Segir persónulegar skoðanir ráðherra ráða för en ekki hagsmuni ríkisins

Þing­maður Við­reisnar spurði mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra út í ákvarð­ana­töku um áfrýjun til Lands­réttar í dóms­máli ráð­herr­ans vegna ráðn­ingar ráðu­neyt­is­stjóra. Faglega að öllu staðið að mati ráð­herr­ans.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, beindi fyrirspurn sinni til mennta- og menningarmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma í dag.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, beindi fyr­ir­spurn sinni til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag. Mynd: Kjarninn/Samsett

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, segir að fag­lega hafi verið staðið að öllu þegar ákvörðun um áfrýjun í máli hennar gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur, skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, var tekin. Lilja hafi ráð­fært sig við settan rík­is­lög­mann strax eftir að dómur hér­aðs­dóms lá fyrir og gaum­gæfi­lega hafi verið farið yfir dóm­inn.

Forsaga máls­ins er sú að kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að því að Lilja hefði brotið jafn­rétt­islög með ráðn­ingu Páls Magn­ús­sonar í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins. Lilja stefndi Helgu í kjöl­farið til að fá úrskurð­inum hnekkt. Hér­aðs­dómur féllst ekki á kröfur Lilju með dómi sínum og þeim dómi hefur Lilja nú áfrýjað til Lands­réttar.

Lilja var til svara í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag þar sem hún var spurð út í vand­ræði vegna sam­ræmdra prófa og út í áfrýjun dóms­máls hennar til Lands­réttar. Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, beindi fyr­ir­spurn sinni um áfrýj­un­ina til Lilju.

„Þögn Framsóknarráðherranna um þetta mál hefur verið ærandi“

Þorbjörg Sigríður hóf mál sitt á því að vekja athygli á því hversu skamman tíma það tók mennta­mála­ráð­herra að ákveða áfrýjun. „Það tók hana reyndar umtals­vert lengri tíma að treysta sér í við­tal við fjöl­miðla um þetta sama mál og ég get ekki séð að ráð­herr­anum hafi legið sér­stak­lega á að taka ákvörðun um áfrýjun. Venjan er nefni­lega sú að lög­menn þeir rýna dóma og meta það hvort ástæða og efni séu til að fara af stað og hafa frest til þess í nokkrar vikur,“ sagði Þorbjörg Sigríður. [links]

Hún sagði málið vondan dóm um jafn­rétt­is­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins, flokks ráð­herr­ans, og að þögn ráð­herra flokks­ins vegna máls­ins hefði verið „ærandi“. Hún sagði skip­un­ina sem málið snýst um varða bæði hags­muni stjórn­sýsl­unnar og hags­muni alls almenn­ings. Hún sagði að ráð­herra hefði vissu­lega mikið svig­rúm í ráðn­ingum, krafan væri sú að ráð­herra gæti á end­anum rök­stutt ráðn­ingu. Rök­stuðn­ingur ráð­herra hefði fengið fall­ein­kunn hjá kæru­nefnd og aftur fyrir dómi. Þorbjörg spurði ráð­herra í lok fyr­ir­spurnar sinnar um það við hvern hún hefði ráð­fært sig áður en ákvörðun um áfrýjun var tekin og á hvaða lög­fræði­lega grunni sú ákvörðun væri byggð.

Gaumgæfilega farið yfir málið fyrir áfrýjun

Lilja byrj­aði á að taka það fram að fag­lega hefði verið staðið að öllu í tengslum við áfrýj­un­ina. Þegar úrskurður kæru­nefnd­ar­innar lá fyrir þá hefði hún leitað sér lög­fræði­legrar ráð­gjafar vegna þess að henni fannst málið alvar­legt.

„Eitt af því sem að kemur fram í þeim lög­fræði­á­litum sem ég afl­aði mér á sínum tíma er það að það þótti ekki vera nægi­lega vel rök­stutt að ráð­herra hefði mis­munað við­kom­andi aðila byggt á kyn­ferði. Og þetta kemur fram í þeim álitum sem ég afl­aði mér á sínum tíma,“ sagði Lilja. Hún hefði ráð­fært sig við settan rík­is­lög­mann og þau farið gaum­gæfi­lega yfir málið áður en til áfrýj­unar kom.

„Að sjálf­sögðu var málið und­ir­búið á sínum tíma. Það er mjög brýnt og fag­lega var staðið að öllu,“ sagði Lilja.

Ákvörðunin byggi á persónulegum skoðunum ráðherra

„Ég get ekki séð að ráð­herra sem að hefur hlotið dóm fyrir brot gegn jafn­rétt­islögum geti staðið hér í pontu og talað um að fag­lega hafi verið staðið að málum,“ svar­aði Þorbjörg þegar hún beindi fyr­ir­spurn til ráð­herr­ans síð­ara sinni. Hún sagði dóm­inn einmitt sýna að ekki hefði verið staðið fag­lega að málum.

Þá sagði hún hags­muni rík­is­ins ekki vera undir í mál­inu. „Þegar íslenska ríkið stendur í mála­ferlum þá á það að vera vegna þess að það eru ein­hverjir hags­munir að baki fyrir íslenska ríkið, fyrir íslenskan almenn­ing. Ákvörðun sem byggir á per­sónu­legum skoð­unum ráð­herra þjónar allt öðrum og verri til­gangi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár