SÁÁ fordæmir vændiskaup fyrrum formanns og ætlar að ráðast í gagngera skoðun

SÁÁ ætlar að gera nauð­syn­legar umbætur á starfi sínu og kapp­kosta að tryggja öryggi skjól­stæð­inga sinna sem margir eru í við­kvæmri stöðu. „Umfram allt stöndum við með þolendum.“

Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ for­dæmir í yfir­lýs­ingu sem send var í kvöld hegðun Einars Her­manns­sonar, fyrrum for­manns sam­tak­anna. Einar sagði af sér for­mennsku í gær eftir að Stundin hóf rann­sókn á kaupum hans á vændi af konu sem glímdi við fíkni­vanda og var síðar skjól­stæð­ingur SÁÁ.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að „traust og trún­aður skjól­stæð­inga okkar, starfs­manna og lands­manna allra er lyk­ill­inn að til­veru SÁÁ. Undir því trausti viljum við rísa. Við munum ráð­ast í gagn­gera skoðun og nauð­syn­legar umbætur á öllu okkar starfi og kapp­kosta að tryggja öryggi skjól­stæð­inga okkar sem margir eru í við­kvæmri stöðu.“

Þar kemur enn fremur fram að fram­kvæmda­stjórn SÁÁ muni boða til fundar í aðal­stjórn SÁÁ föstu­dag­inn 28. jan­úar næst­kom­andi kl. 17.15 til að kjósa nýjan for­mann sam­tak­anna. „Umfram allt stöndum við með þolendum.“

[adspot]Einar sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hann greindi frá afsögn sinni. Þar sagði hann ástæð­una vera þá að hann svar­aði fyrir nokkrum árum aug­lýs­ingu á net­inu „þar sem í boði var kyn­líf gegn greiðslu.“ Einar gengst ekki við því að hafa keypt vændi í yfir­lýs­ing­unni en að hegðun hans hafi verið „ófyr­ir­­gef­an­­leg en ég taldi mér rang­­lega trú um að þau sam­­skipti væru grafin og gleymd og þau hafa ekki haft áhrif á störf mín fyrir SÁÁ. Ljóst er hins vegar að umræða um þetta mál er ein­ungis til þess fallin að varpa rýrð á SÁÁ ef ég sit þar áfram sem for­­mað­­ur.“

Hann sagð­ist iðr­­ast að hafa farið þessa leið og um leið valdið fjöl­­skyldu sinni sár­s­auka með hegðun sinni. „Bið ég alla þá sem málið varðar afsök­unar á fram­­ferði mín­u.“

Einar sagð­ist enn fremur ekki ætla að tjá sig frekar um mál­ið.

[links]Skömmu eftir að yfir­­lýs­ing Ein­­ars var send birti Stundin umfjöllun þar sem greint var frá því að mið­ill­inn hefði unnið að rann­­sókn á vænd­is­­kaupum Ein­­ars á árunum 2016-2018. Í umfjöll­un­inni sagði meðal ann­­ars: „Stundin hefur rætt við kon­una sem nú er á bata­­vegi eftir langvar­andi fíkn­i­efna­­neyslu. Hún seg­ist hafa leiðst út í vændi til að fjár­­­magna eit­­ur­lyfja­­neyslu sína. Á því tíma­bili hafi Einar keypt af henni kyn­lífs­­þjón­­ustu. Eftir að hún náði bata ætl­­aði hún að leita réttar síns og ræddi við sér­­fræð­inga en þegar á hólm­inn var komið varð hún hrædd og kærði ekki. Nú er málið fyrnt.“

í frek­ari umfjöllun Stund­ar­innar um málið, sem birt­ist í morgun, voru birt skjá­skot af sam­skiptum þeirra í Messen­ger-­for­rit­in­u, en Einar á að hafa keypt vændi af kon­unni á árunum 2016 til 2018.

Á þeim tíma sat hann í stjórn SÁÁ, en hún er sjálf á meðal skjól­stæð­inga sam­tak­anna sem hafa hjálpað henni að ná bata við fíkn sinni. Einar var for­maður SÁÁ frá miðju ári 2020 og þangað til að hann sagði af sér í gær.

Í sam­skipt­unum sem Stundin birtir kemur skýrt fram að Einar fal­ast eftir því að hitta kon­una, þar er til­greint að það muni kosta 30 þús­und krónur og til­greint klukkan hvað þau ætli að hitt­ast. Eftir að um semst sendi Einar kon­unni skila­boð og sagð­ist „hlakka til“. Í öðrum skila­boðum seg­ist Einar vera á leið­inni til kon­unn­ar, að það séu tíu mín­útur í sig. Einum og hálfum tíma síðar sendir hann önnur skila­boð og seg­ir: „Takk fyrir mig. Gaman að kynn­ast þér. Er að fíla þig mjög vel.“

Kaup á vændi eru ólög­leg á Íslandi en sök fyrn­ist á tveimur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár