Formaður SÁÁ segir af sér eftir að hafa svarað auglýsingu um vændiskaup

Einar Her­manns­son er hættur sem for­maður SÁÁ. Ástæðan er að hann svar­aði aug­lýs­ingu fyrir nokkrum árum þar sem „í boði var kyn­líf gegn greiðslu“. Hann biður alla sem málið varðar afsök­unar á fram­ferði sínu.

Einar Hermannsson
Einar Her­manns­son Mynd: Dagmál/Skjáskot

Einar Her­manns­son, sem kjör­inn var for­maður SÁÁ sum­arið 2020, hefur sagt af sér emb­ætt­inu. Ástæðan er sú að hann svar­aði fyrir nokkrum árum aug­lýs­ingu á net­inu „þar sem í boði var kyn­líf gegn greiðslu.“

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem almanna­teng­ill hefur sent til fjöl­miðla fyrir hönd Einars.

Þar er haft eftir Einari að sú hegðun sem hann hafi sýnt sé „ófyr­ir­gef­an­leg en ég taldi mér rang­lega trú um að þau sam­skipti væru grafin og gleymd og þau hafa ekki haft áhrif á störf mín fyrir SÁÁ. Ljóst er hins vegar að umræða um þetta mál er ein­ungis til þess fallin að varpa rýrð á SÁÁ ef ég sit þar áfram sem for­maður.“

Hann seg­ist iðr­ast að hafa farið þessa leið og um leið valdið fjöl­skyldu sinni sárs­auka með hegðun sinni. „Bið ég alla þá sem málið varðar afsök­unar á fram­ferði mínu.“

Einar seg­ist ekki ætla að tjá sig frekar um málið.

Skömmu eftir að yfir­lýs­ing Einars var send birti Stundin umfjöllun um málið þar sem greint var frá því að mið­ill­inn hefði unnið að rann­sókn á vændis­kaupum Einars á árunum 2016-2018. Sú umfjöllun er studd gögnum sem sýna meðal ann­ars sam­skipti konu og Einars í skila­boðum á Facebook. Í umfjöll­un­inni segir meðal ann­ars: „Stundin hefur rætt við kon­una sem nú er á bata­vegi eftir langvar­andi fíkni­efna­neyslu. Hún seg­ist hafa leiðst út í vændi til að fjár­magna eit­ur­lyfja­neyslu sína. Á því tíma­bili hafi Einar keypt af henni kyn­lífs­þjón­ustu. Eftir að hún náði bata ætl­aði hún að leita réttar síns og ræddi við sér­fræð­inga en þegar á hólm­inn var komið varð hún hrædd og kærði ekki. Nú er málið fyrnt.“

Í umfjöllun Stund­ar­innar segir að Embætti land­læknis hafi verið upp­lýst um málið árið 2020 og að minnsta kosti einn stjórn­ar­maður í fram­kvæmda­stjórn SÁÁ hafi sama ár vitað að því að Einar hefði keypt vændi af veikum fíkni­efna­neyt­anda.

Fá 1,2 milljarð króna á fjárlögum

SÁÁ, sam­tök áhuga­fólks um áfeng­is- og vímu­efna­vand­ann, eru félaga­sam­tök sem sjá þeim sem eiga við áfeng­is- eða vímu­efna­vanda, og aðstand­endum þeirra, fyrir sjúkra­með­ferð og end­ur­hæf­ingu. Auk þess vinna sam­tökin að for­vörn­um. Um er að ræða umfangs­mesta með­ferð­ar­úr­ræði sem er til staðar vegna áfeng­is- og vímu­efna­vanda hér­lend­is.

[adspot]Hið opin­bera fjár­magnar meira en tvo þriðju hluta af starf­sem­inni að jafn­aði en það sem út af stendur er fjár­magnað af sam­tök­unum sjálf­um, meðal ann­ars með árlegri álfasölu. Sam­tökin fengu 1.203 millj­ónir króna á fjár­lögum í fyrra og fjár­heim­ild til þeirra eru 1.211 millj­ónir króna á ári út árið 2024 sam­kvæmt síð­ustu sam­þykktu fjár­lög­um.

Sú stofnun sem greiðir út þær fjár­hæðir er Sjúkra­trygg­ingar Íslands, á grund­velli þjón­ustu­samn­inga sem hið opin­bera hefur gert við SÁÁ.

Krafa um endurgreiðslu á 174,5 milljónum

Gustað hefur um SÁÁ und­an­farið en harð­vít­ugar deilur hafa geisað um hvort félaga­sam­tök­unum hafi verið heim­ilt að fá greiðslur úr rík­is­sjóði fyrir þjón­ustu á tímum kór­ón­veiru­far­ald­urs sem var með öðru sniði en áður.

[links]Sjúkra­trygg­ingar Íslands telja enga slíka heim­ild vera í gerðum samn­ingum og hafa krafið sam­tökin um end­ur­greiðslu á 174,5 millj­ónum króna.

Auk þess hefur málið verið sent til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna grun­semda um lög­brot. SÁÁ hefur hafnað öllum ásök­unum og for­svars­menn sam­tak­anna sagst slegnir yfir stöð­unni sem upp er komin. Í yfir­lýs­ingu fram­kvæmda­stjórnar sam­tak­ana, sem send var út í síð­ustu viku, sagði meðal ann­ars: „„Fram­kvæmda­stjórn SÁÁ harmar þann far­veg sem málið er komið í. Af hálfu SÁÁ hefur verið reynt að skýra hvernig verk­lagi var hátt­að, en í bréfi Ara Matth­í­as­son­ar, deild­ar­stjóra eft­ir­lits­deildar SÍ, sem dag­sett er 29. des­em­ber 2021 og birt er á vis­ir.is, er ekki tekið til­lit til þeirra skýr­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár