Fjármálaráðuneytið lagði ekki í sérstaka vinnu til að reikna út heimtur af stóreignaskatti

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sagði í útvarps­við­tali í aðdrag­anda kosn­inga að flokkur hans hafi látið reikna út kostnað af skatta­til­lögum Sam­fylk­ing­ar­innar í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu í aðdrag­anda kosn­inga. Ráðu­neytið segir þetta ekki rétt.

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Bára Huld Beck

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið lagð­ist ekki í sér­staka útreikn­inga eða vinnu í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga vegna fyr­ir­spurna um væntar heimtur af stór­eigna­skatti á rík­asta eitt pró­sent lands­manna. Þetta kemur fram í svari þess við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Í byrjun sept­em­ber var mætt­ust Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, og Kristrún Frosta­dóttir, þá fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar, í útvarps­þætt­inum Harma­geddon og ræddu meðal ann­ars skatta­til­lögur Sam­fylk­ing­ar­innar sem lagðar voru fram í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Í þeim fólst meðal ann­ars að leggja á stór­eigna­skatt­ á hreinar eignir yfir 200 millj­ónir króna, sem flokk­ur­inn taldi að myndi skila hátt í 15 millj­örðum króna á ári í við­bót­ar­tekjur fyrir rík­is­sjóð.

Í umræddum þætti sagði orð­rétt: „Þessar tölur um 20 millj­arða. Við höfum látið reikna þetta út í fjár­mála­ráðu­neyt­inu og okkur sýn­ist að þetta gæti legið í kringum sex millj­arða“.

Svöruðu ekki fyrr en eftir kosningar

Vegna þess­ara ummæla sendi Kjarninn fyr­ir­spurn á fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið þann 10. sept­em­ber og spurði hvort þessi full­yrð­ing væri rétt, að ráðu­neytið hefði látið starfs­fólk sitt reikna út mögu­legar heimtur vegna kosn­inga­lof­orðs stjórn­ar­and­stöðu­flokks í aðdrag­anda kosn­inga. Svar barst mán­uði síðar, 11. októ­ber þegar kosn­ing­arnar voru afstaðnar, sem svar­aði fyr­ir­spurn­inni ekki með tæm­andi hætti.

[adspot]Þar sagði að ekki væri óvana­legt að leitað sé til ráðu­neyt­is­ins og þess óskað að það leggi mat á ýmsar til­lögur og hug­myndir sem fram koma á opin­berum vett­vangi í aðdrag­anda þing­kosn­inga. „Ráðu­neytið hefur fyrir reglu að leggja ekki í sér­staka útreikn­inga af þessu tagi en lýsir sig fúst til að leggja til þau gögn sem geta nýst þeim sem óska eftir mat­inu til að við­kom­andi geti fram­kvæmt eigin athug­anir – enda séu þau gögn til­tæk í ráðu­neyt­inu.

[links]Vegna þess sem snýr að fyr­ir­spurn­inni þinni skal tekið fram að þar var vísað til upp­lýs­inga sem er að finna í svari við fyr­ir­spurn á Alþingi sem ráðu­neytið svar­aði sl. vor.“

Umrætt svar er við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um um eigið fé þeirra fimm pró­sent, eitt pró­sent og 0,1 pró­sent Íslend­inga sem mest eiga. Umrætt svar, sem var birt í byrjun júlí, var til ítar­legrar umfjöll­unar í fjöl­miðlum, meðal ann­ars í Kjarn­anum, og hafði verið aðgengi­legt á vef Alþingis í rúma tvo mán­uði þegar útvarps­þátt­ur­inn fór fram.

Í ljósi þess að svar ráðu­neyt­is­ins svar­aði ekki fyr­ir­spurn Kjarnans með tæm­andi hætti var hún ítrekuð og gerð ítar­legri. Í nýju svari, sem barst á föstu­dag, segir að ekki hafi verið lagt í „sér­staka útreikn­inga eða vinnu vegna fyr­ir­spurna um væntar heimtur af stór­eigna­skatti á rík­asta 1 pró­sent lands­manna.“

Að öðru leyti er vísað í fyrra svar og það end­ur­tekið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár