Meiri hagnaður af tóbakssölu en áfengissölu hjá ÁTVR

Hagnaður ÁTVR í fyrra var rúm­lega 1,2 millj­arður króna. Stór hluti hans virð­ist til­kom­inn vegna tóbaks­sölu. For­stjóri ÁTVR segir að hlut­falls­lega sé meiri hagn­aður af tóbak­inu en áfeng­inu. Hann hefur hins vegar miklar áhyggjur af mark­aðs­hlut­deild Haga.

Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins (ÁTVR) hagn­að­ist um 1.221 milljón króna á árinu 2015. Þegar búið er að draga vöru­notkun tóbaks frá tekjum ÁTVR af sölu tóbaks standa eftir 1.469 millj­ónir króna, eða 248 millj­ónir króna umfram hagnað ÁTVR. Fyr­ir­tækið hefur aldrei viljað opin­bera hver rekstr­ar­kostn­aður þess vegna tóbaks­sölu í heild er, en fyrir liggur að tóbaks­salan, sem er heild­sala, útheimtir mun umfangs­minni rekstur en áfeng­is­salan, sem er smá­sala.

Í for­mála árs­skýrslu ÁTVR 2015 gengst for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins þó við því að hlut­falls­lega meiri hagn­aður sé af tóbaks­söl­unni en áfeng­is­söl­unni.

Tóbaksala þriðjungur allra tekna

Tekjur ÁTVR af áfeng­is­sölu í fyrra voru 29,4 millj­arðar króna, sam­kvæmt árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið 2015. Þar af komu 19,8 millj­arðar króna í kass­ann vegna sölu áfengis.

Tekjur ÁTVR af tóbaks­sölu voru hins vegar 9,5 millj­arðar króna. Það er um þriðj­ungur allra tekna fyr­ir­tæk­is­ins á árinu. Sala tóbaks útheimtir hins vegar mun minna umstang en áfeng­is­sala ÁTVR, sem fer fram í 50 versl­unum víðs­vegar um landið. Kjarninn hefur nokkrum sinnum á und­an­förnum árum leitað upp­lýs­inga hjá ÁTVR um hver beinn kostn­aður af tóbaks­sölu fyr­ir­tæk­is­ins er. Stjórn­endur ÁTVR hafa ekki viljað upp­lýsa um það.

Það er þó hægt að lesa ýmis­legt út úr árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins um hver slíkur kostn­aður er. Í fyrsta lagi er öll tóbaks­dreif­ing ÁTVR nú mið­læg og fer því fram á einum og sama staðnum. Sá staður er Útgarður, dreif­ing­ar­mið­stöð fyr­ir­tæk­is­ins í Reykja­vík. Í árs­reikn­ingi ÁTVR fyrir árið 2013 sagði að „mikið hag­ræði“ hefði fylgt þess­ari breyt­ingu þar sem birgða­hald og vöru­með­höndlun hafi minnkað og dreif­inga­kostn­aður lækkað. Samhliða hafi verið lögð áhersla á raf­rænar pant­anir, sem spar­aði enn meira umstang.

Vilja ekki upplýsa um aðskilinn kostnað

Þegar Kjarninn fór fram á að fá upp­lýs­ingar um hver kostn­aður ÁTVR af tóbaks­sölu væri, með fyr­ir­spurn sem send var í ágúst 2014, var svarið nei. Í svari Sig­rúnar Óskar Sig­urð­ar­dótt­ur, aðstoð­ar­for­stjóra ÁTVR, sagð­i að „Kostn­aður vegna tóbaks­sölu er ekki færður sér­stak­lega í bók­haldi ÁTVR nema vöru­notkun tóbaks[...] Tóbaks­gjaldið er skil­greint sem hluti af kostn­að­ar­verði seldra vara í bók­haldi ÁTVR og fært undir vöru­notk­un“.

Vöru­notkun tóbaks nam 8,1 millj­arði króna í fyrra. Ef vöru­notkun tóbaks, hinn eig­in­legi rekstr­ar­kostn­aður tóbaks­sölu ÁTVR, er dregin frá tekjum ÁTVR af sölu á tóbaki standa eftir 1.469 millj­ónir króna. Það er 248 millj­ónum krónum meira en hagn­aður ÁTVR var á árinu 2015. Þar sem ÁTVR neitar að gefa upp hvernig sam­eig­in­legur kostn­aður vegna áfeng­is­sölu og tóbaks­sölu skipt­ist - kostn­aður sem er til að mynda til kom­inn vegna hús­næðis og starfs­fólks sem starfar við umsýslu beggja vara - þá er ekki hægt með fullri vissu að segja til um hversu mik­ill hluti af hagn­aði ÁTVR er til­komin vegna tóbaks­sölu.

Í ljósi þess að stjórn­endur ÁTVR segja í árs­skýrslum fyr­ir­tæk­is­ins að mikil hag­ræð­ing hafi orðið í tóbaks­söl­unni, og að hún fer fram á mjög ein­faldan hátt á einum og saman staðnum, má þó með nokk­urri vissu ætla að þorri hagn­aðar ÁTVR komi úr tóbaks­sölu en að áfeng­is­salan sé rekin í tapi eða nálægt núlli.

Í for­mála Ívars J. Arndal, for­stjóra ÁTVR, í árs­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið 2015, er þessi staða við­ur­kennd að ein­hverju leyti. Þar segir for­stjór­inn að heild­sala tóbaks skili „ÁTVR hlut­falls­lega meiri hagn­aði en smá­sala áfengis. Munurinn ræðst fyrst og fremst af ákvörðun Alþingis um álagn­ingu.“

Er munurinn Alþingi að kenna?

Alþingi tekur ákvörðun um hvert áfengis- og tóbaksgöld eigi að vera. Á árinu 2015 voru greiðslur ÁTVR vegna tóbaks­gjalda 5.650 millj­ónir króna, eða 59 pró­sent af öllum tekjum fyr­ir­tæk­is­ins vegna tóbaks­sölu. Þessar tekjur myndu renna í rík­is­sjóð óháð því hver myndi selja tóbakið.

Áfeng­is­gjald sem greitt var til rík­is­sjóðs var 9.230 millj­ónir króna, eða 47 pró­sent af tekjum ÁTVR vegna sölu áfengis.

Því liggur fyrir að mun minna hlut­fall af tekjur ÁTVR vegna áfeng­is­sölu rennur til rík­is­ins vegna áfeng­is­s­gjalds en tóbaks­gjalds, og þar af leið­andi fer stærri hluti af tekjum fyr­ir­tæk­is­ins vegna áfeng­is­sölu í rekstr­ar­kostnað en vegna tóbaks­sölu. Stærsti hluti þess rekstr­ar­kostn­aðar er vegna rekst­urs 50 áfeng­is­versl­ana um allt land, þar af 16 stórra versl­ana. Fjöldi vín­búða hefur tæp­lega fjór­fald­ast frá árinu 1986. Alls var heild­ar­fjöldi starfs­manna sem fengu greidd laun hjá fyr­ir­tæk­inu í fyrra 717 og árs­verk 287. Umfang versl­ana­rekst­urs ÁTVR gerir fyr­ir­tækið að einum umsvifa­mesta smá­sala á land­inu. Bónus, stærsta mat­vöru­verslun lands­ins, rekur til að mynda 31 verslun um allt land.

Hafna því að tóbakið niðurgreiði áfengisverslun

ÁTVR hefur alltaf brugð­ist hart við þegar því hefur verið haldið fram að tóbaks­salan nið­ur­greiði umfangs­mikla smá­sölu á áfengi sem fyr­ir­tækið stundar. Fyrir rúmu ári vann fyr­ir­tækið Clever Data skýrslu um rekstur ÁTVR þar sem nið­ur­staðan var sú að ekki væri eig­in­legur hagn­aður af starf­semi ÁTVR á föstu verð­lagi árs­ins 2014. Ein helsta ástæða þess sé sú að langtum meiri rekstr­ar­hagn­aður væri af sölu tóbaks en sölu áfeng­is, enda sé tóbak­inu ein­ungis dreift í heild­sölu á meðan að áfengið er selt í versl­unum sem ÁTVR á og rekur út um allt land.

ÁTVR sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í kjöl­far skýrsl­unnar þar sem fyr­ir­tækið hafn­aði alfarið nið­ur­stöðum Clever Data. Þar stóð m.a.: "Nið­ur­stöður hennar eru vanga­veltur sem eiga sér litla stoð í raun­veru­leik­anum og ÁTVR hafnar þeim alfar­ið. ÁTVR hefur aldrei verið rekin með tapi frá því að áfeng­is­gjöld og tóbaks­gjöld voru aðskilin frá rekstr­ar­tekj­u­m versl­un­ar­inn­ar."

Ríki í ríkinu

Engin stjórn er yfir ÁTVR, sem skil­greind er sem stofnun sam­kvæmt lög­um. Slík hefur ekki ver­ið til staðar í nokkur ár heldur heyrir stofn­unin beint undir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Yfir­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins, sem sam­anstendur af Ívari J. Arndal ­for­stjóra og fram­kvæmda­stjórum, tekur þess í stað ákvarð­anir tengdar rekstri ÁTVR. Fyr­ir­tækið sker sig þannig frá öðrum stórum fyr­ir­tækjum í opin­berri eig­u, eins og til dæmis orku­fyr­ir­tækj­um, þar sem eig­and­inn kemur ekki að beinn­i ­stjórn þess.

Mikil póli­tískt átök hafa átt sér stað á liðnum árum um hvort að gefa eigi sölu og aug­lýs­ingar á áfengi frjálsa, og afnema þar með ein­okun ÁTVR á söl­unni. Frumvarp sem hefur það mark­mið að afnema ein­okum rík­is­ins á sölu áfengis var lagt fram í sept­em­ber í fyrra. Frum­varpið var afgreitt úr alls­herjar- og mennta­mála­nefnd í mars 2016 en hefur ekki fengið frek­ari þing­lega með­ferð.

Vill ekki að Hagar komist í yfirburðarstöðu

For­stjóri ÁTVR hefur ítrekað gert þessi póli­tísku átök að umtals­efni í for­mála sínum við árs­skýrslu ÁTVR á und­an­förnum árum. Í þeirri nýj­ustu, fyrir árið 2015, segir hann að fórn­ar­kostn­að­ur­inn við það að gefa sölu á áfengi frjálsa verði hár. „Málið er einmitt að einka­að­ilar eru ótrú­lega góðir að selja. Þeir vilja alltaf selja meira og meira, auka mark­aðs­hlut­deild­ina og auð­vitað skila hagn­aði í vasa eig­end­anna. Það er kjarni frjáls mark­aðar og sam­keppn­is­rekstrar. Þar eru einka­að­ilar bestir. Þess vegna eru þeir ekki heppi­legir þegar mark­miðið er ekki að auka söl­una eða hagn­ast á henni heldur að þjón­usta almenn­ing við að kaupa og neyta vöru sem getur verið mjög skað­leg heilsu manna. Þá er best að hafa hlut­lausan aðila sem hefur engan per­sónu­legan ávinn­ing af söl­unni. Ekki þarf að leita lengra en til Dan­merkur til þess að átta sig á þessu. Þar sjá einka­að­ilar um áfeng­is­söl­una og hirða ágóð­ann. Neysla áfengis á mann í Danmörku er miklu meiri en á Íslandi og kostn­aður danska sam­fé­lags­ins af mis­notkun áfengis gríð­ar­legur. Skatt­borg­urum er sendur reikn­ing­ur­inn.“

Ívar beinir síðan spjótum sínum að Högum, stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki á Íslandi sem rekur meðal ann­ars Bónus og Hagkaup. Hagar hafa ítrekað lýst því yfir að fyr­ir­tækið vilji að áfeng­is­sala rík­is­ins verði lögð niður. Ívar hefur tölu­verðar áhyggjur af mark­aðs­hlut­deild Haga. „Nú þegar er keðjan með ríf­lega 50% af mat­vöru­mark­að­inum á sinni hendi. Með helm­ing af áfeng­is­söl­unni myndi veltan hjá mat­vöruris­anum aukast um rúm­lega 12 þús­und millj­ónir á ári. Nú þegar ber hann ægis­hjálm yfir allri mat­vöru­verslun í land­inu. Með áfeng­is­söl­unni væri mat­vöruris­inn kom­inn í algera yfir­burða­stöðu. Varla er það til hags­bóta fyrir neyt­endur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár