Landsvirkjun frumkvöðull í útgáfu grænna skuldabréfa

Fjallað er um grænar skulda­bréfa­út­gáfur í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar.

Fjallað er ítar­lega um svo­nefndar grænar skulda­bréfa­út­gáfur í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar, sem kemur til áskrif­enda í dag. Farið yfir þróun mála á alþjóða­mörk­uðum og hvernig áhug­inn á þess­ari teg­und skulda­bréfa­út­gáfu hefur verið að stig­magn­ast frá ári til árs að und­an­förnu.

Kristján Guy Burgess, alþjóða­stjórn­ar­mála­fræð­ingur, segir í umfjöllun sinni að nýleg útgáfa Lands­virkj­unar undir þessum græna hatti sé mik­il­væg fyrir Ísland. „Á Íslandi hefur Lands­virkjun gengið fremst á þessu sviði og er eini íslenski aðil­inn sem hefur gefið út grænt skulda­bréf. Það gerði fyr­ir­tækið fyrr á árinu þegar það sótti sér 200 millj­ónir doll­ara á banda­rískan skulda­bréfa­markað. Frumraunin heppn­að­ist vel og skráðu fjár­festar sig fyrir sjöföldu því and­virði sem upp­haf­lega var boðið út, sem varð til þess að Lands­virkjun sótti sér tvö­falda þá upp­hæð sem upp­haf­lega var stefnt að. Útboðið byggði á ramma sem Lands­virkjun hafði útbúið vegna útgáfu grænna skulda­bréfa en sá rammi byggði síðan á við­miðum International Capital Market Association (ICMA) og fjórum stoðum um ráð­stöfun fjár­muna; ferli um mat og val á verk­efnum; um stýr­ingu fjár­muna og um upp­lýs­inga­gjöf. Alþjóð­lega ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Sustainalytics gerði úttekt á ramma Lands­virkj­unar.

Lands­virkjun var einnig frum­herji á banda­ríska skulda­bréfa­mark­aðnum sem hafði ekki áður fengið sam­bæri­lega útgáfu. Þá gerði úttekt­ar­að­il­inn und­an­þágur frá stærð­ar­mörkum þeirra verk­efna sem til stóð að fjár­magna vegna þess hversu grænar íslenskar vatns­afls­virkj­anir eru taldar. Ætla má að Lands­virkjun hafi brotið blað þar sem aðrir útgef­endur skulda­bréfa á Íslandi ættu að geta litið til for­dæmis fyr­ir­tæk­is­ins og lært af skulda­bréfa­út­gáf­unni hvernig unnt sé að fjár­magna stór verk­efni,“ segir Kristján Guy meðal ann­ars í grein sinni.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár