Rúmlega tvö þúsund starfsmönnum sagt upp hjá Icelandair

Upp­sagn­irnar ná til allra hópa innan félags­ins, en þær hafa þó mest áhrif á störf bein­tengd fram­leiðslu, svo sem áhafnir, við­halds­þjón­ustu og starfs­fólk flug- og far­þega­þjón­ustu.

Yfir­grips­miklar aðgerðir hjá Icelandair Group munu taka gildi um mán­aða­mótin en rúm­lega tvö þús­und starfs­mönnum verður sagt upp störfum á næstu dögum. Upp­sagn­irnar ná til allra hópa innan félags­ins, en þær hafa þó mest áhrif á störf bein­tengd fram­leiðslu, svo sem áhafnir, við­halds­þjón­ustu og starfs­fólk flug- og far­þega­þjón­ustu. Þeir sem starfa áfram hjá félag­inu eru lang­flestir í skertu starfs­hlut­falli og aðrir í fullu starfi með skert laun.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu í dag.

Þar segir að um sé að ræða upp­sagnir starfs­fólks og breyt­ingar á skipu­lagi til að bregð­ast við þeirri stöðu sem félagið stendur frammi fyrir vegna útbreiðslu COVID-19 far­sótt­ar­innar, með til­heyr­andi ferða­tak­mörk­unum, sem haft hefur gríð­ar­leg áhrif á eft­ir­spurn eftir flugi og ferða­þjón­ustu um allan heim.

„Mikil óvissa ríkir um nán­ustu fram­tíð og eru aðgerð­irnar liður í að búa félagið undir órætt tíma­bil þar sem starf­semi þess verður í lág­marki. Á sama tíma verður lögð áhersla á að halda uppi grunn­starf­semi á öllum sviðum til þess að tryggja þann sveigj­an­leika sem þarf til að félagið geti brugð­ist hratt við um leið og mark­aðir opn­ast á ný,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá kemur fram að félagið hafi á und­an­förnum vikum leitað allra leiða til að draga úr útstreymi fjár­magns, svo sem með því að end­ur­semja við birgja og fjár­mögn­un­ar­að­ila. Stærsti kostn­að­ar­liður félags­ins sé eftir sem áður launa­kostn­aður og sé því nauð­syn­legt að grípa til aðgerða til að draga úr þeim kostn­aði.

Forstjórinn segir þetta vera erfiðar en nauðsynlegar aðgerðir

Til við­bótar við þessar aðgerðir hafa breyt­ingar verið gerðar á skipu­lagi félags­ins, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni. Starf­sem­inni verður fram­vegis skipt í sjö svið í stað átta áður. Þau eru: Sölu- og þjón­ustu­svið, frakt­flutn­inga­svið (Icelandair Cargo), flug­véla­leiga og ráð­gjöf (Loft­leiðir Icelandic), flug­rekstr­ar­svið, fjár­mála­svið, mannauðs­svið og nýtt svið, við­skipta- og staf­ræn þróun. Tómas Ingason, sem starfað hefur sem fram­kvæmda­stjóri staf­rænnar þró­unar og upp­lýs­inga­tækni verður fram­kvæmda­stjóri nýs sviðs. Ívar S. Krist­ins­son, sem starfað hefur sem fram­kvæmda­stjóri flug­flota og leiða­kerfis, verður ekki hluti af fram­kvæmda­stjórn en mun áfram stýra flota­málum félags­ins. Í kjöl­far þess­ara breyt­inga verða átta í fram­kvæmda­stjórn að með­töldum for­stjóra í stað níu áður.

Einnig hafa tals­verðar skipu­lags­breyt­ingar verið gerðar innan sviða og deilda fyr­ir­tæk­is­ins og við það fækkar stjórn­endum í efstu lögum um 19, sam­kvæmt félag­inu.

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, segir í til­kynn­ing­unni þetta vera mjög erf­iðar aðgerðir en því miður nauð­syn­legar. „Það er gríð­ar­leg óvissa framundan og við þurfum að und­ir­búa okkur undir tak­mark­aða starf­semi hjá félag­inu um óákveð­inn tíma. Við von­umst til að aðstæður í heim­inum fari að batna sem fyrst og að við getum boðið sem stærstum hluta starfs­manna sem um ræðir vinnu aftur. Mark­miðið með þessum aðgerðum er jafn­framt að tryggja grunn­starf­semi félags­ins og halda nauð­syn­legum sveigj­an­leika til að geta brugð­ist hratt við þegar eft­ir­spurn tekur við sér á ný,“ segir hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár