Þórdís Kolbrún: Að skila auðu fyndist mér frekt

Ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra gerði athuga­semd við tíst Gísla Marteins Bald­urs­sonar fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins er varð­aði lofts­lags­mál og það neyð­ar­á­stand sem hann segir ríkja í þeim málum.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Gísli Marteinn Bald­urs­son dag­skrár­gerð­ar­maður á RÚV og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir á Twitter neyð­ar­á­stand ríkja í lofts­lags­málum.

Vísar Gísli Marteinn í frétt RÚV þar sem segir að nýjar lands­á­ætl­anir þjóða heims í lofts­lags­málum dugi ekki til, eigi mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins að nást. Sé núver­andi mark­miðum fylgt megi gera ráð fyrir að losun minnki um tæp 8 pró­sent fyrir árið 2030, en hún þurfi að minnka um að minnsta kosti þriðj­ung og helst helm­ing til að ná 1,5 gráðu mark­mið­inu. „Það kostar tífalt meiri sam­drátt en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn olli árið 2020,“ segir í frétt RÚV.

„En for­rétt­inda­staða freka karls­ins (af báðum kynjum) er svo inn­gróin í okkur að við erum of hrædd til að segja honum mjög skýrt að við þurfum að keyra aðeins minna og borða aðeins minna kjöt. Frá og með deg­inum í dag,“ skrifar hann.

„Ísland á að menga meira því það er gott fyrir heiminn“ – Óboðleg stefna

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra svarar tíst­inu og segir að einnig megi „velta upp for­rétt­inda­stöðu lands sem á gríð­ar­lega verð­mætar auð­lindir sem má nýta á sjálf­bæran hátt með lág­marks raski (en raski þó) til að fram­leiða græna orku til að minnka losun í heim­inum, hætta að brenna jarð­efna­elds­neyti,“ skrifar hún og bætir því við að henni finn­ist það að skila auðu sé frekt.

Gísli Marteinn svarar og þakkar henni fyrir við­brögðin. „Takk Þórdís, vissu­lega rök. En ef þú ert að meina: „Ísland á að menga meira því það er gott fyrir heim­inn“ þá held ég að það sé óboð­leg stefna. Af hverju ekki að nota bíla minna? Ríki og borg ákváðu að við yrðum mesta bíla­þjóð heims, af hverju ekki að hverfa frá þeirri stefnu?“ spyr hann.

Flest ríki sólundað tækifærum sínum

Í frétt RÚV er farið yfir skýrslu Umhverf­is­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna en hún varpar ljósi á stöð­una nú og það bil sem þarf að brúa, eigi að takast að koma í veg fyrir að með­al­hiti á jörð­inni hækki meira en sem nemur tveimur gráðum umfram með­al­hita fyrir upp­haf iðn­bylt­ingar.

Í skýrsl­unni segir að flest ríki hafi sólundað tæki­færum sínum til þess að beina stór­auknum fjár­fest­ingum, sem ráð­ist var í vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, í kolefn­is­hlut­laus­ari átt. Þau ríki sem útdeildu stærstu hlut­deild inn­spýt­ing­ar­innar með hlið­sjón af lofts­lags­málum voru Þýska­land, Frakk­land, Kanada, Finnland, Noregur og Danmörk. Á bil­inu 39 til 75 pró­sent fjár­fest­inga þeirra töld­ust grænar.

Fátækari ríki hafa að sögn UNEP setið eftir og safnað skuldum, þau þurfi auk­inn stuðn­ing til að standa við lofts­lags­mark­mið sín, ella muni þau á næstu árum bæði leggja mest til lofts­lags­vand­ans og verða harð­ast fyrir barð­inu á honum. Sögulega hvíli mesta ábyrgðin þó á iðn­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár