Climeworks fangaði 92 tonn af 36 þúsund á síðasta ári

Árangur kolefn­is­föng­un­ar­vél­ar­innar Mammoth var langt undir vætn­ingum á síð­asta ári sam­kvæmt árs­reikn­ingi Climeworks. Fyr­ir­tækið skuldar móð­ur­fé­lag­inu sam­an­lagt um 17 millj­arða.

Climeworks
Climeworks Sviss­neska föng­un­ar­fyr­ir­tækið stendur frammi fyrir erf­iðum áskor­unum þegar kemur að kolefn­is­föngun. Mynd: Golli

Mammoth föng­un­ar­ver Climeworks fang­aði aðeins 92 tonn árið 2024 af þeim 36.000 tonnum sem fyr­ir­tækið telur að sé föng­un­ar­geta vers­ins. Fram kemur að aðeins 12 af 72 vélum þess hafi verið gang­settar, og fang­aði Climeworks aðeins 0,26 pró­sent af því magni sem fyr­ir­tækið hefur ítrekað haldið fram að það geti fangað með ver­inu á einu ári.

Að því gefnu að magnið sem gefið er upp í árs­reikn­ingnum end­ur­spegli raun­veru­lega getu þess, er raun­hæft að áætla að hægt sé að fanga á milli 500 og 600 tonn af CO2 á ári – ekki 36 þús­und tonn.

Heildarskuldir tvöfaldast

Sérstakt eign­ar­halds­fé­lag er í kringum Mammoth verið, sem er starf­rækt í jarð­hita­garði Orku Nátt­úr­unnar. Samkvæmt árs­reikn­ingi er það stór­skuldugt. Heild­ar­skuldir þess eru 103 millj­ónir doll­ara, sam­kvæmt árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins, en skuld­irnar eru allar við móð­ur­fé­lagið í Sviss. Tap félags­ins nærri tvö­fald­að­ist á milli ára og nam um 13,4 millj­örðum íslenskra króna.

…
Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Ef ég má, þá langar mig að benda áhugasömu fólki um loftslagsmál og aðrar aðsteðjandi manngerðar ógnir í Náttúrunni, á nýjan hálftíma umræðuþátt á PBS í seríu sem ber heitið "Energy Watch". Í þessum þætti eru viðmælendurnir Nate Hagens og Tisha Schuller. Á síðu þáttarins eru nánari upplýsingar um þetta mæta fólk og hægt að horfa á þáttinn. Þetta eru afar áhugaverðar umræður sem eiga erindi við allt hugsandi fólk, að mínu mati. Hér er hlekkur á þáttinn:

    https://www.pbs.org/video/uncoventional-wisdom-wagnk2/
    1
    • GG
      Guðmundur Guðmundsson skrifaði
      Sammála. Þetta er mjög áhugaverður umræðuþáttur
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár