Skýra þurfi hvers vegna rannsóknir á leghálssýnum hafi verið fluttar til Danmerkur

Þing­maður Við­reisnar segir heil­brigð­is­ráð­herra þurfa að geta sagt það berum orðum ef kostn­aður hafi ráðið för þegar ákvörðun var tekin um að flytja rann­sóknir á leg­háls­sýnum til Dan­merkur. Vel­ferð­ar­nefnd hefur beðið eftir minn­is­blaði um málið í sjö vikur.

Rök­styðja þarf hvernig heild­ar­mat heil­brigð­is­ráðu­neytis um kostnað, öryggi og aðgengi að leg­háls­skimunum fór fram í aðdrag­anda þess að ákvörðun var tekin um að færa rann­sóknir á leg­háls­sýnum til Dan­merkur. Þetta sagði Þorbjörg Sigríður Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar, á Alþingi í dag. Í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins ræddi hún fram­kvæmd leg­háls­skim­ana og vís­aði í frétt Vísis frá því fyrr í dag þar sem sagt var frá því að ákvörðun um að leita til erlendra aðila um rann­sókn á sýn­unum hafi það þá þegar legið fyrir að Land­spít­al­inn hefði getað sinnt rann­sókn­unum.

„Hér í þessum sal hefur hefur af hálfu hæst­virts heil­brigð­is­ráð­herra verið talað um að hér hafi verið um örygg­is­mál að ræða. En fréttir dags­ins greina hins vegar frá því að þetta hafi kostn­að­ar­mál þegar ákvörð­unin um að flytja rann­sókn­irnar út fyrir land­steina var tekin,“ sagði Þorbjörg í ræðu sinni. Í ræðu hennar kom einnig fram að sam­tök yfir­lækna hefðu áður sagt að yfir­völd hefðu hunsað álit fjöl­margra fag­að­ila þess efnis að rann­sóknir leg­háls­sýna ættu að fara fram hér á landi.

Þorbjörg sagði að hún hefði nýlega lagt fram skýrslu­beiðni, þar sem farið er fram á að óháður aðili vinni skýrslu um málið með það að leið­ar­ljósi að fá fram upp­lýs­ingar um aðdrag­anda ákvörð­un­ar­innar. „Mark­miðið var að með því mætti stuðla að því að konur geti treyst kerf­inu og að almenn­ingur beri traust til þessa kerfis um skimun fyrir krabba­meini í leg­hálsi. En fréttir dags­ins í dag um að kostn­aður hafi trompað aðrar rök­semdir sér­fræð­ing­anna, þær gera því miður hið gagn­stæða,“ sagði Þorbjörg.

Velferðarnefnd bíður eftir skýrslu ráðherra

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar, fjall­aði einnig um málið í ræðu sinni undir sama dag­skrár­lið. Hún sagði að nefnd­ar­fólk í vel­ferð­ar­nefnd hefði þann 27. jan­úar óskað eftir minn­is­blaði frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu vegna ákvörð­unar heil­brigð­is­ráð­herra um að færa rann­sókn­irnar úr landi. Þar var einnig óskað eftir upp­lýs­ingum um inni­hald samn­ings­ins við þau sem taka að sér rann­sókn­irnar á sýn­unum.

Helga Vala sagði að starfs­fólk Land­spít­ala hafi hvorki verið spurt, né það óskað eftir því, áður en að Land­spít­al­anum hafi verið falið að ann­ast brjósta­skimanir. Hins vegar hafi það legið fyrir að spít­al­inn gæti ann­ast rann­sóknir á leg­háls­sýnum áður en ákvörðun var tekin um að færa þær rann­sóknir úr landi. Allir sér­fræð­ingar sem hafa tjáð sig um málið, utan tveggja, vilja að rann­sókn­irnar séu gerðar á Land­spít­ala að sögn Helgu Völu. „Hvers vegna íslensk stjórn­völd ákváðu að snið­ganga íslenskt rann­sókn­ar­fólk og þann tækja­kost sem við höfum yfir að ráða og færa þessi verk­efni út fyrir land­stein­ana er með öllu óskilj­an­legt,“ sagði Helga Vala.

Hún sagði sagði vel­ferð­ar­nefnd ítrekað hafa ósk sína um minn­is­blað ráðu­neyt­is­ins og óskaði hún eftir aðstoð for­seta Alþingis við það að afla svara frá ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár