V (12,2%): Konur með áhyggjur af hlýnun jarðar en horfa lítið á Netflix

Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síð­ustu könn­unum MMR sem sýna hver lík­leg­asta áferð með­al­kjós­anda hvers flokks er. Hér að neðan er umfjöllun um kjós­endur Vinstri grænna.

Flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur er sá rík­is­stjórn­ar­flokkur sem goldið hefur mest fyrir hið óvenju­lega rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Sam­an­lagt fylgi hans í ágúst og sept­em­ber mælist 12,2 pró­sent, sem þýðir að hátt í þriðj­ungur af fylgi flokks­ins er horf­inn frá síð­ustu kosn­ingum.

Tölur MMR sýna að konur eru mun lík­legri en karlar til að kjósa Vinstri græn. Stuðn­ingur hans er lang­mestur á Norð­ur­landi þar sem hann mælist stærstur allra flokka með 18,4 pró­sent stuðn­ing á heima­slóðum fyrr­ver­andi for­manns­ins Stein­gríms J. Sig­fús­sonar. Eina lands­svæðið utan þess þar sem fylgið er í takt við heild­ar­fylgið er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ann­ars­staðar á land­inu eru Vinstri græn með eins stafa fylgi og minnst á Aust­ur­landi, þar sem ein­ungis 5,9 pró­sent kjós­enda segj­ast styðja flokk­inn.

[adspot]Flestir kjós­endur Vinstri grænna eru með háskóla­menntun en flokk­ur­inn nýtur líka ágætis stuðn­ings á meðal þeirra sem hafa ein­ungis lokið grunn­menntun. Lægri hluti milli­tekju­hópa er lík­leg­astur til að kjósa flokk­inn og það er kannski ekki óvænt tíð­indi að flokkur með orðið „vinstri“ í nafn­inu sínu njóti minnst stuðn­ings hjá tekju­hæsta hópnum í sam­fé­lag­inu.

Þegar fyrri kann­anir árs­ins, sem skoða sér­tækt annað en bara fylgi flokka, eru skoð­aðar kemur í ljós að kjós­endur Vinstri grænna voru lík­legri en kjós­endur ann­arra flokka að ætla að ferð­ast í sum­ar­frí­inu sínu, jafnt inn­an­lands sem utan, lang­lík­leg­astir til að borða græn­metis- eða vegan­fæði, höfðu miklar áhyggjur af hlýnun jarðar og ansi hlynntir veggjöldum. Þeir voru hins vegar ólík­leg­astir til að vera með áskrift af Netflix eða virkt Costco aðild­ar­kort og eru að uppi­stöðu mjög and­vígir því að ferskt kjöt verði flutt til lands­ins frá öðrum löndum innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins.

Grein­ingin er hluti af stærri umfjöllun þar sem kjós­endur allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi eru teknir fyrir. Hún byggir á ítar­legum gögnum frá MMR úr könn­unum sem fyr­ir­tækið hefur fram­kvæmt á fylgi flokka í ágúst og sept­em­ber 2019 auk fjölda ann­arra sér­tækra kann­ana um ýmis álita­mál sem MMR hefur fram­kvæmt á þessu ári. Hægt er að lesa heild­ar­um­fjöll­un­ina hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár