Síminn fellir niður áskriftargjöld að enska boltanum

Síminn hefur tekið ákvörðun um að fella niður áskrift­ar­gjöld að enska bolt­anum frá og með 1. apríl og þar til bolt­inn byrjar að rúlla á ný. „Hugsaðu frekar um eigin heilsu, vini og ætt­ingja á þessum for­dæma­lausu tímum,“ segir Síminn við áskrif­endur sína.

Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton.
Gylfi Þór Sig­urðs­son, leik­maður Everton. Mynd: EPA

Síminn hefur ákveðið að fella niður áskrift­ar­gjöld að sjón­varps­stöð­inni Síminn Sport, sem sýnir ensku úrvals­deild­ina í knatt­spyrnu. Öllum leikjum í deild­inni hefur verið frestað vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar og ekki er ljóst hvenær bolt­inn rúllar á ný.

Síminn segir í tölvu­pósti til áskrif­enda að enska bolt­anum að þeir þurfi ekk­ert að aðhaf­ast né hafa „óþarfa áhyggjur af áskrift­inni“, hún muni ein­fald­lega verða virk á ný þegar enska úrvals­deildin fer aftur af stað, hvenær sem það verður.

Enska knatt­spyrnu­sam­bandið hefur gefið það út að deild­inni verði að minnsta kosti frestað fram í byrjun apríl, en senni­legt er að frest­unin verði mun lengri, vegna aðgerða til þess að sporna við útbreiðslu kór­ónu­veirunnar.

„Hugsaðu frekar um eigin heilsu, vini og ætt­ingja á þessum for­dæma­lausu tímum,“ segir Síminn við áskrif­endur sína, en fyr­ir­tækið tryggði sér sýn­ing­ar­rétt­inn að enska bolt­anum fyrir þetta tíma­bil með því að yfir­bjóða Sýn, sem áður hafði sýnt enska bolt­ann á Stöð 2 Sport.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár