Trump setur á ferðabann milli Evrópu og Bandaríkjanna

Eftir að hafa gert lítið úr alvar­leika nýju kór­ónu­veirunnar síð­ustu vikur ávarp­aði Donald Trump banda­rísku þjóð­ina í kvöld og til­kynnti um rót­tækar aðgerðir til að verj­ast veirunni.

Donald Trump Bandaríkjaforseti ávarpar þjóð sína frá Hvíta húsinu.
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti ávarpar þjóð sína frá Hvíta hús­inu. Mynd: EPA

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti í nótt að ferðum frá Evr­ópu­löndum utan Bret­lands til Banda­ríkj­anna yrði aflýst í þrjá­tíu daga. Hann sagði Evr­ópu­sam­band­inu hafa mis­tek­ist að hefta útbreiðsl­una. Yfirvöld í Banda­ríkj­unum hafi hins vegar brugð­ist hratt við og að til­felli nýju kór­ónu­veirunnar þar í landi væru fá miðað við í Evrópu. Aðgerð­irnar væru „harðar en nauð­syn­legar“.

[links]1.135 til­felli COVID-19 hafa verið greind í Banda­ríkj­unum og þar hafa 38 lát­ist vegna sjúk­dóms­ins. 23 ríki hafa lýst yfir neyð­ar­á­standi vegna útbreiðsl­unnar..

For­set­inn, sem ávarp­aði þjóð sína frá for­seta­skrif­stof­unni í Hvíta hús­inu, sagði að gripið yrði til þess­ara aðgerða til að „halda nýjum til­fellum frá því að kom­ast inn fyrir land­stein­ana“.

Orðrétt sagði Trump: „Við munum aflýsa öllum ferða­lögum frá Evrópu til Banda­ríkj­anna næstu þrjá­tíu daga. Þessar nýju reglur munu taka gildi á mið­nætti á föstu­dag.“

Und­an­tekn­ingar verða á ferða­bann­inu og munu „ákveðnir Banda­ríkja­menn“ sem hafa und­ir­geng­ist „við­eig­andi skoðun“ fá að ferð­ast. Sagði for­set­inn að tak­mark­an­irnar myndu ekki aðeins ná til „gríð­ar­legra við­skipta og vöru­flutn­inga“ heldur einnig „ann­arra hluta þegar við fáum sam­þykki. Allt en kemur frá Evrópu til Banda­ríkj­anna er það sem við erum að ræða“.

[adspot]Einnig til­kynnti Trump um aðgerðir í efna­hags­málum en minnti á að ekki væri um efna­hag­skreppu að ræða heldur tíma­bundið ástand.

Til að tryggja að allir vinn­andi Banda­ríkja­menn sem verða fyrir áhrifum veirunnar geti verið heima án þess að ótt­ast um fjár­hags­lega afkomu sína þá verða að sögn Trumps fljót­lega kynntar aðgerðir sem „eiga sér engin for­dæmi“. Aðgerð­irnar munu miða að því að hjálpa þeim sem eru veikir, í ein­angrun eða sótt­kví og einnig þeim sem þurfa að sinna öðrum sem eru veikir af veirunni. Mun til­laga þessa efnis verða send þing­inu fljót­lega.

Í ávarpi sínu greindi Trump svo frá því að til stæði að veita litlum fyr­ir­tækjum millj­arða Banda­ríkja­dala að láni til að lág­marka áhrif veiru­sýk­ing­ar­innar á banda­rískt hag­kerfi. Þá hvatti hann þingið til að sam­þykkja „meiri­háttar“ skatta­lækk­anir í sama til­gangi. „Við ætlum að beita öllu afli alrík­is­stjórn­ar­innar og einka­geirans til að vernda banda­ríska borg­ara.“

Þvoðu þér um hendurnar

Minnti hann fólk svo á almennt hrein­læti. „Þvoðu þér um hend­urnar,“ sagði hann m.a. og „haltu þig heima“.

Sagði hann að Banda­ríkja­menn ættu bestu lækna í heimi og að „við erum öll í þessu saman. [...] Framtíð okkar er bjart­ari en nokkurn hefði getað órað fyrir“.

Hann lauk svo ávarpi sínu á orð­unum: „Guð blessi þig og guð blessi Banda­ríkin.“

Hægir á útbreiðslu um 3-5 daga

Árangur af ferða­banni er tak­mark­aður þegar smit­sjúk­dómur hefur þegar breiðst út á við­kom­andi svæði sem bannið nær til. Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar sem gerð var í kjöl­far útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar í Wuhan-borg í Kína þar sem hún átti upp­tök sín. Er stjórn­völd höfðu sett á ferða­bann til og frá borg­inni var það of seint til að hefta útbreiðsl­una þar sem veiran hafði þá þegar breiðst út til ann­arra svæða. Það sem ferða­bannið gerði var að hægja á útbreiðsl­unni um 3-5 daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár