Landhelgisgæslan siglir til Færeyja til að taka olíu á lægra verði

Aðeins 4% þeirrar olíu sem skip Land­helg­is­gæsl­unnar hafa tekið síð­ustu fjögur ár hefur verið keypt á Íslandi. Hag­stæð­ara er að kaupa olíu í Færeyjum og hefur íslenska ríkið fyrir vikið orðið af rúmum 300 millj­ónum í olíu­gjöld.

Varðskipið Þór
Varð­skipið Þór Var með flesta úthalds­daga á tíma­bil­inu sem um ræðir, eða 672.

Land­helg­is­gæslan hefur und­an­farin fjögur ár að lang­mestu leyti keypt olíu á íslenska flot­ann í Færeyjum, þar sem hún greiðir lægra verð fyrir olí­una en hér á landi.

Þar að auki hefur gæslan með þessu kom­ist hjá því að greiða olíu­gjald hér á landi og hefur ríkið þannig orðið af rúm­lega 300 millj­ónum króna.

Upp­lýs­inga­full­trúi gæsl­unnar, Sveinn H. Guð­mars­son, segir að sú stefna hafi verið mörkuð að gæta skuli ráð­deildar og aðhalds í rekstr­inum. Jafn­framt hafi gæslan getað fjölgað úthalds­dögum varð­skip­anna vegna þess sparn­aðar sem hlot­ist hafi af þessum olíu­kaupum.

80% í Færeyjum, 2% á Íslandi

Í svari Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn vara­þing­manns Pírata, Gunnars I. Guð­munds­sonar, um úthalds­daga Land­helg­is­gæsl­unnar, kemur fram að frá árinu 2013 hafa skip gæsl­unnar keypt um 80% af allri olíu í Færeyjum. Aðeins um 4% olí­unnar hafa verið keypt á Íslandi.

Alls tók gæslan 5.270.288 lítra af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár