Hjúkrunarfræðingar kolfelldu kjarasamning: 88,4 prósent sögðu nei

Hjúkr­un­ar­fræð­ingar höfn­uðu nýgerðum kjara­samn­ingi félags­ins með miklum mun, en atkvæða­greiðsl­unni lauk á hádegi. Stjórn Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga lítur svo á að samn­ingar félags­ins við ríkið séu nú lausir og félagið mun fela lög­manni sínum að meta rétt­ar­stöðu félags­ins gagn­vart rík­inu.

Samn­ing­ur­inn var felldur með 1677 atkvæðum á móti 219, eða 88,4 pró­sentum gegn 11,6 pró­sentum. Kjörsókn var 84,8 pró­sent.

„Í kjöl­far laga­setn­ingar Alþingis, sem batt enda verk­falls­að­gerðir hjúkr­un­ar­fræð­inga, var það sam­eig­in­leg ákvörðun samn­inga­nefndar Fíh, trún­að­ar­manna­ráðs og fram­kvæmda­ráðs stjórnar félags­ins að rétt væri að gefa hjúkr­un­ar­fræð­ingum tæki­færi til að kjósa um til­boð rík­is­ins sem þá lá fyrir. Enda taldi samn­inga­nefnd Fíh að gerð­ar­dómi, sem Alþingi fól að ákvarða laun hjúkr­un­ar­fræð­ina, væru settar afar þröngar skorður,“ segir í til­kynn­ingu frá hjúkr­un­ar­fræð­ingum.

„Nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar und­ir­strikar stuðn­ing hjúkr­un­ar­fræð­inga við áherslur samn­inga­nefndar félags­ins um að stjórn­völd verði að bregð­ast við sann­gjörnum kröfum þeirra um að grunn­laun hjúkr­un­ar­fræð­inga verði sam­bæri­leg við aðrar háskóla­mennt­aðar stéttir og mark­visst verði dregið úr kyn­bundnum launa­mun. Fréttir af upp­sögnum hjúkr­un­ar­fræð­inga á síð­ustu vikum end­ur­spegla afstöðu þeirra til til­boðs rík­is­ins en ómögu­legt er að reka öfl­ugt og öruggt heil­brigð­is­kerfi án þátt­töku vel mennt­aðra hjúkr­un­ar­fræð­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár