Ekki hægt að grípa til staðlaðra viðbragða við veirunni

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að vega og meta þurfi marga þætti þegar grípa þarf til sótt­varna­ráð­staf­ana vegna COVID-19. Sumir þeirra séu mæl­an­legir en aðrir hug­lægir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Almennt má segja að ef hörðum sótt­varna­ráð­stöf­unum er beitt á landa­mærum þá er hægt slaka á ráð­stöf­unum inn­an­lands, og öfugt, skrifar Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í nýjasta minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra. Hann segir nán­ast úti­lokað að nota „skapa­lón“ til að áhættu­meta útbreiðslu veirunnar og grípa þannig til staðl­aðra við­bragða á til­teknum tímum.

„Ég tel því að núver­andi fyr­ir­komu­lag um almennar og opin­berar sótt­varna­að­gerðir eins og sótt­varna­lög segja fyrir um tryggi best fag­leg við­brögð vegna COVID-19. Þegar kemur hins vegar að mati á áhrifum sótt­varna­ráð­staf­ana á efna­hag og atvinnu­líf er það utan sér­fræði­þekk­ingar sótt­varna­læknis.“

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra kynnti minn­is­blaðið á fundi rík­is­stjórnar í dag en í því er fjallað um þá þætti sem sótt­varna­læknir leggur til grund­vallar að til­lögum til heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mark­anir og aðgerðir vegna COVID-19.

[adspot]

Frá því að far­aldur COVID-19 hófst hér á landi í lok febr­úar 2020 hafa opin­berar aðgerðir gegn far­aldr­inum falist í almennum og opin­berum sótt­varna­ráð­stöf­unum eins og þær eru skil­greindar í sótt­varna­lögum nr. 19/1997. Samkvæmt lög­unum þá ákveður heil­brigð­is­ráð­herra að fengnum til­lögum frá sótt­varna­lækni hvort grípa skuli til opin­berra sótt­varna­ráð­staf­ana en sótt­varna­læknir getur beitt slíkum vörnum til bráða­birgða án þess að leita heim­ildar fyrir fram ef hann telur að hvers konar töf sé hættu­leg en gera skal hann ráð­herra jafn­skjótt kunnar ráð­staf­anir sínar.

[links]Tillögur og ákvarð­anir sótt­varna­læknis er varða sótt­varnir vegna COVID-19 byggja m.a. á far­alds­fræði sjúk­dóms­ins inn­an­lands sem og erlendis. „Líkurnar á því að veiran (SARS-CoV-19) ber­ist hingað til lands eru einkum háðar útbreiðslu hennar erlendis, fjölda ein­stak­linga sem ferð­ast hingað til lands, frá hvaða löndum/svæðum þeir koma og hversu lík­legir þeir eru að bera með sér smit,“ skrifar Þórólfur. „Líkur á dreif­ingu veirunnar inn­an­lands fara síðan eftir því hversu lengi ein­stak­lingar dvelja hér á landi, hversu náið sam­neyti þeir hafa við Íslend­inga og hversu vel þeir sinna ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum.“

Tillögur sótt­varna­læknis hafa einnig byggst á skimunum fyrir veirunni og rann­sóknum á sjúk­dómnum í sam­fé­lag­inu. „Þar sem að COVID-19 sjúk­dóm­ur­inn er í mörgum til­fellum ein­kenna­lít­ill/-laus þá geta margir ein­stak­lingar ferð­ast um ógreindir og smitað aðra,“ bendir Þórólfur á. Þá þarf einnig að taka til­lit til smit­hæfni veirunnar.

Einnig gerir sótt­varna­læknir sínar til­lögur út frá alvar­leika sjúk­dóms­ins og getu heil­brigð­is­kerf­is­ins til að ann­ast sjúk­linga sem með hann grein­ast.

Þórólfur skrifar að einnig sé mik­il­vægt að taka ákvarð­anir út frá sam­fé­lags­legum áhrifum og trú­verð­ug­leika ráð­staf­ana.

„Þannig er ljóst að marga þætti þarf að vega og meta þegar grípa þarf til almennra og/eða opin­berra sótt­varna­ráð­staf­ana vegna COVID-19,“ skrifar hann í minn­is­blaði sínu. „Ýmsir þættir sem nefndir hafa verið eru mæl­an­legir meðan að á aðra þætti þarf að leggja hug­lægt mat enda margt enn á huldu varð­andi veiruna SARS-CoV-2 og sjúk­dóm­inn COVID-19.“

Umræður hafa verið uppi hér­lendis og erlendis um hvort ekki sé hægt að nota „skapa­lón“ til að áhættu­meta útbreiðslu veirunnar og grípa þannig til staðl­aðra við­bragða á til­teknum tímum. „Þar sem að áhættu­mat á hverjum tíma byggir á fjölda þátta sem nefndir hafa verið hér að ofan þá tel ég nán­ast úti­lokað að nota slíkt skapa­lón á þennan máta. Þó er unnið að skil­grein­ingum fyrir fyr­ir­tæki og ýmis­konar starf­semi til að styðj­ast við þegar mat er lagt á við­brögð hverju sinni t.d. sem snúa að upp­lýs­inga­miðlun.“

Hann lýkur minn­is­blað­inu á að þeim orðum að hann telji núver­andi fyr­ir­komu­lag um almennar og opin­berar sótt­varna­að­gerðir tryggja best fag­leg við­brögð vegna COVID-19. Þegar komi hins vegar að mati á áhrifum sótt­varna­ráð­staf­ana á efna­hag og atvinnu­líf sé það utan sér­fræði­þekk­ingar sótt­varna­læknis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár