Enn engin niðurstaða um meint samkeppnisbrot Mjólkursamsölunnar

Enn liggur ekki fyrir nið­ur­staða í rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á meintum sam­keppn­islaga­brotum Mjólk­ur­sam­söl­unnar gegn mjólk­ur­bú­inu Kú. Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála vís­aði mál­inu til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í des­em­ber, og eft­ir­litið hét því þá að hraða rann­sókn sinni.

Félag atvinnu­rek­enda hefur sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu erindi vegna máls­ins og ítrekað fyrri áskorun sýna um að mál­inu verði hraðað eins og hægt er. Ítrek­unin var send vegna ákvörð­unar verð­lags­nefndar búvara um hækkun á verði hrá­mjólkur til úrvinnslu. Mjólk­ur­búið Kú telur þá ákvörðun sér­stak­lega til þess fallna að ýta keppi­nauti MS af mark­aði og mun kæra ákvörð­un­ina til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins líka.


„Þetta er langur tími. Við höfum lagt fram til­lögur um hvernig megi gera þetta sam­keppn­is­rétt­ar­kerfi skil­virkara, því að sér­stak­lega fyrir svona lítil fyr­ir­tæki sem eiga í höggi við stóra keppi­nauta með miklar bjargir, sem hafa efni á færum lög­fræð­ingum og svo fram­vegis, þá bara er mjög erfitt að bíða svona lengi eftir nið­ur­stöðum í máli. Sum smærri fyr­ir­tæki bara hafa ekki úthald í það, þá vinnur kerfið gegn til­gangi sínum,“ segir Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri FA, í sam­tali við Kjarnann. „Þetta gerir smærri keppi­nautum rosa­lega erfitt fyrir.“


Forsaga máls­ins er sú að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektaði MS um 370 millj­ónir króna fyrir sam­keppn­is­brot gegn mjólk­ur­bú­inu Kú í sept­em­ber í fyrra. MS hefði mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að selja sam­keppn­is­að­ilum Kú, sem eru tengdir MS, hrá­mjólk á 17 pró­sent lægra verði en því sem Kú bauðst.


Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber að fella yrði úrskurð­inn úr gildi, vegna þess að MS upp­lýsti ekki eft­ir­litið um samn­ing á milli fyr­ir­tæk­is­ins og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sem á hlut í MS og er einn þeirra aðila sem fékk hrá­mjólk á lægra verði. MS lagði samn­ing­inn ekki fram fyrr en við mál­flutn­ing fyrir áfrýj­un­ar­nefnd­inni, þrátt fyrir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði ítrekað beðið um skýr­ingar og gögn frá fyr­ir­tæk­inu.


Áfrýj­un­ar­nefndin taldi að henni væri því skylt að vísa mál­inu aftur til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Áfrýj­un­ar­nefndin tók enga efn­is­lega afstöðu til máls­ins heldur taldi að ekki hefðu komið fram full­næg­andi skýr­ingar af hálfu MS á fram­kvæmd samn­ings­ins fyrir nefnd­inni. Þess vegna ætti Sam­keppn­is­eft­ir­litið að rann­saka málið aftur, með hlið­sjón af umræddum samn­ingi, og kom­ast að nýrri nið­ur­stöðu um hvort MS hefði brotið sam­keppn­is­lög.


Þetta var í des­em­ber, og í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans sagði Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, að eft­ir­litið myndi leggja áherslu á að hraða rann­sókn sinni. „Fyr­ir­fram er ekki hægt að full­yrða hvenær henni [rann­sókn­inni] lýkur, enda geta ýmis atvik hafa áhrif á með­ferð máls­ins, þar á meðal umfang og eðli þeirra upp­lýs­inga sem aflað verður og við­brögð aðila,“ sagði hann þá.


Kjarninn hefur sent fyr­ir­spurn til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um það hvernig mál­inu vindur fram og hvað veldur því að rann­sókn­inni er ekki lokið. Svar hefur ekki borist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár