Höskuldur íhugar framboð til formanns KSÍ

Hösk­uldur Þór­halls­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, íhugar að bjóða sig fram til for­manns Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ). Frá þessu er greint á mbl.is. Þar segir Hösk­uldur að félög utan af landi hafi sett sig í sam­band við hann um að bjóða sig fram og að hann geti stað­fest að hann sé að skoða fram­boð. Hösk­uldur lék á sínum tíma með bæði KA og Fram og þjálf­aði auk þess Gróttu um skeið.

Geir Þor­steins­son, sitj­andi for­maður KSÍ, til­kynnti í síð­ustu viku að hann ætli ekki að gefa kost á sér til end­ur­kjörs á næsta lands­þingi Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands sem fram fer í Vest­manna­eyjum 11. febr­úar næst­kom­andi. Geir hefur verið for­maður síðan 2007. Guðni Bergsson, lög­maður og fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu, og Björn Ein­ars­son, for­maður Víkings, hafa báðir til­kynnt um fram­boð.

Hösk­uldur sótt­ist eftir að leiða lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir síð­ustu kosn­ingar. Þar beið hann lægri hlut fyrir Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni og Þórunni Egils­dóttur og ákvað í kjöl­farið að taka ekki sæti á lista. Hösk­uldur hafði einnig sóst eftir því að leiða kjör­dæmið fyrir kosn­ing­arnar 2013 en án árang­urs. Hann tap­aði einnig for­manns­slag í Fram­sókn­ar­flokknum árið 2009 gegn Sigmundi Davíð, þrátt fyrir að hafa upp­haf­lega verið lýstur sig­ur­veg­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár