Þórólfur: Ekki tilefni til harðari aðgerða

Sótt­varn­ar­læknir mun leggja til að krár og skemmti­staðir verði áfram lok­aðir fram yfir næstu helgi. Ekki sé þó til­efni til að grípa til harð­ari tak­mark­ana á allt landið en þeim sem eru við lýði.

Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mynd: Lögreglan

„Ég held að á þess­ari stundu sé vand­séð að til­efni sé til harð­ari aðgerða.“ Þetta sagði Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir á blaða­manna­fundi Almanna­varna í dag. Því mun hann ekki leggja til við Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra að harð­ari tak­mark­anir verði settar á vegna fjölg­unar í kór­ónu­veirusmitum und­an­farna daga.

Þórólfur sagð­ist hins vegar ætla að leggja fram við ráð­herr­ann að krár og skemmti­staðir verði áfram lok­aðir til 27. sept­em­ber, eða fram yfir næstu helgi, en til­mælum um að halda þeim lok­uðum, vegna fjölda smita sem áttu upp­tök sín á öld­ur­húsum höf­uð­borg­ar­innar, var komið til heil­brigð­is­ráð­herra í síð­ustu viku.

[adspot]Alls greindust 38 með kór­ón­u­veirusmit inn­­­an­lands í gær. Það er umtals­vert færri en greindust á föstu­dag, þegar 75 smit voru greind. Und­an­farna fimm daga hafa 166 smit greinst inn­­­an­lands.

Alls voru rúm­­­lega 2.395 sýni tekin í land­inu í gær, sem er mun færri en í fyrra­dag þegar þau voru 3.600.

[links]55 pró­­sent þeirra sem voru greindir sýktir í gær voru í sótt­­­kví við grein­ingu.

Sótt­varn­ar­læknir sagði ánægju­legt að sjá þessa fækkun á jákvæðum sýnum milli daga, en vildi þó túlka lækk­un­ina með varúð. Það væri jákvætt að það væri ekki að eiga sér stað áfram­hald­andi veld­is­vöxt en það ætti ekki að lesa of mikið í þróun milli ein­stakra daga.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri sagði á fund­inum að ekki hefði verið tekin ákvörðun um að lýsa yfir neyð­ar­stigi þótt það hafi verið rætt. Hún hvatti alla sem geta að vinna heima á næst­unni og greindi frá því að í þess­ari þriðju bylgju sem nú stendur yfir hafi heim­il­is­of­beldi auk­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár