„Allir eru á dekki“ við að tryggja áfram landamæraskimun

Starfs­fólk Land­spít­al­ans hefur brugð­ist við „af ótrú­legri snerpu og atorku“ með það að mark­miði að tryggja að skimun á landa­mærum geti haldið áfram eftir 13. júlí. „Allir eru á dekki,“ segir Páll Matth­í­as­son, for­stjóri spít­al­ans.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans.
Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans. Mynd: Lögreglan

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, segir að spít­al­inn muni að sjálf­sögðu axla þá ábyrgð sem honum hefur nú verið falin með því að taka við grein­ingu sýna úr skimunum á landa­mærum. Ósk um það barst frá for­sæt­is­ráð­herra upp úr hádegi á þriðju­dag eftir að Íslensk erfða­grein­ing, sem hafði sinnt verk­efn­inu frá 15. júní, ákvað að hætta þátt­töku sinni í því.

Páll skrifar í for­stjórapistli sínum í dag að það sé skýrt að Land­spít­al­anum beri að sinna skimun fyrir sjúk­dómum sem hafa þýð­ingu fyrir almanna­heill. Sótt­varna­læknir hafi metið að það eigi við um þessa skimun.

[adspot]

„Allir eru á dekki við að tryggja að spít­al­inn geti tekið við verk­efn­inu 14. júlí næst­kom­andi,“ skrifar Páll. „Þar eiga sýkla- og veiru­fræði­deild spít­al­ans, heil­brigðis- og upp­lýs­inga­tækni­deild og reyndar allt þjón­ustu­svið mik­inn heiður skil­inn. Starfs­fólk hefur allt brugð­ist við af ótrú­legri snerpu og atorku með það að mark­miði að tryggja að skimun gegn SARS-CoV-2 veirunni haldi áfram eftir 13. júlí.“

Nú þegar Land­spít­al­inn taki við þessu „flókna og krefj­andi verk­efni“ njóti hann þekk­ingar Íslenskrar erfða­grein­ingar. „Starfs­menn þeirrar vís­inda­stofn­unar hafa sann­ar­lega reynst bak­hjarl þegar á hefur reynt í glímu við far­sótt­ina und­an­farna mán­uði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár