Trump leiðréttir sjálfan sig: „Takmarkanirnar stöðva fólk ekki varning“

Ferða­bann Trumps mun ekki ná til allrar Evrópu heldur til Schengen-svæð­is­ins. Ísland er sam­kvæmt því í hópi þeirra landa sem ferða­bannið nær til.

Donald Trump Bandaríkjaforseti ávarpar þjóð sína frá Hvíta húsinu.
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti ávarpar þjóð sína frá Hvíta hús­inu. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, virð­ist hafa mis­mælt sig ítrekað er hann ávarp­aði millj­ónir í sjón­varpi í kvöld. Í ávarp­inu greindi hann frá aðgerðum sem gripið verður til í land­inu til að verj­ast nýju kór­ónu­veirunni. Sá frétta­punktur sem flestir fjöl­miðlar um allan heim tóku upp var sá að ferða­banni verður komið á á milli Evrópu og Banda­ríkj­anna.

Jú, það verða teknar upp mjög strangar tak­mark­anir á ferða­lögum en þær ná ekki til „allra Evr­ópu­landa“ eins og Trump sagði í ávarpi sínu (hann tók svo seinna í því fram að Bretland væri und­an­skilið). Þá eiga þær ekki að ná til vöru­flutn­inga heldur aðeins fólks ef marka má tíst sem hann birti strax eftir sjón­varps­út­send­ing­una.

Reyndar er margt enn nokkuð óljóst um hvernig aðgerð­irnar sem hann boð­aði verða útfærðar, hver áhrifin verða og á hverja.

Í ávarp­inu sagði Trump að öllum ferða­lögum (e. tra­vel) frá Evrópu til Banda­ríkj­anna yrði aflýst í mánuð frá næsta föstu­degi. Hann bætti svo við að und­an­þágur yrðu gerðar fyrir Banda­ríkja­menn sem hefðu farið í gegnum „við­eig­andi skoðun“.

Í frétt CNN, þar sem ávarp for­set­ans er borðið saman við yfir­lýs­ingu frá banda­ríska heima­varn­ar­ráðu­neyt­inu, segir að und­an­þág­urnar virð­ist eiga að vera miklu umfangs­meiri. Samkvæmt ráðu­neyt­inu eigi þær að ná til allra banda­rískra rík­is­borg­ara og þeirra sem eru með dval­ar­leyfi í land­inu sem og ein­hverra í fjöl­skyldum þess­ara hópa.

Þá virð­ist bannið ekki eiga að ná til „allra Evr­ópu­landa“ (fyrir utan Bretland) heldur til landa sem eru innan Schengen-svæð­is­ins. Ísland er sam­kvæmt þessu í hópi þeirra landa sem ferða­bannið nær til.

Frétta­menn CNN telja sig kom­ast næst sann­leik­anum með því að segja að Banda­ríkja­menn og þeir sem eru með dval­ar­leyfi í Banda­ríkj­unum munu áfram geta flogið til Evrópu og aftur til Banda­ríkj­anna á meðan ferða­bannið er í gildi. Þeir munu hins vegar gang­ast undir skoðun við kom­una til lands­ins og geta þurft að fara í sótt­kví í tvær vikur eftir heim­kom­una, rétt eins og nú þegar er í gildi fyrir fólk á ferða­lögum milli Kína og Banda­ríkj­anna.

[links]Hins vegar vaknar sú spurn­ing hvort að flug­fé­lög komi til með að halda úti óbreyttu áætl­ana­flugi milli Evrópu og Banda­ríkj­anna þegar eft­ir­spurn Evr­ópu­búa eftir flug­sætum yfir hafið þornar upp vegna ferða­banns­ins.

Í tísti sem Trump birti svo í nótt, eftir að hann hafði ávarpað þjóð­ina, virt­ist hann vera að leið­rétta sjálfan sig hvað varðar vöru­flutn­inga milli heims­álf­anna. Í ávarp­inu sagði hann: „Það verða veittar und­an­þágur fyrir Banda­ríkja­menn sem hafa geng­ist undir við­eig­andi skoðun og þessi bönn munu ekki aðeins ná til gríð­ar­legs magns af vöru­flutn­ingum (e. trade and cargo) heldur einnig til ann­arra hluta þegar við fáum til þess sam­þykki“.

Í tíst­inu stóð hins vegar: „Og vin­sam­lega munið, mjög mik­il­vægt fyrir öll lönd og fyr­ir­tæki að vita að vöru­skipti munu ekki á nokkurn hátt verða fyrir áhrifum vegna þrjá­tíu daga ferða­tak­markanna frá Evrópu. Tak­mark­an­irnar stöðva fólk ekki vörur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár