Ferðabann Bandaríkjaforseta mun hafa miklar efnahagslegar afleiðingar fyrir Ísland

Flestir ferða­menn sem heim­sækja Ísland koma frá Banda­ríkj­unum. Í fyrra skil­uðu þeir yfir tvö hund­ruð millj­örðum króna í tekjum inn í íslenskt atvinnu­líf.

Ákvörðun Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, um að setja á ferða­bann milli Banda­ríkj­anna og þeirra ríkja Evrópu sem til­heyra Schengen-svæð­inu, til að hindra útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum, mun hafa miklar efna­hags­legar afleið­ingar fyrir Ísland. Und­an­farin ár hafa flestir þeirra sem heim­sækja Ísland sem ferða­menn komið frá Banda­ríkj­unum. Í fyrra komu þaðan 464 þús­und manns, sem var þriðj­ungi færri en metárið 2018.

Ástæðan fyrir þeirri miklu fækkun milli ára var að uppi­stöðu gjald­þrot WOW air í mars­lok 2019, en flug­fé­lagið flaug á nokkra áfanga­staði í Norð­ur­-Am­er­ík­u.

Ferða­bannið, sem á að standa yfir í 30 daga frá og með kom­andi föstu­degi, mun virka þannig að öllum íbúum landa sem til­heyra Schengen-svæð­inu, þar á meðal Ísland og þorri Evrópu, verður meinað að koma til Banda­ríkj­anna á tíma­bil­inu. Banda­rískir rík­is­borg­arar og aðrir sem eru með fasta búsetu í Banda­ríkj­unum munu fá að ferð­ast ef þeir vilja en sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem birt var í nótt á vef heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins mun þeim banda­rísku far­þegum sem dvalið hafa á Schengen-svæð­inu hleypt inn í landið í gegnum valda flug­velli þar sem sér­stakar ráð­staf­anir verða gerðar til að skima fyrir smiti.

Allar líkur eru því til þess að flug milli Banda­ríkj­anna og landa sem til­heyra Evrópska efna­hags­svæð­inu muni að mestu liggja niðri á meðan að bannið stendur yfir, enda ólík­legt að flug­fé­lög muni fljúga mikið þegar þorri Evrópu má ekki koma til Banda­ríkj­anna, og Banda­ríkja­menn hafa verið hvattir til að fara helst ekki til Evrópu. 

Hundruð milljarða tekjur í húfi

Sú stað­reynd, að Banda­ríkja­menn séu allra þjóða lík­leg­astir til að heim­sækja Ísland heim, gera Banda­ríkin að stærsta ein­staka við­skipta­land Íslands í þjón­ustu­út­flutn­ingi, sem í felst aðal­lega sala á ferða­þjón­ustu. Á árinu 2018, þegar sá þjón­ustu­út­flutn­ingur náði hámarki, var hann 32 pró­sent af öllum heild­ar­út­flutn­ingi Íslands á þjón­ustu. Samkvæmt bráða­birgð­ar­tölum Hagstofu Íslands fyrir síð­asta ár var hann 29,2 pró­sent það árið. Alls var um að ræða 202 millj­arða króna í þjón­ustu­tekjum sem koma frá þessu eina landi.

Þjón­ustu­jöfn­uður Íslands, mun­ur­inn á útfluttri og inn­fluttri þjón­ustu, var jákvæður um 239 millj­arða króna í fyrra sam­kvæmt bráða­birgða­tölum. Heild­ar­tekjur íslenska þjóð­ar­bús­ins af þjón­ustu­út­flutn­ingi, sem aftur er að lang­mestu leyti ferða­þjón­ustu­tengdur, voru 692 millj­arðar króna í fyrra. Þessar tekjur eru nú ekki að koma inn í landið að stóru leyti ekki að koma inn í landið og algjör óvissa ríkir um hvernig háanna­tím­inn í ferða­þjón­ustu, sem er sum­ar­tím­inn, muni koma út þótt að við­búið sé að sam­dráttur upp á tugi pró­senta muni eiga sér stað.

Kynntar aðgerðir miðuðu við annan veruleika

Rík­is­stjórnin kynnti á þriðju­dag aðgerðir í sjö liðum til að mæta þeirri efna­hags­legu stöðu sem upp er komin. Í þeim pakka voru meðal ann­ars aðgerðir sem þegar höfðu verið kynntar, eins og til­færsla á inn­stæðum Íbúða­lána­sjóðs úr Seðla­banka Íslands og yfir til við­skipta­banka til að auka laust fé innan þeirra.

Þá hafði áður verið greint frá því að aukin kraftur yrði settur í fjár­fest­ingar hins opin­bera og engar nýjar slíkar til­greindar á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar. Þar var hins vegar greint frá því að fyr­ir­tækjum sem lenda í tíma­bundnum rekstr­ar­örð­ug­leik­um ­vegna tekju­falls verði veitt svig­rúm, t.d. með lengri fresti til að standa skil á sköttum og opin­berum gjöld­um og að gistin­átta­skattur verði felldur niður. Hann hefur skilað rúm­lega einum millj­arði króna í tekjum á und­an­förnum árum en fyrir liggur að gistin­átta­skatt­ur­inn, sem er 300 krónur á hverja selda gistinótt, mun hvort eð er skila mun minna í tekjur fyrir rík­is­sjóð ef ferða­menn eru ekki að koma til lands­ins.

Þá greindi rík­is­stjórnin frá því að hún ætl­aði í mark­aðsá­tak erlendis „þeg­ar að­stæður skap­ast til þess að kynna Ísland sem áfanga­stað, auk átaks til að hvetja til ferða­laga Íslend­inga inn­an­lands.“

Virkt sam­tal um hvernig bankar eigi að taka á stöðu fyr­ir­tækja sem geta ekki staðið við greiðslur af lánum né almennar rekstr­ar­greiðslur, eins og launa­greiðslur, hefur verið í gangi en engin nið­ur­staða kynnt um hvernig þeim málum verði háttað að öðru leyti en að til standi að reyna að fleyta „líf­væn­legum fyr­ir­tækjum“ í gegnum þann kúf sem framundan er.

Seðla­banki Íslands lækk­aði í gær vexti um 0,5 pró­sentu­stig niður í 2,25 pró­sent, lægstu vexti sem hann hefur nokkru sinni boðið upp á. Sömu­leiðis afnam hann með­al­tals bindi­skyldu banka sem losar um nokkra tugi millj­arða króna fyrir íslenska banka til að lána út.

Mikil áhrif á Icelandair

Ferða­bann Trump mun hins vegar, að öllum lík­indum, kalla á frek­ari aðgerðir. Áhrifin á íslenska ferða­þjón­ustu verða mikil og þau munu smit­ast víðar út í atvinnu­lífið.

Icelandair sér til að mynda fram á að fjöldi þeirra sem fljúga með vélum fyr­ir­tæk­is­ins mun hríð­falla, enda Banda­ríkin stærsti mark­aður þess. Þar að auki sér Icelandair um 75 pró­sent af öllum frakt­flutn­ingum á vörum frá Íslandi til Norður-Ameríku, sam­kvæmt tölum frá banda­rískum flug­mála­yf­ir­völdum.

Ísland er í ágætis stöðu til að takast á við erf­ið­leika eins og stendur. Gjald­eyr­is­vara­forði Seðla­banka Íslands var 822 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og skuldir rík­is­sjóðs hafa lækkað niður í 22 pró­sent af lands­fram­leiðslu á örfáum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár