ASÍ vill að ríkið eignist hlut í fyrirtækjum sem fá verulegan stuðning úr ríkissjóði

Alþýðu­sam­bandið kynnti í dag til­lögur sem það kallar „réttu leið­ina“ úr úr COVID-19 krepp­unni. ASÍ telur stjórn­völd eiga að grípa til bráða­að­gerða að verja afkomu almenn­ings og setja stór­aukin skil­yrði fyrir rík­is­stuðn­ingi til fyr­ir­tækja.

Drífa Snædal forseti ASÍ á blaðamannafundinum í dag.
Drífa Snædal for­seti ASÍ á blaða­manna­fund­inum í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Alþýðu­sam­band Íslands vill að íslenska ríkið eign­ist hlut í öllum þeim fyr­ir­tækjum sem fá meira en 100 millj­ónir króna í stuðn­ing frá rík­inu vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Einnig vill sam­bandið að fyr­ir­tæki verði til fram­tíðar skyldug til þess að eiga fyrir launa­greiðslum til þriggja mán­aða, áður en þau geti greitt út arð, óum­samda kaupauka eða keypt eigin hluta­bréf.

Þetta er á meðal þess sem kom fram á blaða­manna­fundi Alþýðu­sam­bands­ins í dag, þar sem þær aðgerðir sem sam­bandið telur „réttu leið­ina“ í efna­hags­málum á tímum yfir­vof­andi kreppu og til fram­tíðar voru kynntar af Drífu Snædal for­seta ASÍ og Krist­jáni Þórði Snæ­bjarn­ar­syni 1. vara­for­seta sam­bands­ins.

Alþýðu­sam­bandið segir réttu leið­ina út úr kreppu vera að tryggja afkomu fólks og verja heim­ilin og leggur til nokkurn fjölda aðgerða sem hægt væri að grípa til strax í þessu skyni.

Þannig vill sam­bandið meðal ann­ars að ákvæði um hluta­bætur verði virkt „þar til þess er ekki lengur þörf“ og að komið verði til móts við for­eldra ungra barna sem hafa þurft að vera frá vinnu vegna skerts leik­skóla- og skóla­halds.

Þá vill ASÍ að grunnatvinnu­leys­is­bætur verði hækk­aðar í 335 þús­und krónur þegar í stað og greiðslu­frestir lána fólks sem verður fyrir afkomu­bresti verði tryggðir og láns­tím­inn lengdur sem þeim nemi. Einnig leggur ASÍ til að komið verði í veg fyrir að lán­tak­endur hús­næð­is­lána og leigj­endur greiði kostnað vegna mögu­legrar verð­bólgu, með því að frysta teng­ingu við vísi­tölu.

Til við­bótar leggur ASÍ til að leigj­endur sem hafi orðið fyrir miklu tekju­falli öðlist tíma­bund­inn rétt til hærri húsa­leigu­bóta, náms­menn sem ekki fái sum­ar­störf fái atvinnu­leys­is­bætur og að fram­færsla útlend­inga á íslenskum vinnu­mark­aði sem falla utan kerfis verði tryggð.

Laun æðstu stjórnenda verði að hámarki þreföld meðallaun

Alþýðu­sam­bandið vill að „skýr skil­yrði“ verði sett fyrir öllum opin­berum stuðn­ingi við fyr­ir­tæki í gegnum krepp­una. Eitt skil­yrð­anna sem ASÍ nefnir er að laun æðstu stjórn­enda fyr­ir­tækis verði ekki hærri en sem nemur þre­földum með­al­heild­ar­launum í land­inu, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar.

Einnig vill ASÍ að fyr­ir­tæki sýni fram á að þau fylgi kjara­samn­ingum, hafi ekki gerst sek um launa­þjófnað og stundi ekki félags­leg und­ir­boð. Þá vill ASÍ að eig­endur fyr­ir­tækja hafi þegar nýtt eigin bjargir og að tryggt sé að stuðn­ingur rík­is­ins nýt­ist til að við­halda störfum og skapa ný.

Að auki vill ASÍ, eins og áður sagði, að ef að opin­ber stuðn­ingur við fyr­ir­tæki nemi 100 millj­ónum króna eða meira eign­ist ríkið hlut í við­kom­andi fyr­ir­tæki, til sam­ræmis við fram­lag sitt.

Gera kröfu um að verkalýðshreyfingin verði við borðið

Í ítar­legum bæk­lingi frá ASÍ, þar sem farið er yfir þessar til­lögur sem nefndar eru að ofan og fleiri, segir að verka­lýðs­hreyf­ingin geri kröfu um að vera „beinn þátt­tak­andi í öllum ákvörð­unum sem hafa áhrif á vinnu­markað og sem varða fram­tíð og afkomu launa­fólks.“

„Séu ákvarð­anir um atvinnu­upp­bygg­ingu og félags­legar aðgerðir teknar án sam­ráðs og án þeirrar reynslu sem í hreyf­ing­unni býr er hætt við að þær dugi ekki til fram­tíðar. Samtök sem starfa í þágu almanna­heilla og gæta rétt­inda við­kvæmra hópa eiga einnig rétt á að taka þátt í ákvarð­ana­töku sem þau varða,“ segir í bæk­lingnum.

Drífa Snædal sagði á fund­inum í dag að í þessum til­lögum ASÍ væri sótt til stefnu sam­bands­ins í gegnum tíð­ina, reynsl­unnar frá síð­ustu kreppu, en ekki síður í alþjóð­aum­hverfið, bæði til alþjóð­legu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og umræðu sem hefði átt sér stað á vett­vangi stofn­ana á borð við OECD og Alþjóða­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár