Guðmundur Þ. Guðnundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, hélt ræðu og Ómar Ragnarsson sneri aftur á sviðið með söng.
Græna gangan í dagBreiður hópur náttúruverndasinna- og samtaka stóðu að Grænu göngunni til varnar óspilltri náttúru á Íslandi á Sumardaginn fyrsta.Mynd: Golli
Fjöldi fólks kom saman í miðborg Reykjavíkur í dag í kröfugöngu til varnar óspilltrar náttúru á Íslandi. Gangan var skipulögð af breiðum hópi náttúruverndarsinna- og samtaka. Áætlaður fjöldi fólk á svæðinu var á þriðja þúsund.
Göngufólkið telur að íslensk náttúra þarfnist varna, því „hún á undir högg að sækja og hún þarf fleiri raddir,“ eins og sagði í boðun Landverndar.
Gengið var frá Arnarhóli niður í Hljómskálagarðinn. Þar hélt Guðmundur Þórður Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í handbolta, ræðu. Síðan steig skemmtikrafturinn og fréttamaðurinn fyrrverandi, Ómar Ragnarsson, á stokk í fyrsta sinn í langa tíð.
Ómar snýr afturEftir þónokkra fjarveru steig Ómar Ragnarsson á stokk og söng lagið Sumar og Sól, við eigin texta.Golli
Í upplestri á kröfugerð fundarins var fyrst vitnað til orða Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta. „Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir.“
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Rödd náttúrunnar í framtíðinni vera hvinurinn og urgið í rafmagnsstaurunum eða þessum blessuðu vindmyllur þar með að auki ístaðhinsljúfafuglasöngssemfylgir vorinuídag
EG FORÐAST ALLAR FJÖLDASAMKOMUR OG LÆT EKKI SJÁ MIG ÞAR HELDUR SVO HEF EG HELDUR ENGAR SKOÐANIR Á MÖNNUM OG MALEFNUM HVORT SEM ER!
-5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
sem er óviðjafnanleg. Þakka ykkur öllum fyrir ykkar framlag á mótmælunum.