Heyrir „daglega um launaþjófnað, arðrán, misbeitingu, rugl og ógeð“

Tveir af þeim þremur sem lét­ust í brun­anum voru félags­menn Eflingar, verka­fólk af erlendum upp­runa sem kom hingað til lands til að vinna verka­manna­störf. Hér á landi „lentu þau í gildru ein­stak­lings“ sem leigði þeim hættu­legt hús­næði í óboð­legu umhverfi.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Efling krefst þess að félags­mála­ráð­herra og rík­is­stjórnin efni taf­ar­laust lof­orð um hertar aðgerðir gegn brota­starf­semi á vinnu­mark­aði, þar með talið lof­orð um sekt­ar­heim­ildir vegna kjara­samn­ings­brota og önnur við­ur­lög. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu stétt­ar­fé­lags­ins vegna brun­ans á Bræðra­borg­ar­stíg í síð­ustu viku.

Efling krefst þess enn fremur að allar stofn­anir hins opin­bera sem fara með eft­ir­lit varð­andi öryggi og heilsu borg­ar­anna sýni til­ætl­aða árvekni og taki eðli­legt frum­kvæði að íhlutun þegar við á, en sýni ekki af sér van­rækslu og sinnu­leysi þegar lág­launa­fólk eða fólk af erlendum upp­runa á í hlut.

Efling krefst þess að borin sé eðli­leg virð­ing fyrir lífi, heilsu og öryggi alls verka­fólks og að bund­inn verði endir á kerf­is­bundna mis­munun gegn verka­fólki af erlendum upp­runa.

Í til­kynn­ing­unni sendir stétt­ar­fé­lagið dýpstu sam­úð­ar­kveðjur til aðstand­enda þeirra sem létu lífið í brun­anum á Bræðra­borg­ar­stíg 1 þann 25. júní síð­ast­lið­inn. Jafn­framt sendir félagið bata­óskir til þeirra sem urðu fyrir tjóni og áfalli vegna brun­ans.

„Staðfest er að tvö af þeim þremur sem lét­ust í brun­anum voru félags­menn í Eflingu, verka­fólk af erlendum upp­runa sem komu hingað til lands til að vinna verka­manna­störf. Hingað komin lentu þau í gildru ein­stak­lings sem leigði þeim hættu­legt hús­næði í óboð­legu umhverfi.

Nið­ur­stöðu úr rann­sókn lög­reglu er beðið, en Efling getur þó ekki annað en sett brun­ann í sam­hengi við þá með­ferð sem aðflutt vinnu­afl verður fyrir á Íslandi. Enginn skortur hefur verið á ábend­ingum um lög­leysu og van­rækslu þegar kemur að stöðu erlends verka­fólks á Íslandi. Á það bæði við rétt­indi á vinnu­mark­aði og hús­næð­is­að­búnað,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Setti óeðlilegt samspil húsaleigukjara og ráðningarsambands á dagskrá í kjaraviðræðum við SA

Þá er bent á að skrifað hafi verið ítar­lega um ástand eign­ar­innar á Bræðra­borg­ar­stíg í Stund­inni fyrir fimm árum síðan. Stundin fjall­aði einnig um búsetu fjölda fólks, þar á meðal barna, í iðn­að­ar­hús­næði í jan­úar 2019. Kveikur á RÚV fjall­aði um líf fátækra, m.a. í iðn­að­ar­hús­næði, í mars 2020. Kveikur fjall­aði þar áður um brot gegn rétt­indum erlends verka­fólks sem þríf­ast undir hatti starfs­manna­leiga í októ­ber 2018.

„Efling setti óeðli­legt sam­spil húsa­leigu­kjara og ráðn­ing­ar­sam­bands á dag­skrá í kjara­við­ræðum við Samtök atvinnu­lífs­ins vet­ur­inn 2018-2019. Auk þess var sett fram skýr krafa um stór­hertar refsi- og sekt­ar­heim­ildir gegn kjara­samn­ings­brotum. Lend­ingin varð sú að rík­is­stjórnin setti fram mörg lof­orð um úrbætur á vinnu­mark­aðslög­gjöf­inni og hert við­ur­lög í skjal­inu „Stuðn­ingur stjórn­valda við lífs­kjara­samn­inga“. Efndir á þessum lof­orðum hafa enn ekki sést og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Eflingar frá ASÍ standa Samtök atvinnu­lífs­ins ein­örð gegn þeim,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Efling minnir jafn­framt á að öll þjón­usta félags­ins standi fórn­ar­lömbum brun­ans sem eru í Eflingu opin.

Verður að hafa raunverulegar afleiðingar

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, seg­ist harmi lostin. „Í starfi mínu síð­ustu tvö ár hef ég á hverjum ein­asta degi heyrt um launa­þjófnað, arð­rán, mis­beit­ingu, rugl og ógeð. „Besti vinnu­mark­aður í heimi“ er ekk­ert nema martröð fyrir mörg af okkar aðfluttu félögum.

Ég krefst þess að við hættum að þola skeyt­ing­ar­leysi þeirra sem völdin hafa yfir lífs­skil­yrðum félaga okkar sem þurfa mest af öllum á því að gengið verði í að bæta þeirra kjör og aðstæður. Hinn hræði­legi harm­leikur verður að hafa raun­veru­legar afleið­ingar. Ég hef engin orð til að lýsa Íslandi ef að það ger­ist ekki,“ sagði Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár