Þegar fellur á silfrið

Allir sem á annað borð fylgj­ast með hrær­ingum í „hönn­un­ar­heim­inum“ kann­ast við dönsku vör­urnar sem bera nafnið Georg Jensen. Margs konar skart­gripir, borð­bún­aður, arm­bandsúr og list­munir. Í dag gengur rekstur þessa þekkta fyr­ir­tækis ekk­ert alltof vel.

Georg Jensen, var fæddur árið 1866 í Raadvad norðan við Kaup­manna­höfn. Móðirin var heima­vinn­andi en fað­ir­inn vann hjá fyr­ir­tæk­inu Raadvad, sem fram­leiddi einkum hnífa og potta. Fjórtán ára byrj­aði Georg að vinna við silf­ur­smíði en dreymdi um að verða mynd­höggv­ari. Hann lauk sveins­prófi í gull- og silf­ur­smíði árið 1884, aðeins 18 ára að aldri. Hann hafði þó ekki lagt mynd­höggv­ara­draum­inn á hill­una og fimm árum síðar, 1889, fékk hann inn­göngu í Kon­ung­lega fag­ur­lista­skól­ann (heitir nú Kun­staka­demiet) og útskrif­að­ist árið 1892.

Á næstu árum sýndi Georg Jensen verk sín í Kaup­manna­höfn og víðar. Stór ferða­styrkur gerði honum kleift að ferð­ast til Ítalíu og Frakk­lands og nokkur verka hans, úr leir og bronsi, voru sýnd á heims­sýn­ing­unni í París árið 1900 og voru sömu­leiðis til sýnis í Róm og Flórens það sama ár. Á heims­sýn­ing­unni kynnt­ist hann verkum franska gull­smiðs­ins René Lalique, þess sem síðar varð heims­þekktur fyrir gler­l­ista­verk sín.

Silfursmíðin togaði

Þrátt fyrir vel­gengni sem mynd­höggv­ari, var það þó silf­ur­smíðin sem átti hug og hjarta Georgs. Hann hafði líka gert sér grein fyrir því að ekki væri auð­velt að vinna fyrir sér sem mynd­höggv­ari og sneri sér því að silf­ur­smíð­inni. Árið 1901 fékk hann meist­ara­rétt­indi í silf­ur­smíði, smíð­is­gripir hans, sem hann bæði hann­aði og smíð­aði, (skart­gripir, skálar, kerta­stjakar o.fl) voru eft­ir­sóttir og á næstu árum fékk hann fjöl­mörg boð um að taka þátt í sýn­ingum víða um lönd. Nafnið Georg Jensen var orðið þekkt.

Georg Jensen var í upp­hafi með verk­stæði sitt og verslun í mið­borg Kaup­manna­hafnar en síðar á Aust­ur­brú, skammt frá mið­borg­inni. Þar vann fjöldi fólks, stofn­and­inn sinnti ekki lengur smíð­inni en ein­beitti sér að hönnun og rekstri.

Margir þekktir danskir lista­menn hönn­uðu einnig ýmsa gripi fyrir Georg Jensen. Sér­versl­anir með vörur frá verk­stæð­inu í Kaup­manna­höfn voru, á fyrstu ára­tugum lið­innar aldar, opn­aðar víða í Evrópu. Fyr­ir­tækið lenti þó í ýmis konar hremm­ingum, fjár­hags­lega, en þegar Georg Jensen lést árið 1935 var það orðið þekkt um allan heim og stóð traustum fótum. Strák­ur­inn frá Raadvad (eins og Georg kall­aði sig stundum) sem í fyrstu dreymdi um að verða mynd­höggv­ari var í lif­anda lífi orð­inn meðal þekkt­ustu silf­ur­smiða heims og þannig er það enn þótt liðin séu 82 frá dauða hans. Georg Jensen hlotn­uð­ust margar við­ur­kenn­ingar vegna starfa sinna og verk hans er að finna á öllum þekkt­ustu list­iðn­að­ar­söfnum heims. Smíð­is­gripir meist­ar­ans sjálfs selj­ast fyrir háar fjár­hæðir á upp­boðum.

Sviptingar

Þegar Georg Jensen lést var fyr­ir­tækið að mestu í eigu fjöl­skyld­unnar. Starf­semin hélt áfram, þótt stofn­and­ans nyti ekki lengur við, rekst­ur­inn gekk vel, nýir hönn­uðir komu til sög­unnar en hin „sígilda“ hönnun Georgs og sam­starfs­fólks hans var áfram til sölu og þannig er það enn. Á síð­ustu ára­tugum hafa orðið miklar breyt­ingar í fyr­ir­tækja­rekstri í Danmörku, eins og víðar. Margir þekkt­ustu fram­leið­endur lands­ins, ekki síst þeir sem fram­leiða hús­búnað hafa lent í miklum ólgu­sjó, sum lagt upp laupana en önnur sam­ein­ast og þannig tek­ist að halda sjó.

Árið 1972 keypti Kon­ung­lega postu­líns­verk­smiðjan Georg Jensen fyr­ir­tækið og þremur árum síðar gler­verk­smiðj­una Hol­megaard, þá var nafni Kon­ung­lega breytt í Royal Copenhagen. Postu­líns­fram­leið­and­inn Bing & Gröndahl sam­ein­að­ist Royal Copenhagen árið 1987, sem síðar keypti hið sænska Orrefors Kosta Boda. Danska fjár­fest­inga­fé­lagið Axcel eign­að­ist stærstan hluta Royal Copenhagen árið 2001. Georg Jensen fyr­ir­tækið reynd­ist ekki sá gull­kálfur sem Axcel hafði von­ast eftir og fjár­fest­inga­fé­lagið varð að leggja nokkur hund­ruð millj­ónir danskra króna til rekstr­ar­ins.

Georg Jensen selt til Barein

Árið 2012 seldi Axcel Georg Jensen (með manni og mús eins og for­stjór­inn komst að orði) til Investcorp, fjár­fest­inga­fé­lags í Barein. Stjórn­endur Investcorp höfðu háar hug­myndir, ætl­uðu að tvö­falda velt­una innan fimm ára, horfðu þar einkum til Asíu. Nýju eig­end­urnir vörðu miklu fé í kynn­ing­ar­starf­semi og hönnun nýrra hluta. Þetta hefur ekki skilað auknum tekjum, sem neinu nemi, og Investcorp hefur orðið að leggja mikið fé til rekstr­ar­ins.

Nýr forstjóri

Í árs­byrjun 2016 sett­ist Eva-Lotta Sjöstedt í for­stjóra­stól­inn hjá Georg Jensen. Hún hafði meðal ann­ars verið fram­kvæmda­stjóri hjá IKEA og eig­endur Georg Jensen bundu miklar vonir við hana. Þær vonir rætt­ust ekki og fyrir nokkrum dögum fékk hún reisupass­ann en í for­stjóra­stól­inn sett­ist Ítalinn Francesco Pesci. Hann hefur setið í stjórn Georg Jensen í tæpt ár og gegnt for­mennsku í nokkra mán­uði. Nýi for­stjór­inn seg­ist þess full­viss að Georg Jensen muni rétta úr kútnum, það taki auð­vitað tíma en muni takast.

Hvað hefur farið úrskeiðis og hvað ætlar þú að gera?

Þessa spurn­ingu lögðu danskir blaða­menn fyrir nýja for­stjór­ann þegar til­kynnt var um for­stjóra­skiptin. Francesco Pesci svar­aði því til að ein­hverra hluta vegna höfði vörur fyr­ir­tæk­is­ins ekki til ungs fólks í sama mæli og áður. „Á síð­ustu árum hefur fram­boð á list­munum og skart­gripum auk­ist gíf­ur­lega og kannski er það nýj­unga­girni sem veldur því að okkar vörur selj­ast ekki jafn vel og áður,“ sagði for­stjór­inn. Hann sagði að salan í Asíu hefði ekki auk­ist eins og von­ast var til, þar væri meiri eft­ir­spurn eftir skart­gripum úr gulli. „Okkar vörur eru ekki þær réttu fyrir þann markað,“ sagði for­stjór­inn. Hann vildi ekki segja meira um hug­myndir sínar varð­andi rekst­ur­inn en sagði að þrátt fyrir „tíma­bundna erf­ið­leika“ stæði Georg Jensen traustum fótum. „Það hefur áður verið mót­vindur en svo breyt­ist vind­áttin og þá kemur vindur í seglin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár