„Þurfum meiri metnað og öflugri skuldbindingu“

Aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna hvetur til auk­inna lofts­lags­að­gerða.

António Guterres
António Guterres Mynd: EPA

António Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, hvatti til auk­inna lofts­lags­að­gerða að loknum leið­toga­fundi G7-ríkj­anna sem hann sótti sem gestur í Biarritz í Frakk­landi í dag. Par­ís­ar­sam­komu­lagið dygði ekki lengur. Frá þessu er greint í frétt Sam­ein­uðu þjóð­anna.

„Það er afar brýnt að ríki skuld­bindi sig til að bæta við það sem lofað var í París, því lof­orðin sem gefin voru þar hrökkva ekki til,“ sagði hann og bætti því við að því sem heitið var í París hefði ekki einu sinni verið hrint í fram­kvæmd. „Við þurfum meiri metnað, við þurfum öfl­ugri skuld­bind­ingu.“

Fram kemur í frétt­inni að hann hafi komið til Biarritz á leið­toga­fund G7 í því skyni að fylkja liði fyrir lofts­lags­að­gerða­fund leið­toga heims á Alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í sept­em­ber.

Sendi­nefnd­ir 195 þjóða sam­þykktu í París í Frakk­landi þann 12. des­em­ber 2015 sam­komu­lag til að reyna að vinda ofan af lofts­lags­breyt­ing­um sem or­sakað hafa hlýn­un jarðar. Sam­komu­lagið fel­ur meðal ann­ars í sér áætlan­ir um varn­ir gegn áhrif­un­um. Til­gang­ur sam­komu­lags­ins var að halda hlýn­un jarðar vel inn­an við 2 gráður og að kepp­ast að því að hún verði ekki meiri en 1,5 gráður ef mögu­legt væri.

Ungt fólk í fararbroddi

„Við höfum séð almenna borg­ara fylkja liði, ungt fólk fylkja liði og við von­umst til að ríki heims komi til New York til að skuld­binda sig til að ná kolefn­is­jöfn­uði fyrir 2050,“ sagði Guterres. „Til þess þarf að end­ur­skoða lands­á­ætl­anir um lofts­lags­að­gerðir sem end­ur­nýja ber eftir 2020. Og við verðum að hafa hug­fast að skatt­leggja ber kolefni ekki fólk. Binda ber enda á nið­ur­greiðslur á jarð­efna­elds­neyti og hætta að byggja kola-orku­ver eftir 2020.“

Aðal­fram­kvæmda­stjór­inn sagð­ist hafa sótt G7-fund­inn vegna þess að hann fæli í sér gott tæki­færi til að kalla eftir öfl­ugum aðgerðum af hálfu alþjóða­sam­fé­lags­ins. „Ung fólk hefur verið í far­ar­broddi og við munum byrja fund­inn með leið­toga­fundi ung­menna hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, en við þurfum á góðum for­dæmum að halda, ekki síst af hálfu þeirra sem til­heyra G7 ríkj­unum,” sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár