Öll HIV tilvik greind 2014 smituðust eftir kynlíf

Öll ný HIV smit í fyrra smit­uð­ust með kyn­lífi en ekk­ert þeirra var tengt fíkni­efna­neyslu. 13 fíkni­efna­tengd smit komu upp 2011. Sótt­varn­ar­læknir segir ljóst að HIV far­ald­ur­inn hafi dáið út meðal fíkni­efna­neyt­enda.

Öll ný HIV smit í fyrra smit­uð­ust með kyn­lífi en ekk­ert þeirra var tengt fíkni­efna­neyslu. 13 fíkni­efna­tengd smit komu upp 2011. Sótt­varn­ar­læknir segir ljóst að HIV far­ald­ur­inn hafi dáið út meðal fíkni­efna­neyt­enda.

Tilkynnt var um 13 ný HIV smit árið 2015 og tengd­ust áhættu­þættir kyn­lífi í öllum til­vikum. Fram kemur í síð­asta Frétta­bréfi sótt­varn­ar­læknis að sjö ein­stak­lingar sem greindust með veiruna höfðu stundað gagn­kyn­hneigt kyn­líf og sex höfðu stundað kyn­líf með ein­stak­lingi sama kyni. Af þessum 13 eru 11 karlar og tvær konur. Ekkert til­vikanna mátti rekja til fíkni­efna­neyslu.

Árin 2010 og 2011 kom sprengja í HIV smitum hér á landi, sem mátti rekja til hóps fíkni­efna­neyt­enda. Tekið var á mál­inu og gera má ráð fyrir því að það hafi skilað árangri. 

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir segir að hér hafi í raun aldrei verið mikið um HIV smit meðal fíkni­efna­neyt­enda, þó að far­ald­ur­inn hafi komið upp á þessum tveimur árum.

„Menn voru mjög hræddir að HIV væri komið til að vera innan þessa hóps,” segir hann. „En tölur síð­ustu ára sýna okkur að svo er ekki, sem betur fer.”

Heimild: Land­læknir

Mikill meiri­hluti þeirra sem greindust með HIV veiruna í fyrra er af erlendu bergi brot­inn, eða 10 af þessum 13. 

Þórólfur segir að erfitt sé að segja til um þró­un­ina hvað varðar smit meðal útlend­inga.

„Við vitum of lítið um þessa ein­stak­linga. Við vinnum bara töl­urnar út frá til­kynn­ingum sem við fáum. Það þarf að skoða töl­urnar betur í stærra sam­hengi til þess að hægt sé að túlka þær á réttan hátt,” segir hann.

Nokkuð hefur færst í vöxt að ein­stak­lingar sem flytj­ast til lands­ins hafi greinst með sjúk­dóm­inn erlendis og hafi þegar hafið með­ferð fyrir komu til lands­ins. Af þeim 13 sem greindust í fyrra á Íslandi reynd­ust tveir vera með alnæmi, loka­stig sjúk­dóms­ins, en eng­inn lést af völdum hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár