Mynd: Bára Huld Beck

„Allir vinna“ … en aðallega byggingarverktakar og tekjuhæstu Íslendingarnir

Bygg­inga­fyr­ir­tæki fengu rúm­lega þriðj­ung allra end­ur­greiðslna vegna „Allir vinna“. Alls fóru 4,1 millj­arður króna af end­ur­greiðslum til ein­stak­linga og hús­fé­laga til þeirra tíu pró­sent lands­manna sem voru með mesta tekjur.

Íslenska ríkið greiddi alls 15 millj­arða króna í end­ur­greiðslur vegna „Allir vinna“-átakið á árunum 2020 og 2021. Þar sem umsókn­ar­frestur fyrir end­ur­greiðslur er sex ár, og töl­urnar miða við stöðu afgreiddra umsókna 15. febr­úar síð­ast­lið­inn, býst fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið við því að end­ur­greiðslu­fjár­hæðin muni hækka og áætlar að sú hækkun geti numið alls um þremur millj­örðum króna. Að teknu til­liti til þess er áætl­aður þegar til­fall­inn heild­ar­kostn­aður vegna átaks­ins 18 millj­arðar króna. Þá er ótalið að úrræðið var fram­lengt við fjár­laga­vinnu síð­asta árs og er enn í gildi. Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þess á því enn eftir að aukast.

„Allir vinna“ átakið felur í sér end­ur­greiðslu á 100 pró­sent af virð­is­auka­skatti vegna ýmiss konar iðn­að­ar­vinnu, aðal­lega vegna nýbygg­ingar og við­hald hús­næðis en meg­in­þorri end­ur­greiðslu­upp­hæð­ar­innar fellur undir þann flokk. Átakið var hluti af efna­hags­að­gerð­ar­pakka sem rík­is­stjórnin kynnti í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og felur í sér að end­ur­greiðslur voru hækk­aðar úr 60 í 100 pró­sent í sumum til­vikum og í öðrum voru þær látnar ná yfir þjón­ustu sem það náði ekki yfir áður.

Samkvæmt svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar um „Allir vinna“ fór stærstur hluti end­ur­greiðsln­anna vegna átaks­ins á árunum 2020 og 2021 til bygg­inga­fyr­ir­tækja, eða 5,6 millj­arðar króna. Það er rúm­lega þriðj­ungur allra þegar útgreiddra end­ur­greiðslna.

Ráðuneytið vildi úrræðið burt og sagði það þensluhvetjandi

Til stóð að lækka þessar end­ur­greiðslur úr 100 í 60 pró­sent sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2022. Samtök iðn­að­ar­ins, sem gæta meðal ann­ars hags­muna bygg­inga­fyr­ir­tækja, lögð­ust gegn þess­ari lækkun og fóru fram á að átakið yrði fram­lengt í eitt ár til að takast á við það sem þau köll­uðu slaka í bygg­ing­ar­iðn­aði, þrátt fyrir að tæp­lega þús­und fleiri hafi starf­aði í geir­anum í fyrra­haust en fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur.

Hækkun á endurgreiðslum undir hatti „Allir vinna“ var hluti af efnahagspakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var stuttu eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á.
Hækkun á end­ur­greiðslum undir hatti „Allir vinna“ var hluti af efna­hag­s­pakka rík­is­stjórn­ar­innar sem kynntur var stuttu eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á.

Við þing­lega með­ferð máls­ins skil­aði skatta­skrif­stofa fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins af sér minn­is­blaði þar sem hún mælti með því að fallið yrði að öllu leyti frá 100 pró­sent end­ur­greiðslu á virð­is­auka­skatti. Meðal ann­ars var vísað til þess að um væri að ræða inn­spýt­ingu fjár­magns í þegar þanið hag­kerfi – en hag­spár bæði Seðla­banka og Hag­stof­unnar gera ráð fyrir því að fram­leiðslu­spenna mynd­ist í þjóð­ar­bú­inu á þessu ári.

Auk þess benti fjár­mála­ráðu­neytið á að búist væri við vexti í íbúða­fjár­fest­ingu. „Þessar spár benda ekki til að þörf sé fyrir sér­stakan skatta­hvata í bygg­ing­ar­starf­semi. Varð­andi end­ur­bætur og við­hald íbúð­ar­hús­næðis þá bendir fátt til verk­efna­skorts. Sú hæfni sem þarf til þeirra verk­efna nýt­ist einnig við bygg­ingu nýs íbúð­ar­hús­næð­is. [...] Auk þess bendir margt til þess að umfram­eft­ir­spurn sé eftir iðn­að­ar­mönnum og myndi áfram­hald­andi skatta­hvati fremur við­halda því ójafn­vægi en draga úr því.“

Efnahags- og við­skipta­nefnd, undir for­mennsku Guðrúnar Haf­steins­dóttur úr Sjálf­stæð­is­flokki, sem er fyrr­ver­andi for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins, ákvað hins vegar að mæl­ast til þess að úrræðið fyrir starf­semi tengdri bygg­ing­ar­fram­kvæmdum og við­haldi hús­næðis yrði fram­lengt að fullu út ágúst í ári og frá 1. sept­em­ber muni end­ur­greiðslan mið­ast við 60 pró­sent af því sem ætti ann­ars að fara til rík­is­sjóðs sem virð­is­auka­skatt­ur.

Það var sam­þykkt.

Óskaði eftir sundurliðun

Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar, sem gagn­rýndi ráð­stöf­un­ina og skort á rök­semda­færslu fyrir fram­leng­ingu úrræð­is­ins harð­lega í minni­hluta­á­liti sínu úr fjár­laga­nefnd, beindi í jan­úar fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvernig end­ur­greiðslur vegna „Allir vinna“ skipt­ust eftir sveit­ar­fé­lög­um, lög­að­il­um, ein­stak­lingum og tekju­tí­und­um.

Guðrún Hafsteinsdóttir beitti sér fyrir því að „Allir vinna“ átakið yrði framlengt. Kristrún Frostadóttir gagnrýndi þá ákvörðun harðlega.
Guðrún Haf­steins­dóttir beitti sér fyrir því að „Allir vinna“ átakið yrði fram­lengt. Kristrún Frosta­dóttir gagn­rýndi þá ákvörðun harð­lega.

Svar barst í gær, rúmum fjórum mán­uðum eftir að fyr­ir­spurnin var lögð fram. Þar kemur fram að heild­ar­kostn­aður vegna end­ur­greiðslu á árunum 2020 og 2021, og fram til 15. febr­úar 2022, var rúm­lega 15 millj­arðar króna. Þar af fóru 4,5 millj­arðar króna til ein­stak­linga, 2,7 millj­arðar króna til hús­fé­laga, leigu­fé­laga eða félaga­sam­taka, 1,9 millj­arðar króna til sveit­ar­fé­laga og 298 millj­ónir króna til almanna­heilla­fé­laga. Stærsta upp­hæðin, alls 5,6 millj­arðar króna, fór hins vegar, líkt og áður sagði, til bygg­inga­fyr­ir­tækja.

Búist er við því að þrír millj­arðar króna bæt­ist við í end­ur­greiðslur vegna tíma­bils­ins þar sem hægt er að sækja um þær í allt að sex ár eftir að verkið er unnið. Auk þess er átakið enn í fullu gildi og því mun heild­ar­talan vegna end­ur­greiðslna hækka umtals­vert til við­bótar.

Rúmur helmingur af greiðslum til einstaklinga til efstu tekjutíundar

Kristrún óskaði einnig eftir því að end­ur­greiðslur til ein­stak­linga sem nýttu sér úrræðið yrðu sund­ur­lið­aðar eftir tekju­tí­und­unum.

Samkvæmt svari ráðu­neyt­is­ins voru end­ur­greiðslur vegna íbúð­ar­hús­næðis í mörgum til­fellum ekki greiddar beint til ein­stak­linga heldur til hús­fé­laga. „Gögn um þá ein­stak­linga sem eiga aðild að hús­fé­lögum sem fá slíka end­ur­greiðslu eru ekki í gagna­grunni Skatts­ins um end­ur­greiðsl­urnar. Af þeim sökum gefur tekju­tí­unda­dreif­ingin aðeins mynd af dreif­ingu þeirra end­ur­greiðslna sem ein­stak­lingar sóttu sjálfir um. Hún nær ekki til end­ur­greiðslna sem nýtt­ust ein­stak­lingum vegna íbúð­ar­hús­næðis í eigu þeirra í þeim til­vikum þegar hús­fé­lög standa fyrir við­kom­andi fram­kvæmdum í fjöl­býl­is­húsum. Samkvæmt gögnum Skatts­ins námu end­ur­greiðslur til hús­fé­laga vegna end­ur­bóta og við­halds íbúð­ar­hús­næðis 1.639 millj. kr. árið 2020. Þar sem það sam­svarar um tveimur þriðju hlutum af greiðsl­unum sem heim­færðar eru á ein­stak­linga er ljóst að dreif­ing þeirra eftir tekju­tí­undum sem hér er sett fram gefur að öllum lík­indum ekki rétta mynd.“

Í þeirri sund­ur­liðun ráðu­neytið birtir um skipt­ingu milli tekju­tí­unda segir að greiðslur til ein­stak­linga og hús­fé­laga sem eru fram­tals­skyld hér­lendis hafi verið tæp­lega 7,6 millj­arðar króna. Þar af hafi 4,1 millj­arður króna farið til efstu tekju­tí­undar, þeirra 24.026 fjöl­skyldna sem höfðu hæstu tekj­urnar árið 2020. Lægstu heild­ar­tekjur þeirra á því ári voru 18,1 milljón króna, eða um 1,5 millj­ónir króna á mán­uði. Það þýðir að tekju­hæstu tíu pró­sent heim­ila í land­inu fékk um 54 pró­sent af end­ur­greiðsl­unum sem fóru til heim­ila. Næst tekju­hæsta tíundin fékk 1,4 millj­arða króna og sú þriðja tekju­hæsta 829 millj­ónir króna. Því fengu þær 30 pró­sent fjöl­skyldna sem voru með hæstu tekj­urnar alls rúm­lega 6,3 millj­arða króna, eða 83 pró­sent end­ur­greiðslna sem runnu til fjöl­skyldna.

Ekkert mat framkvæmt á áhrifum á innheimtu tekjuskatts

Í fyr­ir­spurn Kristrúnar var einnig kallað eftir upp­lýs­ingum um hvort fram hafi farið mat á áhrifum „Allir vinna“ á inn­heimtu tekju­skatts.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að ekk­ert mat hafi fram fram á þeim áhrifum með kerf­is­bundnum hætti. „Hlið­stætt verk­efni, þó með þrengra gild­is­sviði, gilti á árunum 2009–2014 og er lík­legt að bæði þá og nú hafi verk­efnið haft þau áhrif að auka tekjur rík­is­ins af tekju­skatti. Það leiðir af því að fyr­ir­komu­lagið felur í sér fjár­hags­legan hvata sem ætti að auka líkur á því að vinna við slík verk sé talin fram til skatts, auk þess að upp­lýs­ingar um ein­stök verk­efni og verk­sala sem fylgja umsóknum um end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts geta almennt komið skatt­yf­ir­völdum að gagni við skatt­eft­ir­lit. Tekju­á­bat­inn er þó óreglu­legur og getur komið fram á löngum tíma eftir að sótt er um end­ur­greiðslu. Nokkuð langan tíma myndi því taka að meta áhrifin með sam­ræmdri aðferða­fræði á grund­velli upp­lýs­inga um ein­stök mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár