Vill að Noregur verði „heimsmeistari“ í lögum og reglum

Aðstoð­ar­maður sam­göngu­ráð­herra Noregs er Reynir Jóhann­es­son. Hann vinnur nú að stefnu­mótun á sviði fjar­skipta­mála sem hann er sann­færður um að geti skipt efna­hags­mál á norð­ur­slóðum miklu máli.

Reynir Jóhannesson er aðstoðarráðherra samgöngumála í Noregi.
Reynir Jóhann­es­son er aðstoð­ar­ráð­herra sam­göngu­mála í Noregi. Mynd: Norska samgönguráðuneytið

Í síbreyti­legum heimi opn­ast dyr að nýjum veru­leika eftir því sem tækn­inni fleytir fram. Á þetta höfum við verið minnt á und­an­förnum ára­tug þar sem snjall­síma­væð­ing í heim­inum og gervi­greind hefur gjör­breytt neyslu­mynstri fólks og lifn­að­ar­háttum.

Frá því Steve Jobs heit­inn, frum­kvöð­ull­inn sem stýrði Apple, kynnti iPhone snjall­sím­ann til sög­unnar, 9. jan­úar 2007, hefur ekki bara mikið vatn runnið til sjávar, þegar kemur að tækni og hug­bún­aði, heldur er líf fólks gjör­breytt frá því sem áður var. Nýr risa­vax­inn iðn­aður hug­bún­að­ar­gerðar fyrir snjall­síma hefur orðið til sem samt er aðeins topp­ur­inn á ísjak­anum.

Nú, rúm­lega tíu árum síðar, stendur heim­ur­inn frammi fyrir breyt­ingum sem áður voru teikn­aðar upp í vís­inda­skáld­sögum. Sjálfa­kandi bílar, heim­send­ingar með drónum, fjar­stýrð skip. Mögu­leik­arnir virð­ast enda­lausir og eng­inn ætti lengur að efast um að vís­inda­skáld­skapur for­tíð­ar­innar er orð­inn að veru­leika dags­ins í dag.

Í hringamiðjunni

Einn þeirra sem er staddur í hringa­miðju þess­arar þró­unar á heims­vísu, í ljósi for­ystu­hlut­verks Noregs, er Reynir Jóhann­es­son. Hann starfar sem aðstoð­ar­ráð­herra sam­göngu­mála Noregs, en sam­göngu­ráð­herra í rík­is­stjórn er Ketil Sol­vik-Ol­sen. Reynir hefur meðal ann­ars á sinni könnu upp­bygg­ingu á fjar­skipta­málum lands­ins. Í þessum verk­efnum eru áhrifin ekki bundin við Noreg heldur í reynd heim­inn alla. „Noregur hefur ein­sett sér það að verða heims­meist­ari í lögum og reglu­gerðum. Ekki fjölda þeirra, heldur virkni þeirra,“ segir Reynir. „Við höfum ekki Sílikon-dal­inn og það mikla fjár­magn sem fylgir honum. Og við höfum ekki stærð­ina heldur. En ég tel að við getum verið best í að móta lög og leik­reglur, og orðið heims­meist­arar í því. Ekki út frá fjölda laga og reglna, heldur virkni og mark­miðum,“ segir Reynir, og brosir.

[adspot]

Hann hefur und­an­farna daga fundað með íslenskum stjórn­völdum, meðal ann­ars full­trúum í sam­göngu­ráðu­neyt­inu, Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra, þing­mönnum og for­ystu­fólki Samtaka iðn­að­ar­ins. „Það sem við erum að vinna að núna er að búa til lagaum­gjörð og reglu­verk fyrir 5G væð­ing­una (5G Internet of Things), og þau miklu áhrif sem henni fylgir. Þar eru öll Norð­ur­löndin undir og einnig Eystra­salts­löndin. Ég vil að Ísland verði hluti af þessu. Þó Noregur og Ísland séu ekki að öllu leyti sam­bæri­leg þá eru þetta báðar litlar þjóðir sem eru á mik­il­vægu „heitu“ svæði í heim­inum. Við erum háð alþjóð­væð­ingu og alþjóða­væddum heimi við­skipta, og það eru öfl um þessar mundir, meðal ann­ars í Banda­ríkj­unum og Bret­landi, sem eru að vinna gegn þessu. Ég er ekki hrif­inn af því og tel að þetta svæði sem við til­heyrum hafi mikið fram að færa, og það sé þess virði fyrir Noreg og Ísland, sem standa utan Evr­ópu­sam­bands­ins, að berj­ast fyrir alþjóða­væð­ing­unni,“ segir Reynir.

Reynir var í við­tali við Kjarnann fyrir rúmu ári, 2. apríl 2016, og fékkst þá inn­sýni inn í þá stöðu sem hann gegnir í norska stjórn­kerf­inu. „Ég er í raun með sama vald og ráð­herr­ann sjálf­ur [...] Nema ég mæti ekki til kóngs­ins á föstu­dög­um, ég tala ekki fyrir þingið og mæti ekki á rík­is­stjórn­ar­fundi. En ég get verið í for­svari fyrir öll önnur mál sem eru afgreidd í ráðu­neyt­inu og und­ir­skrift mín jafn­gildir und­ir­skrift ráð­herra,“ sagði Reynir þá.

[links]Á und­an­förnu ári hefur starfið haldið áfram og nú þegar kjör­tíma­bil­inu fer að ljúka þá eru mörg stór verk­efni búin að þok­ast vel áfram. Kosið verður í sept­em­ber en Reynir seg­ist ekki hugsa mikið um það. „Ég er með mín mark­mið og ég ætla mér að ná þeim. Það er stundum sagt í Noregi að það sé hægt að kreista tann­kremið úr túp­unni en það er ekki hægt að setja það inn í hana aftur. Ég hugsa þetta svipað. Ég hef mik­inn áhuga á tækni- og fjar­skipta­mál­unum og tel mikil tæki­færi fel­ast í auknu sam­starfi á Norð­ur­lönd­unum, bæði meðal stjórn­valda og fyr­ir­tækja á svæð­inu. Þar eru lög og reglur lyk­il­at­riði, þegar kemur að upp­bygg­ingu á næst­unni. Þetta á meðal ann­ars við reglu­verk um sjálfa­kandi bif­reiðar, dróna­flug og ýmis atriði sem tengj­ast, beint og óbeint, 5G net­væð­ing­unni og auk­inni hrað­virkni og tækni­legri getu til að gera hluti sem ekki hefur verið hægt að gera áður. Það er mik­il­vægt að þetta sé leitt fram hratt og að allir átti sig á hags­mun­unum og mögu­leik­unum. Ef það tekst að tryggja öryggi, til dæmis varð­andi per­sónu­frelsi og skil­virkni, þá er mik­ill sigur unn­inn. Mín draum­sýn er að Norð­ur­löndin og Eystra­salts­löndin séu með sam­eig­in­legt reglu­verk og að það verði aðlað­andi að starfa á þessu svæði vegna þessa.“

Hinn 25. apríl verður ráð­stefna í Osló, höf­uð­borg Noregs, þar sem tækni­legar áskor­anir á norð­ur­slóðum verða í brennid­epli, en ráð­herrar þess­ara mála í Finn­landi, Svíþjóð og Noregi hafa þegar stillt saman strengi í þessum efnum, og að sögn Reynis, er lagt upp með að auka sam­vinnu enn meira.

Nú hefur verið tölu­vert rætt um að gervi­greind muni leiða til þess að störf hverfi og að vinna muni breyt­ast mikið vegna hennar, á næstu miss­erum. Hvernig horfir staðan við þér?

„Ég er sann­færður um að það verði til ný störf og nýir mögu­leikar, með auk­inni tækn­i­notkun og hag­ræð­ingu. Það fylgja því áskor­anir að laga menntun fólks að breyttum veru­leika, en ný spenn­andi störf verða til. Fyrir 20 árum var erfitt að sjá fyrir snjall­sím­ann og þá mögu­leika sem við búum við í dag með honum. Hann hefur breytt miklu, eytt störfum en skapað nýja mögu­leika. Lyk­ill­inn að góðum árangri felst ekki síst í vönd­uðum og góðum lögum og reglum,“ segir Reynir.

Efnahagslegt stórveldi

Þó Noregur sé lítið land og fámennt, í alþjóð­legum sam­an­burði, þá er það efna­hags­legt stór­veldi. Í land­inu búa ríf­lega fimm millj­ónir en hvergi í heim­inum er lands­fram­leiðsla jafn mikil, í hlut­falli við íbúa­fjölda, og í Noregi, sé horft til vest­rænna lýð­ræð­is­ríkja.

Í Noregi er stærsta sam­fé­lag Íslend­inga utan Íslands en um ára­mótin voru um 9.500 Íslend­ingar búsettir í land­inu. Olíu­sjóður lands­ins er að ríf­lega 95 pró­sent leyti geymdur í erlendri mynt, einkum í verð­bréfum. Í dag er sjóð­ur­inn kom­inn yfir 900 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 100 þús­und millj­örðum króna. Það jafn­gildir tæp­lega 20 millj­ónum króna á hvern Norðmann.

Þrátt fyrir að sjóð­ur­inn sé ekki nýttur inn­an­lands, nema að litlu leyti, þá gefur hann norska hag­kerf­inu stórt og mikið heil­brigð­is­vott­orð. Það er til marks um umfang sjóðs­ins að hann á um 1 pró­sent allra skráðra hluta­bréfa í heim­inum, um þessar mundir, og er meðal stærstu hlut­hafa í öllum helstu tækni­fyr­ir­tækjum heims­ins, eins og Microsoft, Facebook, Google og fleiri fyr­ir­tækjum.

Metnaðarfull áform

Eitt af því sem nú stendur til að gera í Noregi, og er á borði Reynis meðal ann­ars, eru inn­viða­fjár­fest­ingar í sam­göngu­málum sem eru gríð­ar­legar að umfangi. Á næstu árum verður ráð­ist í fjár­fest­ingar sem nema 1064 millj­örðum norskra króna, eða sem nemur um 15 þús­und millj­örðum íslenskra króna. Með þessum fjár­fest­ingum munu Norðmenn styrkja sam­göngu­kerfið, til sjós og lands.

Meðal þess sem stefnt er að eru skipa­göng, þar sem skip munu geta stytt sér leiðir í gegnum göng í fjöllum. Mikil fram­þróun er í skipa­iðn­aði í Noregi og eru meðal ann­ars hafnar til­raunir með fjar­stýrð skip og fleiri tækninýj­ungar sem munu geta gjör­bylt skipa­iðn­aði. Norsk stjórn­völd horfa til þess að þessar stór­felldu inn­viða­fjár­fest­ingar muni styðja enn betur við þær miklu tækni­fram­farir sem eru að verða í heim­inum. „Ég hef mik­inn áhuga á þessum tækni­málum og tel að stjórn­völd, í Noregi og nágranna­ríkjum, geti lagt grunn­inn að miklum tæki­færum fyrir frum­kvöðla með góðar hug­myndir,“ segir Reynir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár