Fylgi Vinstri grænna ekki mælst minna síðan skömmu eftir formannsskipti 2013

Fylgi Pírata og Sam­fylk­ingar hefur ekki mælst hærra á þessu kjör­tíma­bili en það ger­ist nú. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist annan mán­uð­inn í röð með um 20 pró­sent fylgi og Vinstri græn mæl­ast verr en þau hafa gert í níu ár.

Gengi ríkisstjórnarflokkanna hefur verið æði misjafnt það sem af er kjörtímabili. Framsókn mælist í kjörfylgi á meðan að hinir tveir flokkarnir mælast nálægt því lægsta fylgi sem þeir hafa nokkru sinni mælst með.
Gengi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hefur verið æði mis­jafnt það sem af er kjör­tíma­bili. Framsókn mælist í kjör­fylgi á meðan að hinir tveir flokk­arnir mæl­ast nálægt því lægsta fylgi sem þeir hafa nokkru sinni mælst með. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja stendur nán­ast í stað milli mán­aða. Alls segj­ast 45,7 pró­sent þjóð­ar­innar styðja þá þrjá flokka eins og stendur en sam­eig­in­legt fylgi þeirra í lok apríl mæld­ist 45,5 pró­sent.

Sam­an­lagt hafa flokk­arnir þrír tapað 8,6 pró­sentu­stigum af fylgi frá síð­ustu kosn­ingum.

Eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist nú yfir kjör­fylgi er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Fylgi hans í maí mæld­ist 17,5 pró­sent, sem er rétt yfir nið­ur­stöðu síð­ustu þing­kosn­inga þar sem flokk­ur­inn fékk 17,3 pró­sent atkvæða.

[adspot]Vert er að minna á að Framsókn vann mik­inn kosn­inga­sigur víða um land í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum sem fóru fram í síð­asta mán­uði og sýni­legur með­byr með flokknum. Fylgi Fram­sóknar eykst um tæp tvö pró­sentu­stig milli mán­aða.

Þetta kemur fram í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkur í sögulegum lægðum

Vinstri græn mæl­ast nú með minnsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með síðan vorið 2013, en 8,1 pró­sent kjós­enda segja að þeir myndu kjósa flokk­inn, sem er tveimur pró­sentu­stigum minna fylgi en mæld­ist í apríl. Hann hefur tapað 4,5 pró­sentu­stigum af fylgi frá síð­ustu kosn­ingum, eða þriðj­ungi þess. Þegar horft er aftur til kosn­ing­anna 2017, þegar Vinstri græn fengu 16,9 pró­sent atkvæða, hefur fylgið meira en helm­ing­ast.

Yfirlit Gallup yfir fylgi flokka sam­kvæmt könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins nær aftur til maí­mán­aðar 2004. Frá upp­hafi þess tíma­bils og til loka nóv­em­ber­mán­aðar 2012 fór fylgi Vinstri grænna aldrei undir tíu pró­sent og í kosn­ingum sem flokk­ur­inn fór í gegnum var það á bil­inu 14,4 til 21,7 pró­sent. Á þessum árum var Stein­grímur J. Sig­fús­son for­maður flokks­ins, en hann var helsti for­víg­is­maður þess að hann var stofn­aður árið 1999.

Stein­grímur til­kynnti um miðjan febr­úar 2013 að hann ætl­aði ekki að gefa kost á sér áfram sem for­maður á lands­fundi sem fór fram um viku síðar. Á þeim tíma mæld­ist fylgi Vinstri grænna lægra en nokkru sinni áður í könn­unum Gallup, eða 7,4 pró­sent.

Katrín Jak­obs­dóttir tók við for­mennsku í flokknum 23. febr­úar 2013. Frá þeim tíma hafa Vinstri græn ein­ungis einu sinni mælst með minna fylgi en nú í fullri könnun Gallup. Í viku­legri könnun í aðdrag­anda kosn­inga sem birt var 11. apríl það ár mæld­ist fylgið 7,4 pró­sent. Þess ber að geta að þá voru Vinstri græn á loka­metrum í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi við Sam­fylk­ing­una sem reynst hafði afar óvin­sælt þegar leið á. Einungis 34 pró­sent lands­manna studdu þá rík­is­stjórn þegar stuðn­ingur hana var síð­ast mældur. Í kosn­ing­unum í apríl 2013 fengu Vinstri græn 10,2 pró­sent atkvæða.

[adspot]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór í fyrsta sinn í sögu sinni undir 20 pró­sent fylgi í könnun Gallup í síð­asta mán­uði, þegar fylgið mæld­ist 19,8 pró­sent. Fylgi hans er nán­ast á sama stað núna og breyt­ingar vel innan skekkju­marka, en 20,1 pró­sent segj­ast nú styðja flokk­inn. Hann hefur tapað 4,3 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum.

Bæði Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokki gekk víða mun verr en þau höfðu von­ast til í nýaf­stöðnum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Í stærsta sveit­ar­fé­lag­inu, Reykja­vík­ur­borg, fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sína verstu kosn­inga­nið­ur­stöðu frá upp­hafi og Vinstri græn fengu ein­ungis fjögur pró­sent atkvæða í kjör­dæmum tveggja helstu leið­toga hans, Katrínar Jak­obs­dóttur og Svan­dísar Svav­ars­dóttur.

Gangur hjá miðjuflokkunum í andstöðunni

Píratar mæl­ast þriðji stærsti flokkur lands­ins með 14,7 pró­sent fylgi og skammt á hæla þeirra kemur Sam­fylk­ingin með 14,1 pró­sent. Það er mesta fylgi sem báðir þeir flokkar hafa mælst með það sem af er kjörtima­bili.

[links]Viðreisn mælist svo með 9,5 pró­sent. Allir þessir flokkar bæta við sig fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. Þá fengu þeir sam­tals 26,8 pró­sent atkvæða en mæl­ast nú með 38,3 pró­sent fylgi, eða 11,5 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu í kosn­ing­unum í fyrra­haust. Flokk­arnir þrír hafa ekki mælst með jafn mikið sam­eig­in­legt fylgi í könnun Gallup frá því í jan­úar 2021. Yrði þetta nið­ur­staða kosn­inga ættu þessir þrír flokkar að geta myndað öruggan meiri­hluta með Fram­sókn­ar­flokki en sem stendur er það stjórn­ar­mynstur í mótum í Reykja­vík­ur­borg.

Hinir tveir flokk­arnir í stjórn­ar­and­stöðu, Flokkur fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn, hafa báðir tapað fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. Sá fyrr­nefndi mælist nú með 6,4 pró­sent fylgi, sem er 2,4 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi, og 4,3 pró­sent segj­ast styðja þann síð­ar­nefnda, rúmu pró­sentu­stigi færri en gerðu það í sept­em­ber 2021. Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með fimm pró­sent fylgi, en hann náði ekki inn á þing í síð­ustu kosn­ingum eftir að hafa fengið 4,1 pró­sent fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár