Hjarðónæmi mun ekki nást fyrr en seinni hluta ársins 2021

„Við munum ekki ná góðu hjarð­ó­næmi hér á landi fyrr en seinni hluta næsta árs,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Bólu­setn­ing mun taka lengri tíma en von­ast var til. Von er á fyrstu skömmt­unum á aðfanga­dag.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Nú er ljóst að við munum fá færri skammta af bólu­efni á næst­unni en von­ast hafði verið til. Þetta mun verða til þess að hjarð­ó­næmi þjóð­ar­innar næst ekki fyrr en á seinni hluta næsta árs. Fram­línu­fólk og íbúar öldr­unar- og hjúkr­un­ar­heim­ila verða í for­gangi þegar bólu­setn­ing hefst. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Í gær greindust átta ein­stak­lingar inn­an­lands með COVID-19 sem er svip­aður fjöldi og síð­ustu daga. Sjö voru sótt­kví. Þrír liggja á gjör­gæslu­deild með sjúk­dóm­inn, þar af tveir í önd­un­ar­vél.

„Varðandi inn­a­lands­smitin þá er far­ald­ur­inn ágæt­lega í rénun þökk sé aðgerðum og sam­stöðu almenn­ings,“ sagði Þórólfur og að sér­stak­lega ánægju­legt væri að sjá hversu fáir væru að grein­ast utan sótt­kvíar. „En það er hins vegar ljóst að við erum enn með smit úti í sam­fé­lag­inu og lítið þarf til að hóp­sýk­ingar komi upp.“

[adspot]

Þórólfur fór svo yfir stöðu á afhend­ingu bólu­efna. Samkvæmt samn­ingi við lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer hafa verið tryggð kaup á bólu­efni fyrir 80 þús­und ein­stak­linga alls. En hrá­efna­skortur hefur seinkað fram­leiðsl­unni og því munu færri skammtar af bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins koma hingað til lands á næstu mán­uðum en áætlað var.

[links]Um jólin er von á bólu­efni fyrir um 5.000 ein­stak­linga og í jan­úar eða febr­úar skömmtum sem duga til að bólu­setja 8.000 manns til við­bótar. Þetta er um helm­ingi minna magn en von­ast hafði verið til.

„Þetta þýðir það að við þurfum að stokka aftur upp í for­gangs­röðun bólu­setn­ingar,“ sagði Þórólfur. „Þannig að við áformum að hefja strax bólu­setn­ingu eftir jólin og byrjað verður á að bólu­setja fram­línu­fólk í heil­brigð­is­stéttum – um 1.000 manns – og jafn­framt vist­menn á hjúkr­unar- og öldr­un­ar­heim­ilum sem telja um 3-4.000 manns.“

Í jan­úar og febr­úar verður haldið áfram að bólu­setja elstu ald­urs­hópana. „Áfram­haldið er síðan óljóst,“ sagði Þórólfur. „Það ræðst af því hversu hratt við fáum bólu­efnið og hversu marga skammta. Áætlun um fram­haldið verður að bíða betri tíma.“

Enn lengri bið í bóluefni annarra framleiðenda

Hvað önnur bólu­efni varðar er óljóst hvenær afhend­ing getur haf­ist, „en sam­kvæmt áætl­unum býst ég ekki við að það geti orðið fyrr en um mitt árið 2021 eða seinni hluta þess árs. Við munum því ekki ná góðu hjarð­ó­næmi hér á landi fyrr en seinni hluta næsta árs“.

Þórólfur sagði erfitt að segja til um hvaða áhrif þetta mun hafa á far­ald­ur­inn á næst­unni en sagði að „vafa­laust þurfum við að búa við áfram­hald­andi tak­mark­anir fram eftir næsta ári og einnig þurfum við að við­halda ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum.“

Hann sagði hins vegar útlit fyrir að hægt verði að aflétta ein­hverjum tak­mörk­unum þegar búið verður að bólu­setja við­kvæm­ustu hópana „en það verður lík­lega ekki fyrr en um mitt næsta ár“.

Núver­andi reglu­gerð um tak­mark­anir vegna far­sótt­ar­innar gildir fram yfir ára­mót. „Við þurfum áfram að standa saman og gæta okkar og passa okkur. Þetta er ekki búið. Við von­uð­umst til að sjá hrað­ari bólu­setn­ingar strax eftir ára­mótin en við þurfum að lifa við það að það mun ganga hægar en við von­uð­umst til.“

Alma Möller land­læknir minnti á að til­gangur bólu­setn­ing­ar­innar væri að verja fólk fyrir sjúk­dómnum COVID-19. Til að hjarð­ó­næmi náist þurfi að lág­marki að bólu­setja 65 pró­sent þjóð­ar­innar. Unnið er að því að taka saman upp­lýs­ingar sem eiga að auð­velda fólki að taka ákvörðun um bólu­setn­ingu. „Auk ávinn­ings fyrir ein­stak­ling­inn er það líka hagur sam­fé­lags­ins að hjarð­ó­næmi náist,“ sagði hún.

Saman í gegnum skaflinn

„Við gerum okkur vonir um að fyrstu skammt­arnir af bólu­efni komi 24. des­em­ber," sagði sótt­varna­læknir. „Og þá er okkur ekk­ert að van­bún­aði að hefja bólu­setn­ingu strax eftir jólin. Við byrjum eins fljótt og hægt er.“

Vegna þess að magnið verður ekki eins mikið og vonir stóðu til verður jafn­vel ekki hægt að bólu­setja alla innan ákveð­inna for­gangs­hópa þegar í stað. Sagði Þórólfur að lík­lega eigi óánægju­raddir eftir að heyr­ast. „En við verðum að vinna okkur í gegnum skafl­inn eins og málin þró­ast,“ sagði hann. „Við verðum að þreyja þorr­ann.“

Uppfært kl. 6.44:

Til­kyn­ing frá sótt­varna­lækni:

Vegna umræðu um dreif­ingu bólu­efna gegn COVID-19

Að gefnu til­efni vill sótt­varna­læknir taka fram að á þess­ari stundu liggja ein­ungis fyrir áreið­an­legar upp­lýs­ingar um afhend­ingu fyrstu skammta bólu­efnis frá Pfizer.

Á upp­lýs­inga­fundi í morgun mátti skilja á orðum mínum að ekki væri að vænta bólu­efna frá öðrum fram­leið­endum fyrr en á síð­ari hluta næsta árs. Þetta var ofsagt. Ísland hefur þegar tryggt sér kaup­rétt á bólu­efni fyrir um 60–70% þjóð­ar­innar en ekki liggur enn fyrir hvenær og hversu mikið bólu­efni kemur í hverri send­ingu.

Áætlanir fram­leið­enda munu skýr­ast þegar fram í sækir.

Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár