Forstjóri OR stígur tímabundið til hliðar - Vill úttekt á vinnustaðamenningu

For­stjóri OR vill láta kanna ítar­lega hvernig vinnu­staða­menn­ingin er á staðnum, en fram­kvæmda­stjóri ON var á dög­unum rek­inn vegna óvið­eig­andi hegð­unar.

For­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur (OR), Bjarni Bjarna­son, hefur ákveðið að stíga tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, á meðan gerð er úttekt á vinnu­staða­menn­ingu.

„Ég hef óskað eftir því við for­mann stjórnar Orku­veitu Reykja­víkur að stíga tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri á meðan þau mál sem komið hafa upp verða skoðuð og úttekt gerð á vinnu­stað­ar­menn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. Ég tel afar mik­il­vægt bæði í þágu starfs­manna og almenn­ings að sú skoðun fari fram. Þar mega mínar ákvarð­anir ekki vera und­an­skildar.

Því tel ég rétt að víkja tíma­bundið á meðan málið er skoðað.

Starfs­fólk OR hefur lagt mikið á sig á síð­ustu árum við að byggja fyr­ir­tækið upp á ný úr krappri stöðu. Sú vinna hefur ekki síst snúið að auknu jafn­rétti kynj­anna og bættri vinnu­stað­ar­menn­ingu. Áríðandi er að halda þeirri mik­il­vægu vinnu áfram,“ segir í til­kynn­ingu frá Orku­veitu Reykja­víkur.

Fram kom í fréttum fyrir helgi að Bjarni Már Júl­í­us­son hefði verið rek­inn sem fram­kvæmda­stjóri Orku nátt­úr­unnar vegna óvið­eig­andi hegð­unar gagn­vart sam­starfs­fólki sínu.

Áslaug Thelma Ein­­ar­s­dótt­ir, sem sagt var upp störf­um hjá Orku nátt­úr­unn­ar fyr­ir viku, tjáir sig um málið á Face­book í dag. Hún gagn­rýnir for­stjóra Orku­veit­unnar harð­lega og seg­ist ætlar að leita réttar síns af fullum þunga. Í stöðu­upp­færslu sinni fer hún ítar­lega yfir brott­rekstur sinn hjá ON, sem hún segir til­hæfu­lausan, og seg­ist hún reið og slegin vegna afgreiðsl­unnar á mál­inu öllu.

Uppfært: Formaður stjórnar OR, Bryn­hildur Dav­íðs­dóttir, hefur sent frá sér eft­ir­far­andi til­kynn­ingu: „Ósk for­stjóra OR um að stíga tíma­bundið til hliðar, sem mér barst nú undir kvöld, verður tekin fyrir á fundi stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins sem hald­inn verður eins fljótt og auðið er. Þegar hefur verið óskað eftir því við Innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar að gerð verði úttekt á vinnu­stað­ar­menn­ingu og til­teknum starfs­manna­málum. Und­ir­bún­ingur hennar er þegar haf­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár