Alma: Yfirvofandi verkfall áhyggjuefni

Land­læknir hefur áhyggjur af áhrifum yfir­vof­andi verk­falls hjúkr­un­ar­fræð­inga á aðgerðir vegna COVID-19. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar sinna m.a. sýna­töku og smitrakn­ingu.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

Alma Möller land­læknir segir að yfir­vof­andi verk­fall hjúkr­un­ar­fræð­inga sé mikið áhyggju­efni enda sé stéttir lyk­il­stoð í heil­brigð­is­kerf­inu. Hún minnir á að hjúkr­un­ar­fræð­ingar séu í sýna­töku á landa­mærum og í smitrakn­ingu. Ef af verk­falli verði í næstu viku sé ljóst að mikil röskun verði á starf­sem­inni. „Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að aðilar kepp­ist við og nái saman fyrir mánu­dag­inn,“ sagði Alma á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Ef ekki [næst saman] þá þurfum við að reiða okkur á und­an­þágur.“

Sagðist hún vona að í þær beiðnir verði vel tekið.

Ótíma­bundið verk­fall félags­manna í Félagi íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga mun að óbreyttu hefj­ast klukkan 8 að morgni mánu­dags­ins 22. júní og vara fram til þess tíma er sam­komu­lag um kjara­samn­ing hefur náðst milli aðila.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag kom einnig fram í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis að frá því að komu­far­þegum fór að bjóð­ast skimun við landa­mæri Íslands 15. júní hafa tæp­lega 3.000 ferða­menn komið til lands­ins og um 2.400 sýni verið tekin. Sex hafa greinst með veiruna og tveir af þeim taldir smit­andi og því í ein­angrun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár