslensku: „Ég ætla að fá mér aðra currywurst!“.

Bæjarráðsfulltrúar ekki jafn ánægðir með markaðina

Þótt ferða­menn og heima­fólk virð­ist upp til hópa mjög ánægt með jóla­mark­að­ina í mið­borg­inni verður ekki það sama sagt um meiri­hluta Bæj­ar­ráðs Kaup­manna­hafnar. Einn bæj­ar­ráðs­full­trú­anna sagði að þegar ráðið hefði, fyrir nokkrum árum, veitt leyfi fyrir fleiri og stærri jóla­mörk­uðum í mið­borg­inni, hefði engan í ráð­inu órað fyrir að mark­að­irnir yrðu eins­konar eft­iröpun á þýsku mörk­uð­unum. Bæj­ar­ráðs­mönnum hefði þótt hug­myndin um jóla­mark­aði góð og talið að þar yrði danskt yfir­bragð. Danskur varn­ingur og danskur matur. Það hefði ekki gengið eftir. Bæj­ar­ráðs­full­trú­inn sagði að sér hefði ekki lit­ist á blik­una í fyrra þegar stærðar par­ís­ar­hjól hefði skyndi­lega verið komið í gang á Gamla­torgi á miðju Strikinu. ,,Eins og maður væri kom­inn í sirkus eða skemmti­garð. Sem betur fer er þetta hjól ekki á torg­inu í ár.” Meiri­hluti Bæj­ar­ráðs­ins væri þeirrar skoð­unar að slíkir mark­aðir væru betur komnir í íbúða­hverfum utan mið­borg­ar­innar. Á jóla­mörk­uðum sé eðli­legt að leggja áherslu á danskar vörur og siði, eins og gert sé á fjöl­mörgum mörk­uðum víða um Danmörku.

Undrandi á afstöðu Bæjarráðsins

Henrik Morten­sen for­stöðu­maður jóla­mark­að­ar­ins á Kóngsins Nýja­torgi er undr­andi á yfir­lýs­ingum bæj­ar­ráðs­manna. Segir að mark­að­irnir njóti mik­illa vin­sælda, það sýni aðsóknin. Ferða­fólk og heima­menn lýsi mik­illi ánægju með stemn­ing­una og hafi ekki yfir neinu að kvarta. Markaðir eins og þessir eigi vita­skuld að vera í mið­borg­inni, þar sem ferða­fólkið heldur sig, ekki að ýta þeim út í íbúða­hverfi þangað sem ferða­menn leggi ekki leið sína.

Hvað er danskt?

Það álit bæj­ar­ráðs­manna að áherslur á jóla­mörk­uðum ættu að vera danskar gaf áður­nefndur for­stöðu­maður ekki mikið fyrir og spurði hvað væri danskt. Ekki væri það jóla­tréð (frá Þýska­landi) ekki Lús­íu­gangan sem væri frá Svíum komin og hinn vin­sæli eft­ir­réttur Ris a la mande væri inn­fluttur. ,,Grjóna­graut­ur­inn er reyndar danskur og epla­skíf­urnar sömu­leiðis en þá er kannski það sér­danska upp­talið.”

Henrik Morten­sen for­stöðu­maður sagði að sér hefði ekki verið til­kynnt að ekki feng­ist leyfi fyrir mörk­uð­unum í óbreyttri mynd að ári liðnu en kvaðst ótt­ast að Bæj­ar­ráðið stæði við yfir­lýs­ingar sínar og myndi flæma jóla­mark­að­ina burt úr mið­borg­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár